Fréttablaðið - 17.02.2007, Side 28
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5000.
„Ég átti í safni mynd af mér
fimm ára gömlum í matrósaföt-
um og velti fyrir mér hvernig ég
mynda líta út í þannig fötum
sem fullvaxta karlmaður.“
Vopnað rán við næturhólf
„Ég kannast ekkert við að vera orðin þetta gömul en þetta
er víst skjalfest niðri á Hagstofu svo það þýðir lítið að
neita,“ segir Árný Helgadóttir, hjúkrunarfræðingur,
íþróttaþjálfari og leiðsögumaður, sem er fimmtug í dag.
Árný er sannkallaður orkubolti, henni leiðist fátt meira
en að liggja í leti og ætlar því að taka á honum stóra sínum
í dag. „Ég ætla að taka daginn snemma og kenna tvo kraft-
göngutíma. Svo býst ég við að fara í sund en ver restinni af
deginum í faðmi fjölskyldunnar. Það verður ekkert partí-
stand en allir eru auðvitað guðvelkomnir í kraftgöngu.“
Árný hefur ávallt verið þróttmikil. „Móðir mín, sem var
mikið veik, sagði margoft við mig að ég vissi ekki hvað það
væru mikil forréttindi að vera svona orkumikil. Ég var
ábyggilega ofvirkt barn og hefði verið sett á ritalín ef ég
væri á skólaaldri í dag, það er alveg klárt,“ segir hún og
hlær.
Árný sinnir íþróttaþjálfun meðfram hjúkrunarstörfum
og hefur alltaf gert það og vinnur sem stendur í Fljótsdal í
grennd við Kárahnjúkavirkjun. „Þetta er býsna langt í
burtu frá borginni en sem betur fer hafa sprækar konur
hlaupið undir bagga með mér í kraftgöngunum enda veitir
ekki af því þessi íþrótt nýtur sífellt meiri vinsælda.“ Hún
er auk þess mikil fjallageit og hefur verið það frá unga
aldri. „Þegar ég var að byrja þá faldi ég gönguskóna því
þetta þótti svo hallærislegt en síðan hefur andrúmsloftið
snúist mér í hag.“ Sem leiðsögumaður hefur hún lóðsað
fólk um ýmis fjöll og firnindi og skipuleggur ferð upp á
Snæfell næsta sumar.
Árný segist svo sem ekki hafa verið mikið afmælisbarn
í gegnum tíðina en minnist þess þó alltaf með hlýhug þegar
fósturforeldrar hennar gáfu henni kakó og pönnukökur á
afmælisdaginn en það var föst regla. Í dag ætlar hún hins
vegar að gæða sér á súkkulaðiköku sem tengdasonur henn-
ar bakaði. „Ég ætla að bjóða öllum sem mæta í kraftgöng-
una upp á köku og ef þeir taka nógu hraustlega á þarf eng-
inn að fá samviskubit.“
Þökkum innilega samúð og hlýhug við
andlát og útför móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
Guðnýjar Sigurrósar
Sigurðardóttur
til heimilis að Miðtúni 86, Reykjavík.
Magnús Guðmundsson Þuríður Pétursdóttir
Svanhildur Guðmundsdóttir Sverrir Örn Kaaber
Sigurður Þór Guðmundsson May Elí Torsteinsdatter
Þorvaldur Guðmundsson Guðbjörg Vallý Ragnarsdóttir
Ingibjörg Guðmundsdóttir Guðmundur Þorgils Þorkelsson
Einar Ingvar Guðmundsson Brynhildur Axelsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær sonur minn, faðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
Bergþór Njáll Guðmundsson
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju, mánudaginn
19. febrúar, kl 13.30.
María Magnúsdóttir
María Bergþórsdóttir Guðmundur Hjálmarsson
Helgi Bergþórsson
Kristín Bergþórsdóttir Pétur Þór Lárusson
Ingibjörg H. Bergþórsdóttir Guðmundur Kr. Ragnarsson
Guðmundur Örvar Bergþórsson Aðalheiður Gísladóttir
Rúnar Þór Bergþórsson
Albert Valur Albertsson
Brynjar Bergþórsson Apríl Eik Stefánsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Ragnar Sigurður Sigurðsson
Torfufell 31, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju mánudaginn 19.
febrúar kl. 15.00.
Halla Margrét Ottósdóttir
Jakobína Elsa Ragnarsdóttir
Ragnheiður Ragnarsdóttir Ólafur Birgisson
Friðrik Ottó Ragnarsson Kristjana Harðardóttir
Hulda Ragnarsdóttir
Þór Ragnarsson Sigríður Þráinsdóttir
Ragnar Ragnarsson Oddný Westmann
Þórður Úlfar Ragnarsson
Áslaug Ragnarsdóttir
Björg Margrét Sigurgeirsdóttir
Barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og vináttu við andlát eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
Péturs Kristjánssonar
Suðurgötu 14, Reykjanesbæ.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á hjúkrunarheimilinu
Garðvangi fyrir góða umönnun og hlýhug.
Bergþóra Eide Eyjólfsdóttir
Olga Eide Pétursdóttir Ingvar Ingvarsson
Elma Eide Pétursdóttir
Kristján Sigurður Pétursson Hulda Ríkharðsdóttir
Ingólfur Arnarsson Þórhildur Guðlaugsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir minn og bróðir,
Árni Guðmundur
Kristinsson
Kárastíg, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Árbæjarkirkju mánudaginn 19.
febrúar kl. 13.00.
Júlíana Margrét Árnadóttir
Auðunn Friðrik Kristinsson
og fjölskyldur.
Elskuleg móðir okkar, stjúpmóðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
Elín Sigurðardóttir
hjúkrunarheimilinu Eir, Hlíðarhúsum 7,
Reykjavík,
lést miðvikudaginn 14. febrúar. Útförin fer fram frá
Fossvogskirkju föstudaginn 23. febrúar kl. 13.00.
Kristín Þorsteinsdóttir Þórður Jónsson
Sigríður Þorsteinsdóttir
Erla Þorsteinsdóttir Ágúst Haraldsson
Steinunn Þorsteinsdóttir Geir Gíslason
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og vináttu við andlát konu
minnar, móður, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
Ásgerðar Öldu
Guðmundsdóttur
Árskógum 6, Reykjavík.
Páll Gunnar Halldórsson
Erla Linda Benediktsdóttir Friðbjörn Sveinbjörnsson
Halldór Ingólfur Pálsson
Sigurlaug Kristín Pálsdóttir
Lára Margrét Pálsdóttir Svanur Tómasson
barnabörn og barnabarnabarn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir, dóttir, syst-
ir, mágkona, barnabarn og tengdadóttir,
Sólveig Ólafsdóttir,
Efri Brúnavöllum 1,
lést þriðjudaginn 13. febrúar. Jarðarförin fer fram frá
Skálholtskirkju í dag, laugardaginn 17. febrúar kl 13.00.
Hermann Þór Karlsson
Sigurlína Margrét Hermannsdóttir
Ólafur Hjaltason Steinunn Ingvarsdóttir
Hjalti Ólafsson Ragnheiður Líney Pálsdóttir
María Karen Ólafsdóttir Valdimar Bjarnason
Atli Sigurðsson Kattie Nielsen
Snæfríður Ólafsdóttir
Hjalti Gestsson
Karl Stefánsson Þóra Hermannsdóttir
og aðrir aðstandendur.