Fréttablaðið - 17.02.2007, Page 92
Endurfundir
gamalla skóla-
félaga eru ein
erfiðasta líf-
reynsla sem
hægt er að
leggja á meðal-
jón. Nær allan
tíma minn í
menntaskóla
bjó ég í herbergi með annarri
stúlku. Við vorum góðar vinkonur
og líklega upplifðum við flesta
mikilvægustu atburði í lífi hins
dæmigerða íslenska unglings
saman.
Leiðir okkar skildu svo með
látum þegar við vorum á loka-
árinu. Mér fannst hún hafa gert
eitthvað á minn hlut. Ég varð reið.
Hún baðst afsökunar. Í um það bil
mínútu velti ég því fyrir mér hvort
ég ætti að rétta fram sáttarhönd.
Ég vissi að það yrði til þess að við
myndum leysa ágreining okkar á
innan við klukkutíma. Ég vissi líka
að ef ég myndi slá á hendi hennar
væri vinskapnum nokkurn veginn
slitið. Síðari kosturinn varð fyrir
valinu, ég flutti í einstaklings-
herbergi og velti mér lengi upp úr
því hve agalega illa hún hafði
komið fram við mig.
Í vikunni hringdi þessi stúlka
svo í mig eins og rauðhærður eng-
ill og bauð mér til samkvæmis
sem ætlað er bekkjarsystkinun-
um. Í þetta sinn þáði ég boð henn-
ar. Í kvöld mun ég standa frammi
fyrir fólki sem ég hef ekki séð
lengi vel. Ég veit ekki hvaða
umræðuefnum ég á að brydda upp
á, leiðast upprifjanir gamalla
skammarstrika óheyrilega og veit
ekki hvort umræður tengdar sam-
félaginu veki lukku meðal við-
staddra. Líklega verður Baugs-
málið fyrir valinu. Það líkist
svolítið sápuóperu, löglærðir
bekkjarfélagar geta vissulega
sýnt hvað í þeim býr í umræðunni
en það geta líka þeir sem eru
komnir á bætur en hafa gaman af
því að slúðra um snekkjur og
tölvupósta sem kunna að valda
kinnroða. Ef ekki væri fyrir þessi
undarlegu réttarhöld myndi ég
varla treysta mér í samkvæmið.
Það er kannski ágætt að þetta mál
verði einhverjum að gagni.
Þú stóðst þig vel, hefðir mátt
halda boltanum betur, synd að
þeir skyldu skora þegar
þú varst í raun búinn að
verja boltann.
Já
kannski!
Hvað
erum við
að gera?
Ég er að
prufa eitthvað
raddgerviforrit
sem Palli setti á
tölvuna mína
Mér dettur ekkert í hug til að
segja.
Pabbi þú
ert að prufa
hugbúnað ekki
að bjóða stelpu
á stefnumót
Ég næ í vínglas
fyrir hann,
venjulega opnar
hann sig meira
við það!
Já, já þú átt bíl ... Og
hvað með það!
Færðu þig!
GRENSÁSVEGI 48 • SÍMI 553 1600
Í NAUTI ERUM VIÐ BESTIR
Áttu von
á gestum?