Fréttablaðið - 25.01.2007, Page 28
hagur heimilanna
Heitar sítrónur eru heppilegar þegar
þarf að þrífa örbylgjuofninn, segir
Lára Ómarsdóttir.
Keypti tjörn með húsi
Þorramaturinn sem margir
gæða sér á um þetta leyti
samanstendur af ýmiss
konar mat. Súrmatur þykir
hefðbundnastur auk harð-
fisks og rófustöppu en
undanfarin ár hefur færst
í vöxt að fólk telji hangi- og
saltkjöt einnig til þessara
kræsinga.
„Hollusta þorramats er breytileg
eins og maturinn er misjafn. Það
sem helst þykir slæmt við hann er
að fitumagnið í honum er frekar
hátt,“ segir Grímur Ólafsson, sér-
fræðingur á Matvælasviði
Umhverfisstofnunar. Hann segir
kosti súrmetisins helst vera þá að
hann inniheldur nánast ekkert
salt. Súrsunin sem notuð er við
vinnslu hans er gömul varðveislu-
aðferð sem var Íslendingum afar
mikilvæg þegar saltskortur var í
landinu. Í stuttu máli fer hún
þannig fram að soðin matvæli eru
sett í súrsunarmysu í þrjá til sex
mánuði. Þegar sýrustigið í mat-
vælunum er hæfilegt geta sjúk-
dómsvaldandi örverur ekki fjölg-
að sér og maturinn verður öruggur
til neyslu.
Grímur segir mysuna hafa
verið afar mikilvæga í matarhefð-
um þjóðarinnar þar sem hún inni-
heldur bætiefni, svo sem b og c
vítamín, kalk og góð prótín.
„Fitan í matnum eru helsti
ókosturinn. Hún hefur auðvitað
verið fólkinu góð í kuldanum fyrr
á tímum en við þurfum lítið á
henni að halda. Þess ber þó að geta
að hrútspungar innihalda mjög
litla fitu þannig að fólk þarf litlar
áhyggjur að hafa af henni á meðan
það borðar þá,“ segir Grímur en
viðurkennir að þeir séu ekki í
uppáhaldi hjá sér heldur sviða-
sultan. Hann veitir svo súrmetinu
blessun sína svona einu sinni á
ári.
Kosturinn við súrmetið
er lítið sem ekkert salt
Yfir hundrað þúsund Íslend-
ingar hafa fengið, eða munu fá á
næstu mánuðum, auðkennislykil í
pósti frá bankanum sínum.
Lyklinum er ætlað að auka
öryggi í bankaviðskiptum með því
að láta notendur slá inn auðkennis-
númer, sem lykillinn sýnir þegar
ýtt er á takka á honum, auk not-
endanafns og aðgangsorðs til þess
að fá aðgang að bankanum. En
hvernig virkar þessi lykill?
„Hvert tæki er útbúið með raf-
rænum lykli inni í sér, sem er ein-
stakur fyrir það tæki,“ segir
Sverrir Bergþór Sverrisson, sér-
fræðingur hjá Auðkenni, fyrir-
tækinu sem framleiðir lyklana.
„Tækið notar síðan rafræna
lykilinn til að búa til slembitölu, sem
notandinn slær inn. Hjá bankanum
er tölva sem tengir auðkennislykil-
inn við notandann og útbýr tölu út
frá sömu forsendum og lykillinn
hefur. Ef talan er sú sama og talan
sem tækið bjó til er hún samþykkt
og notandanum veittur aðgangur.“
Sverrir segir dreifingu á lykl-
unum hafna og að henni ljúki á
næstu mánuðum. Á sama tíma
verður byrjað að skylda notendur
til þess að nota lyklana.
Tala sem tryggir aukið öryggi
– Vel lesið
Vertu inní
Fréttablaðinu
með þitt
kynningarefni
Áhugasamir auglýsendur vinsamlegast hafið samband
í síma 5505844 | orn.geirsson@365.is
Einblöðungar - bæklingar - blöð - umslög
Vertu inní Fréttablaðinu með þitt kynningarefni
Notaðu mest lesna* blað landsins til að
dreifa kynningarefni til þinna viðskiptavina
*Gallup maí 2006