Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.02.2007, Qupperneq 28

Fréttablaðið - 17.02.2007, Qupperneq 28
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5000. „Ég átti í safni mynd af mér fimm ára gömlum í matrósaföt- um og velti fyrir mér hvernig ég mynda líta út í þannig fötum sem fullvaxta karlmaður.“ Vopnað rán við næturhólf „Ég kannast ekkert við að vera orðin þetta gömul en þetta er víst skjalfest niðri á Hagstofu svo það þýðir lítið að neita,“ segir Árný Helgadóttir, hjúkrunarfræðingur, íþróttaþjálfari og leiðsögumaður, sem er fimmtug í dag. Árný er sannkallaður orkubolti, henni leiðist fátt meira en að liggja í leti og ætlar því að taka á honum stóra sínum í dag. „Ég ætla að taka daginn snemma og kenna tvo kraft- göngutíma. Svo býst ég við að fara í sund en ver restinni af deginum í faðmi fjölskyldunnar. Það verður ekkert partí- stand en allir eru auðvitað guðvelkomnir í kraftgöngu.“ Árný hefur ávallt verið þróttmikil. „Móðir mín, sem var mikið veik, sagði margoft við mig að ég vissi ekki hvað það væru mikil forréttindi að vera svona orkumikil. Ég var ábyggilega ofvirkt barn og hefði verið sett á ritalín ef ég væri á skólaaldri í dag, það er alveg klárt,“ segir hún og hlær. Árný sinnir íþróttaþjálfun meðfram hjúkrunarstörfum og hefur alltaf gert það og vinnur sem stendur í Fljótsdal í grennd við Kárahnjúkavirkjun. „Þetta er býsna langt í burtu frá borginni en sem betur fer hafa sprækar konur hlaupið undir bagga með mér í kraftgöngunum enda veitir ekki af því þessi íþrótt nýtur sífellt meiri vinsælda.“ Hún er auk þess mikil fjallageit og hefur verið það frá unga aldri. „Þegar ég var að byrja þá faldi ég gönguskóna því þetta þótti svo hallærislegt en síðan hefur andrúmsloftið snúist mér í hag.“ Sem leiðsögumaður hefur hún lóðsað fólk um ýmis fjöll og firnindi og skipuleggur ferð upp á Snæfell næsta sumar. Árný segist svo sem ekki hafa verið mikið afmælisbarn í gegnum tíðina en minnist þess þó alltaf með hlýhug þegar fósturforeldrar hennar gáfu henni kakó og pönnukökur á afmælisdaginn en það var föst regla. Í dag ætlar hún hins vegar að gæða sér á súkkulaðiköku sem tengdasonur henn- ar bakaði. „Ég ætla að bjóða öllum sem mæta í kraftgöng- una upp á köku og ef þeir taka nógu hraustlega á þarf eng- inn að fá samviskubit.“ Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, Guðnýjar Sigurrósar Sigurðardóttur til heimilis að Miðtúni 86, Reykjavík. Magnús Guðmundsson Þuríður Pétursdóttir Svanhildur Guðmundsdóttir Sverrir Örn Kaaber Sigurður Þór Guðmundsson May Elí Torsteinsdatter Þorvaldur Guðmundsson Guðbjörg Vallý Ragnarsdóttir Ingibjörg Guðmundsdóttir Guðmundur Þorgils Þorkelsson Einar Ingvar Guðmundsson Brynhildur Axelsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær sonur minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Bergþór Njáll Guðmundsson verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju, mánudaginn 19. febrúar, kl 13.30. María Magnúsdóttir María Bergþórsdóttir Guðmundur Hjálmarsson Helgi Bergþórsson Kristín Bergþórsdóttir Pétur Þór Lárusson Ingibjörg H. Bergþórsdóttir Guðmundur Kr. Ragnarsson Guðmundur Örvar Bergþórsson Aðalheiður Gísladóttir Rúnar Þór Bergþórsson Albert Valur Albertsson Brynjar Bergþórsson Apríl Eik Stefánsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Ragnar Sigurður Sigurðsson Torfufell 31, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju mánudaginn 19. febrúar kl. 15.00. Halla Margrét Ottósdóttir Jakobína Elsa Ragnarsdóttir Ragnheiður Ragnarsdóttir Ólafur Birgisson Friðrik Ottó Ragnarsson Kristjana Harðardóttir Hulda Ragnarsdóttir Þór Ragnarsson Sigríður Þráinsdóttir Ragnar Ragnarsson Oddný Westmann Þórður Úlfar Ragnarsson Áslaug Ragnarsdóttir Björg Margrét Sigurgeirsdóttir Barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vináttu við andlát eigin- manns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, Péturs Kristjánssonar Suðurgötu 14, Reykjanesbæ. Sérstakar þakkir til starfsfólks á hjúkrunarheimilinu Garðvangi fyrir góða umönnun og hlýhug. Bergþóra Eide Eyjólfsdóttir Olga Eide Pétursdóttir Ingvar Ingvarsson Elma Eide Pétursdóttir Kristján Sigurður Pétursson Hulda Ríkharðsdóttir Ingólfur Arnarsson Þórhildur Guðlaugsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur faðir minn og bróðir, Árni Guðmundur Kristinsson Kárastíg, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Árbæjarkirkju mánudaginn 19. febrúar kl. 13.00. Júlíana Margrét Árnadóttir Auðunn Friðrik Kristinsson og fjölskyldur. Elskuleg móðir okkar, stjúpmóðir, tengdamóðir, amma og langamma, Elín Sigurðardóttir hjúkrunarheimilinu Eir, Hlíðarhúsum 7, Reykjavík, lést miðvikudaginn 14. febrúar. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 23. febrúar kl. 13.00. Kristín Þorsteinsdóttir Þórður Jónsson Sigríður Þorsteinsdóttir Erla Þorsteinsdóttir Ágúst Haraldsson Steinunn Þorsteinsdóttir Geir Gíslason barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og vináttu við andlát konu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, Ásgerðar Öldu Guðmundsdóttur Árskógum 6, Reykjavík. Páll Gunnar Halldórsson Erla Linda Benediktsdóttir Friðbjörn Sveinbjörnsson Halldór Ingólfur Pálsson Sigurlaug Kristín Pálsdóttir Lára Margrét Pálsdóttir Svanur Tómasson barnabörn og barnabarnabarn. Elskuleg eiginkona mín, móðir, dóttir, syst- ir, mágkona, barnabarn og tengdadóttir, Sólveig Ólafsdóttir, Efri Brúnavöllum 1, lést þriðjudaginn 13. febrúar. Jarðarförin fer fram frá Skálholtskirkju í dag, laugardaginn 17. febrúar kl 13.00. Hermann Þór Karlsson Sigurlína Margrét Hermannsdóttir Ólafur Hjaltason Steinunn Ingvarsdóttir Hjalti Ólafsson Ragnheiður Líney Pálsdóttir María Karen Ólafsdóttir Valdimar Bjarnason Atli Sigurðsson Kattie Nielsen Snæfríður Ólafsdóttir Hjalti Gestsson Karl Stefánsson Þóra Hermannsdóttir og aðrir aðstandendur.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.