Fréttablaðið - 17.02.2007, Page 112
Fyrir ári síðan eða svo sá Umferðarstofa sig tilneydda til
þess að ráðast í heila auglýsinga-
herferð í útvarpi, sjónvarpi, blöð-
um og á flettiskiltum til þess að
segja fullorðnu fólki að hætta að
blóta svona mikið í umferðinni.
Ekki síst var lögð áhersla á það að
við blótuðum ekki svona mikið
frammi fyrir yngstu kynslóðinni,
sem gæti pikkað upp taktana. Í
nokkra mánuði mátti sjá ungan,
reffilegan dreng gefa fólki fingur-
inn á strætóskýlum. Ekki var það
beint uppbyggileg sýn í morgun-
sárið, en boðskapurinn komst til
skila. Menn verða að reyna að
slappa af í umferðinni. Sýna hver
öðru kurteisi. Vera góðar fyrir-
myndir fyrir blessuð börnin.
hef reynt að taka þetta til mín
og um nokkurt skeið hef ég reynt
að blóta bara kurteislega þegar
dóttir mín er með í bílnum og ég
sit fastur í umferðarteppu. „Ja,
hérna,“ segi ég og ber létt í stýrið.
„Það er aldeilis hnúturinn!“
persónulega átak mitt
hefur þó verið byggt á því, að ég
hef leyft mér að vona að í umferð-
armálum höfuðborgarinnar yrðu
einhverjar úrbætur gerðar í bráð.
Um leið og ég hef bælt niður blótið
og hrakyrðin í þágu barnauppeldis
– að kröfu Umferðarstofu – hef ég
jafnframt um leið farið með róandi
orð í huganum: „Svona, svona,“ hef
ég hugsað. „Þessir umferðarhnút-
ar verða horfnir eftir nokkur ár.
Þá getur maður keyrt inn í Garða-
bæ úr Vesturbænum eins og ekk-
ert sé, til dæmis í gegnum Öskju-
hlíðargöng.“
og gefur að skilja var mitt
kurteisa, en viðkvæma, sálartetur
því ofurspennt þegar ný sam-
gönguáætlun var kynnt á dögun-
um. Upphæðirnar sem rötuðu í
fyrirsagnirnar voru vissulega
nógu andskoti (úps, þar blótaði ég,
afsakið…) háar. Um 380 milljarðar
eiga að rata í vegamál á komandi
12 árum, hvorki meira né minna.
urðu mér því auðvitað veru-
leg vonbrigði – ekki síst í ljósi þess
hversu vel mér hefur tekist að
haga mér kurteislega í umferðinni
undanfarið út af voninni sem bjó í
brjósti mér um umbætur – að fá
þær upplýsingar að í þessari sam-
gönguáætlun er ekki gert ráð fyrir
því að umferðarúrbætur á höfuð-
borgarsvæðinu þarfnist fjármuna
eða forgangs. Hér er gert ráð fyrir
að íbúum svæðisins verði gert að
sitja í sömu umferðarteppunum
meira eða minna næstu 12 árin.
Stórar framkvæmdir á svæðinu
sem þarna eru boðaðar varða aðal-
lega leiðirnar út af svæðinu og --
reyndar, guði sé lof -- inn á það
aftur. Hins vegar er ekki gert ráð
fyrir því að fólk þurfi greiðar leið-
ir til þess að ferðast innan höfuð-
borgarsvæðisins óblótandi, og er
þá sama hvort litið er til reiðhjóla,
strætóa eða bíla.
við þetta geri ég ráð
fyrir að ætlun yfirvalda sé að
Umferðarstofu verði gert að halda
áfram auglýsingaherferðum þar
sem við erum vinsamlegast beðin
um að hætta að blóta. Ég lofa engu í
þeim efnum. Ef þessi samgöngu-
áætlun gengur eftir er útlit fyrir að
dóttir mín muni í framtíðinni bölva
og ragna í umferðinni hvort sem er.
Ekki blóta
BESTI VINURINNEINN LÉTTUR, ÍSKALDUR
Á LÆKKUÐU VERÐI
Í FEBRÚAR
©
In
te
r I
KE
A
Sy
ste
m
s B
.V
.2
00
7
www.IKEA.is
Opið virka daga
Opið laugardaga
Opið sunnudaga
10.00 - 20.00
10.00 - 18.00
12.00 - 18.00
IKEA Restaurant & Café
Veitingastaður opnaður klukkutíma fyrr en verslun
... í baðherberginu
Sænskar kjötbollur
350,-
RACKEN kassi f/bómull
ryðfrítt stál L15xB8xH10 cm 490,-
ATRÄN læsanlegur skápur
L35xB15xH45 cm 1.990,- LETTEN rúðuskafa
B25xH22,5 cm 95,-
HULINGEN ruslafata m/fótstigi
ryðfrítt stál Ø24 H33 cm 1.490,-
MOLGER spegill
B60xH60 cm 2.990,-
RÖNNSKÄR hillueining
L42xB40xH176 cm 4.950,-
MOLGER vegghilla
L60xB12,5 cm 590,-
KATTUDDEN snyrtitöskur 2 stk.
LILLHOLMEN sápudæla
H16 cm 690,-
LILLHOLMEN sápudiskur
L13xB9xH5 cm 490,-
BLANKEN sturtuhilla
L25xB11xH50 cm 590,-
LIDAN körfur 4 stk. 1.290,-
GRUNDTAL
handklæðahengi
B46xH25 cm 1.490,-
LILLHOLMEN
klósettbursti
Ø10 H46 cm 1.390,-
GRUNDTAL
klósettrúllustandur
Ø20 H62 cm 990,-
LIDAN körfur 2 stk.
Ø26 H25/Ø21 H19 cm 990,-
490,-
með kartöflum, týtuberjasultu og
rjómasósu (10 stk.)
IKEA Restaurant & Café
Rjómabolla
og kaffi
245,-
alla helgina
Skpiulag