Fréttablaðið - 17.02.2007, Blaðsíða 100
Tískuheimurinn. Já, það getur verið svikull bisness. Kannski er það
þess vegna sem sjóræningjar eru fatahönnuðum svo endalaus upp-
spretta.
Þessir bandíttar sigldu á skipum sínum úti á reginhafi, hafnir yfir
allar reglur og lög, áttu ástkonu í hverri höfn og raunir gærdagsins voru
aðeins óljós punktur á sjóndeildarhringnum... hin allra mesta rómantík
eins og maður segir. Og það sem meira er, sjóræningjar í ævintýrunum
eru alltaf sætir og sjarmerandi. Sjóræningjar voru rokkstjörnur sinna
tíma og rokkarar eru sjóræningjar nútímans. Lifnaðarhættirnir geta a.
m.k. verið sláandi líkir og ekki eru áhrif rokk og róls á tískuheiminn
minni.
Tónlist almennt hefur óhjákvæmileg áhrif á tískuheiminn. En rokk og
ról hefur líkt og sjóræningjarnir við sig einhverja dularfulla rómantík
sem birtist í óteljandi ótrúlegustu myndum. Til dæmis bara það að
klæðast leðurjakka og támjóum skóm og bruna um eyðimerkur Ameríku
getur verið dæmalaus rock´n´roll rómantík.
Rokk og ról og músík mun alltaf vera hluti af því hvernig fólk
klæðist. Það er til dæmis algengur misskilningur að pönkstefnan hafi
orðið til af sjálfu sér í London. Pönkið átti sér langan aðdraganda í
tónlistar- og lífstílsstefnu sem hafði þróast í New York borg frá því seint
á sjötta áratugnum og fæddi af sér fjölmarga stórkostlega listamenn.
Eins og til dæmis Richard Hell, einn svalasta tónlistarmann sögunnar, en
öryggisnælur sem pönkarar notuðu gjarnan til að halda flíkum sínum
saman eru bein áhrif frá honum.
Vivienne Westwood ásamt góðu teymi, gerði hins vegar byltingu með
pönkinu eins og við þekkjum það í dag, þ.e. með móhíkanakömbunum,
gaddaólunum og öryggisnælunum. Hún gekk lengra í að blanda saman
ungæðislegu atferli, stjórnleysisáhrifum og fatahönnun en nokkur hafði
gert áður. „Fólk ætti að vera yfirlýsingaglaðara og sýna heiminum hvert
takmark þeirra sé,“ segir hin róttæka Westwood. Við Íslendingar eigum
líka okkar eigin fatahönnuð og listamann sem hyllir rokk og ról á
stuttermabolum, jökkum og hettupeysum undir merkinu Dead. Þar fer
saman fallegur boðskapur og falleg list- og fatahönnun og allt saman
siglir það sjóræningjaskipi sínu undir rómantísku rock´n´roll yfirbragði.
Rokk og ról og rómantík
Silvía Night er tískufyrirmyndin
Þegar flett er gegnum tískutímarit
þessa dagana fer ekki á milli mála
að þetta er tískuárstíð öfganna og
verð ég að fá að hrópa húrra fyrir
því. Hverskonar hálfkák er ekki
skemmtilegt og síst í klæðaburði.
Það sem fyrst veldur ofbirtu í
augum er hið glansandi efnaval.
Málmlitaðar og glansandi flíkur
eru almennt hátt skrifaðar. Allt frá
trapisu silfurlituðum sixtís kjólum
yfir í satínbakpoka og satínkraga á
jakka, satínslaufur.. Og hér er ekki
aðeins lögð áhersla á hið hefð-
bundna gull og silfur, einnig brons-
litað, koparlitað sinklitað.. Að
ógleymdum pallíettum í milljóna-
vís! Þær njóta sín best á hotpants
buxunum hjá Chanel. Einn tveir og
allar saman, náum okkur strax í
par!
Geimaldar-framtíðar-róbótafíl-
ingur fær menn einnig til að snúa
sér við í sporunum. Má segja að
Nicolas Ghesquiere hafi sett lín-
una með einni töffaralegustu tísku-
sýningu síðari ára fyrir Balenci-
aga. Hussein Chalayan fylgir fast
á eftir. Risa skyggnisólgleraugu
eru nauðsynleg til að fylgja eftir
þessum stíl. Micro mini pils eru
ofarlega á lista þetta vorið og hvað
varðar pilsfaldinn, munið að því
styttra því betra! Og sólgleraugu á
stærð við undirskálar takk. Hinn
ferski, stílhreini pönkarastíl gildir
í sumarkápu- og sumarkjóladeild-
inni, svart/hvítt eða í sterkum neon
litum, fremur kynlaust og einfalt.
Eins og sjá má þá ægir öllu saman,
stefnum, stílum og áhrifum. Miki-
lægast er að hver finni út hvað
hentar sínum stíl. Galdurinn er að
sanka að sér molum úr ýmsum
áttum og raða því svo saman á töff-
aralegan hátt.
Hvað er skyldueign fyrir
vor/sumar 2007 ???