Fréttablaðið - 17.02.2007, Síða 12
nám, fróðleikur og vísindi
Rannsaka áhrif feðraorlofs
Nám við Kennaraháskóla
Íslands hefur verið í endur-
skoðun undanfarin misseri.
Í dag opnar menntamála-
ráðherra nýja náms- og
kennsluskrá og tekur þá
formlega gildi ný náms-
skipan við skólann.
„Þessi nýja nám- og kennsluskrá
hefur verið í undirbúningi í rúm
tvö ár,“ segir Ólafur Proppé, rektor
Kennaraháskólans. „Skólinn er
orðin býsna stór og flókin stofnun,
við erum með um 2.400 nemendur
og námsleiðunum fer fjölgandi svo
það var kominn tími til að endur-
skoða námið,“ segir Ólafur en í
Kennaraháskólanum er boðið upp á
grunnnám til BA-, BS- og B.Ed.-
náms, auk námsleiða á meistara-
stigi og doktorsnám.
„Nám þeirra fagstétta sem skól-
inn menntar hefur í grunninn verið
þrjú ár, en mikill hluti okkar nem-
enda kýs að bæta við sig framhalds-
námi áður en þeir hefja störf. Fram
til þessa höfum við gert þær kröfur
varðandi framhaldsnámið að
umsækjendur hafi að minnsta kosti
tveggja ára starfsreynslu. Með
breytingunum núna verður hins
vegar mögulegt að fara beint í
framhaldsnámið eftir grunnnám.
Það er stærsta breytingin,“ segir
Ólafur og útskýrir að þessar breyt-
ingar séu í raun undanfari þess að
lengja kennara- og þroskaþjálfa-
námið í fimm ár. „Við teljum að
grunnnámið sé of stutt og vonumst
til þess að innan fárra ára verði
fimm ára nám lögbundið þannig að
kennarar og þroskaþjálfar útskrif-
ist með meistarapróf.“
Samhliða þessum breytingum
hefur kennsluskrá skólans verið
stokkuð upp frá grunni. Námskeið-
in hafa verið stækkuð og náms-
brautum fækkað niður í fjórar en
námsleiðum fjölgað. „Þetta er í
raun bara hagræðing. Nú setjum
við til dæmis allt kennaranámið
undir eina braut, svokallaða kenn-
arabraut, sem verður stærsta
námsbrautin við skólann,“ segir
Ólafur. Með nýju kennsluskránni
verður einnig búið til tvenns konar
framhaldsnám. Þeir sem lokið hafa
B.Ed.-, BA-, eða BS-námi geta ann-
aðhvort bætt við sig starfstengdu
M.Ed.-námi, sem Ólafur vonast til
að verði hluti af lögbundnu fimm
ára grunnnámi sem fyrst, eða rann-
sóknartengdu MA- eða MS-námi. Í
framhaldi af þessu verður einnig í
boði tvenns konar doktorsnám við
skólann. Annars vegar til starfs-
tengdrar Ed.D-gráðu og hins vegar
rannsóknartengdrar Ph.d.-gráðu í
menntunarfræðum.
Nýja námsskipanin verður
kynnt við athöfn í Kennaraháskól-
anum í dag og ný námskrá tekur
gildi í haust. Að sögn Ólafs mun
hún gilda fyrir nemendur sem hefja
nám við skólann næsta haust.
Breytingarnar koma ekki í veg
fyrir að Kennaraháskólinn samein-
ist Háskóla Íslands eins og rætt
hefur verið um undanfarið. „Ég
geri fastlega ráð fyrir að samrun-
inn verði að veruleika árið 2008.
Það er rökrétt framhald og þessi
nýja námskrá er í takt við það sem
verið hefur að gerast í Háskóla
Íslands undanfarið. Kennarahá-
skólinn verður 100 ára á þessu ári
svo við náum að starfa í heila öld
áður en við sameinumst háskólan-
um,“ segir Ólafur. „Ætli megi því
ekki líta á nýju námskrána sem
afmælisgjöf okkar til þjóðarinnar
og tákn um nýja tíma.“
Breytingar á námsskipan
hjá Kennaraháskólanum
Íslenskir háskólar standa að
sameiginlegri kynningu á starf-
semi sinni á háskóladeginum í
dag en þetta er í fyrsta sinn
sem allir háskólar landsins taka
þátt í sameiginlegri kynningu.
Þetta er hugsað til hagræð-
ingar fyrir almenning, sérstak-
lega fólk úti á landi sem getur
skoðað allt úrvalið á sama deg-
inum.
Skólarnir verða á þremur
stöðum í bænum.
Í Borgarleikhúsinu verða
sex skólar. Háskólinn á Bifröst,
Háskólinn á Akureyri, Háskól-
inn í Reykjavík, Hólaskóli –
háskólinn á Hólum, Land-
búnaðarháskóli Íslands og
Listaháskóli Íslands.
Háskóladagurinn í dag
Skógarhlíð 18 · 105 Reykjavík · Sími: 591 9000
www.terranova.is · Akureyri sími: 461 1099
Hafnarfjörður sími: 510 9500