Fréttablaðið - 17.01.2007, Page 78
Bretar voru sigursælir á
bandarísku Golden Globe-
hátíðinni sem var haldin
í Hollywood í fyrrakvöld.
Helen Mirren fékk tvenn
verðlaun á meðan Babel
og Dreamgirls voru valdar
bestu myndirnar.
Segja má að Helen Mirren hafi
drottnað yfir öðrum leikurum á
hátíðinni. Hún var valin besta leik-
konan í stuttri sjónvarpsþáttaröð
fyrir hlutverk sitt í Elizabeth I og
sem besta leikkonan í dramamynd
sem Elizabeth II í The Queen. Sú
mynd fékk einnig verðlaun fyrir
besta handritið.
Mirren sagði að Elísabet Eng-
landsdrottning hefði árið 1952
gengið inn í hlutverk lífs síns,
aðeins 25 ára. „Satt best að segja
finnst mér þessi verðlaun tilheyra
henni vegna þess að þið heilluðust
af henni en ekki mér,“ sagði hún.
Forest Whitaker var valinn
besti leikarinn í dramamynd
fyrir frammistöðu sína sem
einræðisherrann Idi Amin í
myndinni The Last King of
Scotland. Whitaker er mörg-
um Íslendingum
kunnur eftir að
hafa farið með aðalhlutverkið í
mynd Baltasars Kormáks, A Little
Trip to Heaven.
Bretinn Sacha Baron Cohen fékk
verðlaun sem besti gamanleikar-
inn í hlutverki sjónvarpsmannsins
óborganlega Borat í samnefndri
mynd. Sagði hann að hlutverkið
hefði breytt lífi sínu. „Ég vil þakka
öllum Bandaríkjamönnum sem
hafa ekki ennþá lögsótt mig,“
sagði Cohen í léttum dúr þegar
hann tók á móti verðlaununum.
Landi Cohens, Hugh Laurie, var
valinn besti dramaleikarinn fyrir
frammistöðu sína í læknaþættin-
um House og Bretarnir Jeremy
Irons og Bill Nighy hlutu einnig
verðlaun. Irons hlaut verðlaun sem
besti aukaleikari í þáttaröðinni
Elizabeth I og Nighy sem besti
leikarinn í sjón-
varpsmyndinni
Gideon´s
Daughter. Nighy er eflaust mörg-
um kunnur úr myndinni Love Act-
ually, auk þess sem hann lék í sjón-
varpsmyndinni The Girl in The
Café sem var tekin að hluta til
upp hér á landi.
Emily Blunt, sem er
einnig bresk, var valin
besta aukaleikkonan
fyrir frammistöðu sína
í Gideon´s Daughter.
Kvikmyndin Dream-
girls var valin besta
söngva- eða gaman-
myndin og hreppti tvö
önnur verðlaun,
fyrir besta auka-
leikarann, Eddie
Murphy, og bestu leikkonu í auka-
hlutverki, Jennifer Hudson. Babel,
sem var tilnefnd til sjö verðlauna,
hlaut aðeins Golden Globe-verð-
laun fyrir bestu dramamyndina.
Mynd Clint Eastwood, Letters
From Iwo Jima, var valin besta
myndin með erlendu tali og Mart-
in Scorsese besti leikstjórinn fyrir
glæpamyndina The Departed.
Ugly Betty hlaut verðlaun sem
besti gamanþátturinn í sjónvarpi
á meðan Grey´s Anatomy varð
fyrir valinu sem besti dramaþátt-
urinn. Þá fékk Warren Beatty, sem
verður sjötugur á árinu, heiðurs-
verðlaun fyrir framlag sitt til
kvikmyndalistarinnar.
Stjörnurnar skinu skært á Golden
Globe-verðlaunahátíðinni í Hollywood
í fyrrakvöld. Voru þær mættar í sínu
fínasta pússi og vitaskuld stillti her
ljósmyndara sér upp til að festa her-
legheitin á filmu.
Stjörnurnar
skinu skært
Tískugúrúinn Giorgio Armani er
ekki sammála þeim sem halda að
flutningur Beckham-hjónanna til
Los Angeles hafi haft eitthvað
með framtíðaráform Victoriu að
gera. Hann sagði á blaðamanna-
fundi í gær að hann héldi frekar
að David Beckham langaði til að
reyna fyrir sér á hvíta tjaldinu.
Beckham hefði útlitið með sér, og
fótboltaferill hans væri farinn að
styttast í annan endann. Auk þess
á hann hauk í horni í Tom Cruise.
Á tjaldið?
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/I
C
E
3
56
26
1
/0
7
VERÐ FRÁ 59.700 KR.* Á MANN Í TVÍBÝLI
Hljómsveitirnar Sálin hans Jóns míns og Stuðmenn
á sameiginlegum tónleikum í Cirkusbygningen.
Hljómsveitirnar leika til skiptis undir borðhaldi
og síðan fyrir dansleik. Þriggja rétta kvöldverður.
Stanslaust, íslenskt fjör eins og það getur best
orðið til kl. 2:00. Leynigestur úr heimi tónlistarinnar.
Kynnir kvöldsins: Þorvaldur Flemming.
+ Nánari upplýsingar á www.icelandair.is
STUÐMENN OG SÁLIN
Í KÖBEN 18. APRÍL 2007
Safnaðu
Vildarpunktum
Punktarnir upp í Ferðaávísun gildir
ICELANDAIR OG WWW.KAUPMANNAHOFN.DK KYNNA: