Fréttablaðið - 17.02.2007, Page 105
Landsliðsmaðurinn
Kristján Örn Sigurðsson hefur
endurnýjað samning sinn við
norska úrvalsdeildarliðið Brann.
Gamli samningurinn hans átti að
renna út í lok næsta tímabils en nú
hefur hann samið til loka ársins
2009.
„Ég er mjög ánægður með að
hafa skrifað undir nýja samning-
inn. Ég vildi vera áfram hjá Brann
því að ég hef gríðarlega mikla trú
á þessu félagi. Mér finnst frábært
að spila á leikvanginum okkar og
hef mikinn hug á að vinna sigra
með Brann, bæði í Noregi og Evr-
ópu.“
Yfirmaður íþróttamála hjá
Brann, Roald Bruun-Hanssen, var
einnig hæstánægður með að
Kristján Örn skyldi velja að vera
áfram í herbúðum Brann.
„Hann er mikilvægur leik-
maður í okkar liði og samningur-
inn við hann þýðir að við getum
haldið stöðugleika í liðinu,“ sagði
Bruun-Hanssen.
Alls eru þrír íslenskir varnar-
menn á mála hjá Brann. Auk
Kristjáns Arnar eru það Ólafur
Örn Bjarnason og Ármann Smári
Björnsson. Ármann og Kristján
hafa átt við meiðsli að stríða
undanfarið.
Brann lenti í öðru sæti norsku
úrvalsdeildarinnar í haust. Liðið
mætir KR á æfingamóti á La
Manga á Spáni í dag.
Hef gríðarlega mikla trú á þessu félagi
Erla Dögg Haraldsdóttir
vann til sex gullverðlauna og
sundfólk úr ÍRB alls til 59
verðlauna á alþjóðlega sundmót-
inu „Wiest Autohauser Cup“ sem
fram fór í Þýskalandi um helgina.
ÍRB endaði í öðru sæti í liða-
keppni mótsins en alls tóku 37 lið
þátt að þessu sinni. Verðlaunin 59
skiptust þannig að 26 voru gull,
18 voru silfur og 15 voru brons.
Erla Dögg Haraldsdóttir var
óumdeilanlega sundkona mótsins,
hún vann til sex gullverðlauna og
var auk þess með stigahæsta
afrek kvenna fyrir 100 metra
bringusund. Erla Dögg vann
einnig 1 silfur. Önnur í hópnum
sem unnu til margra verðlauna
voru Davíð Hildiberg Aðalsteins-
son (3 gull, 3 silfur og 2 brons),
Soffía Klemenzdóttir (3 gull og 3
brons), Helena Ósk Ívarsdóttir (3
gull og 1 silfur) og Birkir Már
Jónsson (1 gull, 3 silfur og 1
brons).
Erla Dögg
vann sex gull
Hrefna Jóhannsdóttir
var með fernu og Olga Færseth
skoraði úr þremur vítaspyrnum í
13-0 sigri KR á Þrótti í Reykjavík-
urmóti kvenna í fótbolta. Hin
mörk KR-liðsins skoruðu Fjóla
Dröfn Friðriksdóttir, Hólmfríður
Magnúsdóttir, Margrét Þórólfs-
dóttir, Ólöf Gerður Ísberg og
Agnes Þóra Árnadóttir. Olga
fiskaði tvö af vítunum sjálf en
þriðja vítið var dæmt eftir að
varnarmaður Þróttar handlék
boltann. Olga lék mjög vel á
miðju KR-liðsins og átti þátt í
flestöllum mörkum liðsins en á
heimasíðu KR kemur fram að
enginn KR-ingur hafði áður
skorað þrennu úr vítaspyrnum.
KR-konur hafa nú skorað 47 mörk
í fjórum leikjum sínum í Reykja-
víkurmótinu.
Þrenna Olgu
öll úr vítum
Óðinn Þorsteinsson úr
FH náði fjórða lengsta kasti
Íslendings frá upphafi þegar
hann kastaði kúlunni 18,70 metra
á öðru Coca Cola móti FH í
Laugardalshöllinni í fyrrakvöld.
Óðinn bætti þar sinn besta
árangur um 19 sentimetra en
hann átti best 18,51 m frá árinu
2005. Þetta er lengsta innanhúss-
kast íslensks kúluvarpara í 17 ár
og fjórða lengsta kast Íslendings í
kúluvarpi innanhúss frá upphafi
en aðeins Pétur Guðmundsson,
Hreinn Halldórsson og Óskar
Jakobsson hafa kastað lengra.
Óðinn ætti að hafa tryggt sér
sæti á EM sem fer fram eftir
tvær vikur en viðmiðið sem
stjórn FRÍ setti fyrir EM
innanhúss í Birmingham var
18,00 metrar.
Óðinn kominn
inn á EM www.syrland.is
Aðstandendur Tónvinnsluskóla
Þorvaldar Bjarna og Sýrland studios
vilja óska nemendum sínum
til hamingju!
Fimm af keppendum í úrslitum
Söngvakeppni Sjónvarpsins 2007 eru
nemendur í Tónvinnsluskólanum.
Tónvinnsluskólinn - nám sem virkar.
Skráningar fyrir
haustnámskeiðið eru hafnar.
Farðu inn á tonvinnsluskoli.is
eða hringdu í 534 9090
og veldu þér námskeið.
TIL HAMINGJU
MEÐ FRÁBÆRAN ÁRANGUR
KÍKTU Á TÓNVINNSLUSKOLI.IS OG VELDU ÞÉR NÁMSKEIÐ
TÓNVINNSLUSKOLI.IS SKRÁNINGARSÍMI: 534 9090