Fréttablaðið - 17.01.2007, Blaðsíða 69
[Hlutabréf]
Samþykkt var á hluthafafundi Ice-
landic Group í gær að taka víkj-
andi lán fyrir allt að 5 milljarða
króna með sérstökum skilyrðum
sem meðal annars veita lánar-
drottni rétt til að breyta kröfu
sinni á hendur félaginu í hlutafé.
Þá var jafnframt samþykkt að
stjórn félagsins skyldi vera heim-
ilt að hækka hlutafé í Icelandic
Group um allt að 1,1 milljarð
króna að nafnverði til að efna
skuldbindingar sínar.
Hluthafar falla jafnframt frá
forgangsrétti til áskriftar að þeim
hlutum sem gefnir verða út en
nýju hlutirnir veita réttindi í
félaginu frá skráningardegi hluta-
fjárhækkunar, að því er segir í til-
kynningu.
Hlutafjár-
hækkun hjá IG
Breska fata- og húsbúnaðarkeðjan
Laura Ashley greindi frá því í gær
að afkoma fyrirtækisins hefði
batnað mikið á milli ára. Þetta er
talsvert betri afkoma en mörg
fyrirtæki í Bretlandi hafa greint
frá í upphafi árs.
Sala jókst um 8,7 prósent í öllum
vöruflokkum hjá Lauru Ashley um
allan heim. Þar af jókst sala í Bret-
landi um 12,5 prósent í Bretlandi í
fyrra. Það er nokkru minna en á
fyrstu níu mánuðum ársins en þá
nam aukningin 13,1 prósenti.
Endanlegar afkomutölur liggja
ekki fyrir en gert er ráð fyrir að
hagnaður verslunarinnar hafi auk-
ist um tíu prósent í fyrra miðað við
árið á undan. Gengi hlutabréfa í
samstæðu Lauru Ashley, sem sjálf
lést árið 1985, hækkaði um tíu pró-
sent í kauphöll Lundúna í Bret-
landi vegna fréttanna.
Gott ár hjá
Lauru Ashley
Úrvalsvísitalan Kauphallarinnar
endaði í 6.885 stigum í gær, sem er
næsthæsta gildi hennar frá upp-
hafi.
Metið 6.925 stig, sem var sett
um miðjan febrúar í fyrra, gæti
því fallið í dag miðað við þær
hækkanir sem orðið hafa á hluta-
bréfum frá áramótum. Frá árs-
byrjun hefur Úrvalsvísitalan
hækkað um 7,4 prósent.
Actavis, FL Group og Lands-
bankinn hafa hækkað mest af stóru
félögunum það sem af er ári en
Exista, Glitnir og Kaupþing fylgja
þeim fast á hæla.
Í vikunni hafa hlutabréf í Acta-
vis hækkað um 5,2 prósent í mikilli
veltu eftir að Landsbankinn mælti
sérstaklega með félaginu.
Fjörutíu stig-
um frá metinu
Innflutningur vinnuafls í uppsveifl-
unni sem verið hefur í efnahagslífinu
hefur haldið aftur af þenslu og verð-
bólgu með töluverðum ábata fyrir
íslenskan almenning. Í nýrri úttekt
greiningardeildar Kaupþings kemur
fram að útlendingar hafi mannað störf
sem landsmenn hafi ekki getað eða
viljað sinna.
„Í maí á þessu ári opnaðist íslensk-
ur vinnumarkaður fyrir nýjum
aðildarríkjum Evrópusambandsins og
segja má að í kjölfarið hafi orðið
algjör sprenging í innflæði til lands-
ins og í kjölfarið mikið rætt um áhrif
þess á íslenskt samfélag,“ segir Þóra
Helgadóttir, sérfræðingur greiningar-
deildarinnar sem vann rannsókn á
málinu. Hún segir niðurstöðuna þá að
fólk sem hingað komi frá útlöndum til
að vinna leggi meira til samfélagsins
en það kosti. Þannig yngi erlent vinnu-
afl í raun upp þjóðina enda sé þar á
ferðinni fólk á vinnufærum aldri og
rannsóknir sýni að atvinnuleysi sé
hverfandi í hópnum, eða 0,5 prósent.
Þóra segir því ljóst að ekki þurfi að
hafa áhyggjur af því að erlent vinnu-
afl sé íþyngjandi fyrir þjóðina.
Annað áhyggjuefni sem orð hefur
verið haft á er að aðkoma útlendinga
dragi úr atvinnutækifærum þeirra
sem fyrir eru. Þóra segir hins vegar
reynsluna annars staðar frá vera þá að
aðkoma útlendinga skapi störf og auki
tækifæri í landinu. „Reynsla Breta og
Íra sýnir að innflæði vinnuafls frá
nýjum aðildarríkjum ESB hefur ekki
haft neikvæð áhrif á þarlenda vinnu-
markaði,“ segir Þóra og kveður grein-
ingardeild Kaupþings spá því að
reynsla okkar verði svipuð og Breta
og Íra, enda vinnumarkaðurinn hér
þekktur fyrir sveigjanleika.
Erlent vinnuafl hefur góð áhrif
HVER ER SINNAR
KÆFU SMIÐUR
Góða skemmtun
NÝ TVÖFÖLD SAFNPLATA MEÐ ÖLLUM VINSÆLUSTU
LÖGUM LADDA ER KOMIN Í VERSLANIR!!
1. Austurstræti
2. Ég er í svaka stuði
3. Fatafrík
4. Flikk flakk
5. Þú verður tannlæknir
6. Freknótta fótstutta mær
7. Jón Spæjó
8. Gibba Gibb
9. Hr. Smæl
10. Hann á við meiðsli að stríða
11. Skammastu þín svo
12. Of feit fyrir mig
13. Tóti tölvukall
14. Hrói Höttur
15. Tarzan apabróðir
16. Spánarfljóð
17. Hvítlaukurinn
18. Í Vesturbænum
19. Já, þetta er lífið
20. Marta Pálína
21. Nesti og nýja skó
22. Nútímastúlkan hún Nanna
23. Sagan af Ulf Hellerup á Íslandi
1. Búkolla
2. Royi Roggers
3. Skúli Óskarsson
4. Ég pant spila á gítar, mannanna
5. Upp undir Laugarásnum
6. Það var úti á Spáni
7. Sandalar
8. Stórpönkarinn
9. Tvær úr Tungunum
10. Skúli rafvirki
11. Tygg-igg-úmmí
12. Þar standa hegrarnir
13. Það er fjör
14. Æskuást
15. Hann er þekktur fyrir sín þrumuskot
16. Ég er afi minn
17. Grínverjinn
18. Með Haley lokk (og augað í pung)
19. Pabbi minn
20. Prinsippmál
21. Er það satt sem þeir segja um landann
22. Superman
23. Í Köben
24. Mamma og ég
Pl
at
a
1
Pl
at
a
2