Fréttablaðið - 28.01.2007, Blaðsíða 6
UPPSELT
UPPSELT
NOKKUR SÆTI LAUS
Síðasta sumar dró
rússneskur maður upp úr jakka-
vasanum sínum hundrað grömm
af geislavirku úrani, sem hann
geymdi einfaldlega í plastpoka.
Hann hugðist selja úranið, en vissi
ekki að kaupendurnir voru út-
sendarar stjórnarinnar í Georgíu.
Hann situr í fangelsi í Georgíu
og hefur ekki reynst samvinnu-
þýður við að upplýsa málið. Einn-
ig voru þrír Georgíumenn hand-
teknir og sitja í fangelsi í Georgíu
grunaðir um aðild að málinu.
Málið vekur upp grunsemdir
um að öryggisgæslu sé ábótavant
við úranvinnslu í Rússlandi. Emb-
ættismenn í Georgíu segja rúss-
nesk stjörnvöld ekki hafa verið
hjálpleg við rannsóknir á því
hvaðan úranið gæti hafa komið.
Rússar bera þær ásakanir hins
vegar til baka og segja þvert á
móti að Georgíumenn hafi ekki
viljað senda nægilega stórt sýni
af efninu til Rússlands til þess að
hægt sé að rekja uppruna þess.
Stjórnvöld í Georgíu nutu hins
vegar aðstoðar bandarísku leyni-
þjónustunnar CIA til að koma upp
um úransöluna. Efnið var rann-
sakað í Bandaríkjum og staðfest
að um háauðgað úran væri að
ræða, sem þýðir að það var not-
hæft í kjarnorkusprengju.
Starfsmaður í innanríkisráðu-
neyti Georgíu, Shota Utiashvili,
hefur staðfest að sölumaðurinn
heiti Oleg Khinsagov, búsettur í
bænum Vlaidkavkas í Norður-
Ossetíu, sem er hérað í Rússlandi
sem liggur að landamærum
Georgíu.
Utashvili hefur einnig upplýst
að árið 2003 hafi Georgíumenn
einnig komið í veg fyrir smygl-
tilraun með geislavirkt úran.
Áður en hann var handtekinn
fullyrti hann að þessi hundrað
grömm væru aðeins fyrsti
skammturinn, hann hefði aðgang
að meira úrani sem hann vildi
selja. Engin staðfesting hefur þó
fengist á því.
Auðgun úrans er gerð til þess
að auðvelda kjarnaklofnun í efn-
inu og felst í því að hlutfall auð-
kleyfra úransamsæta í náttúru-
legu úrangrýti er aukið á kostnað
torkleyfra samsæta.
Til þess að búa til eina nothæfa
kjarnorkusprengju þarf hins
vegar að minnsta kosti fimmtán
kíló af níutíu prósent auðguðu
úrani, þannig að hundrað grömm-
in sem Khinsagov dró upp úr
jakkavasanum duga engan veginn
til slíks.
Gripinn glóðvolgur
Rússi sem reyndi að selja geislavirkt úran situr í fangelsi í Georgíu. Grunur
leikur á að hann hafi fengið úranið frá Rússlandi. Bandaríska leyniþjónustan
aðstoðaði Georgíumenn við að leiða rússneska úransmyglarann í gildru.
Átta af hverjum tíu Íslendingum
myndu fljúga minna innanlands ef flugmiðstöð yrði
flutt til Keflavíkurflugvallar og 39 prósent vilja ekki
flytja starfsemi Reykjavíkurflugvallar til Keflavík-
ur. Þetta er niðurstaða Bjarna Reynarssonar land-
fræðings en hann fjallaði um rannsókn sína á
áhrifasviði höfuðborgarsvæðisins og helstu
þéttbýlisstaða á nýrri fundaröð samgönguráðs og
samgönguráðuneytisins í vikunni.
Vífill Karlsson, dósent við Háskólann á Bifröst,
fjallaði á fundinum um áhrif umbóta á samgöngu-
kerfi á byggð. Hann sagði að samgöngubætur hefðu
meðal annars í för með sér bætt aðgengi og styttri
ferðatíma; margs konar rekstrarskilyrði bötnuðu og
hagvöxtur ykist. Fram kom í könnun á viðhorfum
íbúa á Vesturlandi að tilkoma Hvalfjarðarganga hefði
að áliti margra leitt til aukinna atvinnutækifæra.
Hreinn Haraldsson, framkvæmdastjóri þróunar-
sviðs Vegagerðarinnar, fjallaði um breytingar á
umferð og búsetu frá 2000 til 2005. Hreinn dró fram
hversu ólík þróun íbúafjölda og umferðar væri.
Umferð hefur aukist árlega um 4,2 prósent síðustu
tíu árin og bílum hefur fjölgað um 4,7 prósent. Á
sama tíma jókst mannfjöldi á Íslandi um 1,3 prósent
að meðaltali árin 1996 til 2006.
Karlmaður á fertugs-
aldri var á föstudaginn dæmdur í
Héraðsdómi Reykjavíkur í
þrjátíu daga skilorðsbundið
fangelsi fyrir brot gegn vald-
stjórninni.
Hann var ákærður fyrir að
hafa skallað lögreglumann í
andlitið og sparkað í andlit annars
lögreglumanns í júlí á síðasta ári
þegar þeir voru að færa hann inn
í lögreglubifreið. Atburðurinn átti
sér stað á bifreiðastæði á mótum
Geirsgötu og Pósthússtrætis.
Málið var þingfest í gær og
játaði maðurinn þá sök. Dómur
gekk að því búnu.
Skallaði
lögreglumann
Skipulags- og
byggingaráð Hafnarfjarðar sam-
þykkti fyrir sitt leyti í gær að
senda deiliskipulagstillögu að
stækkun álversins í Straumsvík í
auglýsingu. Erindið verður tekið
fyrir í bæjarstjórn í næstu viku
og verður þá endanleg ákvörðun
tekin.
Stefnt er að því að fá heimild
bæjarstjórnar fyrir auglýsingu
og bíða svo með auglýsinguna þar
til niðurstöður íbúakosningar
liggja fyrir í lok mars. Ef tillagan
verður samþykkt fer hún í aug-
lýsingu. Verði hún felld er málinu
lokið. Þetta verður gert að hug-
mynd skipulagsstjóra ríkisins.
„Ef bæjarbúar segja já og
Sturla Böðvarsson ætlar ekki að
færa veginn fyrr en eftir 2012 þá
verður bæjarfélagið að sjá um að
færa veginn þangað til,“ segir
Haraldur Ólason, oddviti sjálf-
stæðismanna í Hafnarfirði.
Málsmeðferðarreglur vegna
íbúakosningarinnar eru til
umfjöllunar í Hafnarfirði. Gert
er ráð fyrir að meirihluti þeirra
sem greiða atkvæði ráði úrslitun-
um. Engin ákvæði eru um kosn-
ingaþátttöku. Haraldur er
óánægður með þessa tillögu.
„Ég tel eðlilegt að setja ákvæði
um að minnst 25 prósent bæjar-
búa samþykki eða hafni deili-
skipulagstillögunni. Það þýðir þá
að yfir fimmtíu prósent bæjarbúa
verða að mæta á kjörstað.“
Setja ber ákvæði um þátttöku
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Hefur þú farið á skíði í vetur?
Notar þú MSN?