Fréttablaðið - 17.02.2007, Page 106
Keith Vassell ætlar
ekki að láta þriðja möguleikann á
að vinna bikarinn renna sér úr
greipum. Hann spilaði frábærlega
í bikarúrslitaleikjunum 2000 og
2002 en varð í bæði skiptin að
sætta sig við naumt tap.
„Ég get aldrei gleymt þessum
leikjum í Höllinni. Í síðasta leikn-
um sem ég spilaði með KR gegn
Njarðvík vorum við í góðum
málum framan af leik en urðum að
sjá af bikarnum í lokin. Þetta var
mjög sárt tap,” segir Keith, sem
hefur skorað 26 stig og tekið 15
fráköst að meðaltali í bikarúrslita-
leikjum sínum.
„Það var einn af hápunktunum
á mínum ferli að vinna Íslands-
meistaratitilinn með KR og nokk-
uð sem ég mun aldrei gleyma. Ég
vil vinna fleiri titla á Íslandi,“
segir Keith, sem spáir skemmti-
legum úrslitaleik.
„Liðin spila gerólíkan körfu-
bolta. Þeir leggja áherslu á að róa
leikinn og koma boltanum á Byrd,
sem kallar á mikla orku við að
reyna að halda aftur af honum. Við
reynum að keyra upp hraðann og
það er því mikilvægast fyrir bæði
lið að ná að stjórna hraða leiksins í
upphafi,“ segir Keith.
„Ég er ótrúlega spenntur fyrir
þessum leik. Mér finnst ég fá
ákveðin sérréttindi með því að fá
að spila þennan leik því ég hef
ekki gert neitt til þess að hjálpa
liðinu að komast í úrslitaleikinn,“
segir Keith, sem spilaði aðeins í
fimm mínútur í undanúrslitaleikn-
um.
„Þegar ég var spilandi þjálfari
var ég alltaf að hugsa um tvo hluti
í einu. Nú get ég einbeitt mér að
því að spila. Jón Arnar er mjög
góður þjálfari og ég trúi og treysti
á hans skoðanir og leiðbeiningar.
Ég vissi að það var tímaspursmál
hvenær ég kæmist almennilega af
stað,” segir Keith og hann sýndi
það í síðasta leik.
Keith skoraði 21 stig og tók 14
fráköst í 97-81 sigri ÍR á Keflavík
á mánudaginn en leikurinn kom
liðinu aftur á sigurbraut eftir þrjú
deildartöp í röð. „Leikurinn gegn
Keflavík var mjög mikilvægur
fyrir mig því ég vildi sjá það að ég
væri kominn í leikform og gæti
farið að skila einhverju til liðsins.
Ég hafði ekki verið að gera það í
fyrstu leikjum mínum með ÍR,“
segir Keith, sem hefur spilað vel
og verið í sigurliði í báðum leikj-
um sínum gegn Keflavík í vetur
en hann var með 16 stig og 15
fráköst í sigri Fjölni á Keflavík í
októberlok.
„Bestu leikirnir mínir í vetur
hafa verið á móti Keflavík. Kefla-
vík er eitt af fáum liðunum í deild-
inni sem hugsa eins og ég. Þeir
leggja mest upp úr því að vinna
mótherjana á sálfræðihlutanum.
Ég finn mig vel í slíkum kringum-
stæðum,“ segir Keith. Aðsurður
um mikilvægasta hlutverk sitt í
leiknum í dag svarar hann:
„Ég verð að vera áræðinn.
Þegar ég kom fyrst til liðsins var
ÍR að spila frábærlega. Ég taldi
því réttast að ég ætti að koma
rólega inn í leik liðsins og passa
upp á að spila með liðinu. Eftir að
Hreggviður meiddist hefur liðið
þurft meira á mér að halda, ég hef
því reynt að taka meira af skarið
og að miðla reynslu minni,“ segir
Vassell.
Keith gekk til liðs við ÍR-inga
um áramótin eftir að hafa verið
spilandi þjálfari hjá Fjölni framan
af tímabili. „Mér gengur vel að
aðlagast hlutunum hjá ÍR. Þetta er
nokkur breyting því ÍR er að spila
hraðari bolta en Fjölnir var að
gera. Það tók smá tíma að venjast
því en ég tel það vera komið núna.
Við spiluðum við ÍR í einum af
mínum síðustu leikjum með Fjölni
og ég var mjög hrifinn af leik liðs-
ins. Ég sá þá að þetta var lið sem
ég gæti hjálpað til þess að fara að
berjast um titilinn. Ég kom til ÍR
til þess að vinna titla og liðið er
nægilega gott til þess að gera
það,“ segir Keith að lokum.
Keith Vassell varð Íslandsmeistari með KR árið 2000 en hann á enn eftir að vinna bikarinn. Vassell spilar
sinn þriðja bikarúrslitaleik á Íslandi með ÍR gegn Hamri/Selfossi klukkan 16.00 í dag.
Í gær var haldinn fyrsti
fundur nýrrar stjórnar KSÍ. Þar
var verkefnum úthlutað og bar
þar helst að Guðrún Inga
Sívertsen er nýr gjaldkeri
sambandsins. Hún er einnig
formaður fjárhagsnefnd.
Sömuleiðis á hún sæti í fram-
kvæmdastjórn, landsliðsnefnd
kvenna, rekstrarstjórn Laugar-
dalsvallar og framkvæmdanefnd
EM U19 kvenna.
Þá á hún einnig sæti í starfs-
hópi um jafnréttisstefnu KSÍ sem
er ný af nálinni. Formaður
hópsins er Gylfi Dalmann
Aðalsteinsson og auk Guðrúnar á
Ingibjörg Hinriksdóttir sæti í
hópnum.
Guðrún Inga
nýr gjaldkeri
Hin tékkneska Sarka
Zahrobska vann í gær svigkeppni
kvenna á HM í alpagreinum í
Svíþjóð í gær. Hún kom 0,16
sekúndum á undan Marlies Schild
frá Austurríki í mark.
Heimamaðurinn Anja Pärson
varð þriðja og vann sín fjórðu
verðlaun á mótinu.
Gull til Tékk-
lands í sviginu