Fréttablaðið - 17.01.2007, Side 88

Fréttablaðið - 17.01.2007, Side 88
Það var „Hænuboð“ hjá Maju vinkonu, eða „hen party“ eins og hún kallar sjálf skemmtileg- ustu kvennaboð ársins. Hún sagði í símanum að hún væri flutt úr húsinu sínu í Laugarásnum í lúxusíbúð í Skuggahverfi 101. Það væri ekki úr vegi að við yrðum okkur úti um hjólahjálm sem ráð- legt væri að setja upp þegar við nálguðumst húsið. er eitthvað vesen með flís- arnar utaná blokkinni“ sagði Maja, „þær hrynja niður á götu í tíma og ótíma, svo allur er varinn góður. Auðvitað væru þetta vonbrigði, hún hefði haldið sig vera að flytja inn í flottustu íbúð á Reykjavíkur- svæðinu, henni hafði verið sagt að uppbygging í Skuggahverfi 1, 2 og 3 væri „metnaðarfyllsta verkefni sem ráðist hefði verið í hér á landi um árabil“. er allt á Íslandi í dag. „Stærstu framkvæmd Íslandssög- unar“ er nú verið að brölta í við Kárahnjúka. Og nú heita þessir ljótu svörtu húsdrjólar sem er farið að raða upp við Skúlagötuna „Metnaðarfyllsta framkvæmd Íslandssögunnar“ og verktakar andstuttir af græðgi gefa fyrir- heit um slíkan ófögnuð í framtíð- inni, sem muni ná alveg upp á Skólavörðuholt. hvað um það. „Hænuboðið“ hjá Mæju var frábært eins og öll hennar boð. Hún var orðin svo ein- mana þarna í svarta fílabeinsturn- inum (sem leit reyndar út í bili eins og skjöldótt kýr). En gesta- komum til hennar hafði stórlega fækkað af öryggisástæðum. allar slíkar hremmingar voru gleymdar þegar horft var út um stóru stofugluggana yfir á Esjuna. Hvílíkt útsýni! Það var eins og engin okkar hefði séð gömlu góðu Esjuna í öðrum eins ljóma. En auð- vitað þurfti ein hænan að reka augun í að vatn lak niður á stíl- hreina gluggakistuna, smá hönn- unargalli, enda höfðu fram- kvæmdamenn að húsbyggingunni rekið verktakana í Eykt snarlega þegar þeir sáu að Eyktarmenn voru að dútla með hveitilím við festingu flísa og sjálfsagt hefðu þeir notað tyggigúmmí í þéttingar á gluggalistum. fjörugasta boði ársins reyndum við að taka ekki eftir því að gólfið var farið að síga ískyggilega og þegar einhver hafði orð á því, var henni sagt að líklega hefði hún verið búin að fá sér einum of mikið sérrí. Skellóttur fíla- beinsturn Lyfja Lágmúla Lyfja Smáratorgi Opið 8-24 alladaga - Lifið heil AFL OG HAGKVÆMNI SAMEINAST TÆKNIUNDRIÐ TDI® DÍSILVÉLIN EYÐIR AÐEINS 4,9 LÍTRUM SIMPLY CLEVER GullnaStýrið Skoda Octavia hefur meðal annars hlotið Gullna stýrið, einhver eftirsóttustu bílaverðlaun heims. SkodaOctavia Skoda Octavia með 1,9 lítra TDI® dísilvél sannar að afl og hagkvæmni getur farið saman. Vélin skilar 105 hestöflum en eyðslan er einungis 4,9 lítrar í blönduðum akstri á hverja 100 km. Svo er Octavia TDI® einnig fáanleg fjórhjóladrifin og meira en tilbúin í átök vetrarins. Hvort sem hindrunin er háir snjóskaflar eða hátt eldsneytisverð þá ertu í toppmálum á Skoda Octavia TDI®. Í ágúst 2006 tókst Stefáni Ásgrímssyni, ritstjóra FÍB blaðsins, að ná eyðslu bílsins í 3,63 lítra þegar hann ók rúmlega hringveginn, alls 1.515 km, í áheitaakstri HEKLU fyrir Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna. LANGAR ÞIG Á HM Í HANDBOLTA? Komdu þá og reynsluaktu Skoda og þú gætir unnið miða fyrir tvo á úrslitaleikinn á HM í handbolta í Þýskalandi 4. febrúar, flug með Icelandair og gistingu á glæsihóteli. HEKLA er stuðningsaðili HSÍ – ÁFRAM ÍSLAND! AUGL†SINGASÍMI 550 5000

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.