Fréttablaðið - 17.01.2007, Page 82
Ólafur Stefánsson er
fyrirliði íslenska landsliðsins í
handbolta og algjör lykilmaður í
sóknarleik íslenska liðsins. Hann
er heimsklassa handboltamaður
sem hefur margsannað sig meðal
þeirra bestu, bæði með íslenska
landsliðinu á stórmótum sem og
með félagsliðum sínum Magde-
burg og Ciudad Real.
Þeir sem hafa áhyggjur af fáum
mörkum Ólafs í undanförum
æfingaleikjum geta bara setið ról-
egir því ef það er einhver maður
sem íslenska þjóðin getur treyst á
að skili sínu á stóra sviðinu þá er
það Ólafur Stefánsson.
Ólafur skaut aðeins 4 langskot-
um í uppsettum sóknum í leikjun-
um tveimur gegn Tékkum og
stærsta skýringin er örugglega sú
að hann er að hlífa öxlinni sem
hefur verið að hrjá hann í vetur.
Ólafur hvíldi lítið í leikjunum og
þannig verður það örugglega einn-
ig á HM í Þýskalandi þar sem
brotthvarf Einars Hólmgeirsson-
ar hefur vissulega rænt hægri
vænginn breiddinni. Ólafur skor-
aði alls 4 mörk utan af velli í
Tékkaleikjunum og þar af komu
þrjú úr hraðaupphlaupum. Eina
mark Ólafs í uppsettri sókn skor-
aði hann í fyrri hálfleik seinni
leiksins þegar Íslendingar voru
manni fleiri.
Besta dæmið um að Ólafur nái
alltaf sínu besta fram á stórmót-
um er framganga hans í fyrra.
Margir höfðu uppi efasemdir um
Ólaf eftir að hann skorað aðeins
eitt mark með langskoti í lokaund-
irbúningsleikjunum liðsins gegn
Frökkum og það þótti ekki boða
gott að besti maður landsliðsins
hefði aðeins skorað 2,6 mörk að
meðaltali í fimm æfingaleikjum
liðsins.
Eftir fyrsta leikinn, 36-31 sigur
á Serbum létti Ólafur áhyggjunum
inn á vellinum. Hann átti stórleik
skoraði 8 mörk úr 11 skotum þar
af 4 þeirra með langskotum. Ólaf-
ur endaði mótið með því að skora
8,3 mörk að meðaltali, gefa 7,0
stoðsendingar í leik, nýta 61%
skota sinna og tryggja sér sæti í
úrvalsliði mótsins.
Kröfurnar og væntingarnar til
Ólafs eru alltaf miklar og það er
enginn að búast við að hann beri
einn uppi sóknarleik íslenska liðs-
ins. Fleiri leikmenn þurfa að taka
meiri ábyrgð en íslenska liðið mun
þó ekkert hætta að horfa til hæfi-
leika Ólafs í að splundra vörnum
mótherjanna með annað hvort
hnitmiðuðum skotum eða mögnuð-
um sendingum. Eins og allir vita
þá sést framlag Ólafs til liðsins
ekki síst í öllum stoðsendingunum
sem hann gefur. Ólafur gaf 17
stoðsendingar í leikjunum tveim-
ur á móti Tékkum og sex sending-
ar hans til viðbótar sköpuðu víta-
köst. Af þessum 23 lykilsendingum
þá voru 14 þeirra inn á línu og þá
sást nokkrum sinnum til Ólafs
vera búinn að taka upp tívolí-send-
ingar Sigga Sveins sem er ekki að
skemma fyrir flórunni á þeim
bænum.
Ólafur sjálfur er maður pæl-
inganna. Það gleyma fáir sjón-
varpsviðtalinu við hann eftir leik-
inn á móti Serbíu á EM í fyrra.
Ólafur sagðist þá hafa tekið þá
ákvörðun að verða ungur aftur,
dreymdi Boris um nóttina og
klæddist Valstreyjunni undir
landsliðsbúningnum. Íslenska
þjóðin myndi vilja óska að Ólafur
væri alltaf ungur og til staðar
fyrir íslenska landsliðið. Við
getum því fagnað því að hann sé
enn í fullu fjöri og beðið spennt
eftir því hvernig Ólafur Stefáns-
son umbreytist í besta handbolta-
mann heims þegar að hann stígur
á stóra sviðið í Þýskalandi um
næstu helgi.
Ólafur Stefánsson skoraði „aðeins“ þrjú mörk að meðaltali í fimm síðustu undirbúningsleikjum íslenska
landsliðsins en síðustu árin hefur hann sparað sig í æfingaleikjunum en spilað frábærlega á stórmótunum.
Stefán Geir Þórisson
hæstaréttarlögmaður greindi
Fréttablaðinu frá því í gær að
hann myndi ekki bjóða sig fram
til formanns KSÍ en hann býður
sig engu að síður fram til setu í
stjórn KSÍ.
Stefán Geir segir marga hafa
skorað á sig að fara í formanns-
framboð hjá KSÍ en þar sem
framboð Jafets S. Ólafssonar
liggi fyrir hafi hann ákveðið að
bjóða sig ekki fram. Stefán
fagnar framboði Jafets og segir
hann hafa þá mannkosti, reynslu
og þekkingu sem þarf til að stýra
KSÍ í áframhaldandi sókn
íslenskrar knattspyrnu.
Stefán segir einnig á að ýmsir
hafi bent á mikilvægi þess að með
nýjum formanni komi jafnfram
nýir menn í stjórnina og þess
vegna bjóði hann sig fram til setu
í stjórn KSÍ.
„Vonast ég til að reynsla mín
og þekking nýtist í störfum
mínum fyrir KSÍ: hvort heldur er
af fjölbreyttum lögmannsstörfum
hérlendis og erlendis eða af
rekstri knattspyrnufélagsins
Stoke City FC á Englandi um 6
ára skeið og Knattspyrnufélags-
ins Víkings um 10 ára skeið,“
segir í tilkynningu frá Stefáni
Geir sem hefur ekki verið
áberandi í íslensku knattspyrnu-
lífi undanfarin ár þó svo hann
hafi verið að vinna trúnaðarstörf
fyrir Víking.
Tveir einstaklingar - Geir
Þorsteinsson og Jafet S. Ólafsson
- hafa boðið sig fram til formanns
KSÍ og Viðar Halldórsson hefur
sagst vera að íhuga framboð en
hefur ekki tekið ákvörðun.
Ársþing KSÍ fer fram 10. febrúar.
Styður Jafet og
vill í stjórn KSÍ
2
Átta liða úrslit Áskor-
endakeppni Evrópu klárast í vik-
unni en þar mætast liðin sem
voru með Njarðvík og Keflavík í
riðli fyrir áramót.
Liðin sem fóru upp úr riðli
Njarðvíkur (CSK-VVS Samara
og Cherkaski Mavpy) unnu liðin
sem voru með Keflavík í riðli
(BC Dnipro og Mlekarna Kunin).
CSK-VVS Samara vann 20 stiga
útisigur á Mlekarna Kunin (84-
64) og Cherkaski Mavpy vann 2
stiga heimasigur á BC Dnipro
(89-87). Það lið sem hefur betur
samanlagt út úr tveimur leikjum
kemst áfram í undanúrslit.
Njarðvík tapaði báðum heima-
leikjum sínum
gegn þessum
liðum með
aðeins tveim-
ur stigum en
Keflavík tap-
aði heima-
leiknum gegn
BC Dnipro
með 1 stigi en
steinlá með
29 stigum á
heimavelli
gegn Mlek-
arna Kunin.
Liðin töpuðu
síðan bæði stórt í öllum útileikj-
unum.
Liðin úr riðli Njarðvíkur
standa vel að vígi Stórleikur átta liða
úrslita bikarkeppni kvenna í hand-
bolta fer fram á Ásvöllum í kvöld
þegar bikarmeistarar Hauka taka
á móti Stjörnunni. Þetta verður
annar leikur liðanna á fimm
dögum en Stjarnan vann deildar-
leik liðanna í Ásgarði með sex
marka mun á laugardaginn, 21-15.
Nú er að sjá hvort Haukastúlk-
urnar ná að hefna fyrir tapið en
þrír lykilmenn liðsins, Ramune
Pekarskyte, Hanna Guðrún Stef-
ánsdóttir og Sandra Stojkovic,
skoruðu aðeins 9 mörk úr 24 skot-
um í leiknum á laugardaginn en
höfðu skorað saman 18,3 mörk að
meðaltali í leik í vetur. Spurning
hvort Haukastúlkur hafi fundið
leiðina frá hjá hinn sterku 3:2:1
vörn Stjörnunnar.
Hefna bikarmeistarnir?
Spiluðum Rocky-lögin fyrir og eftir leik