Fréttablaðið - 10.03.2007, Side 13
[Hlutabréf]
Viðskiptatímaritið CNBC Europ-
ean Business hefur útnefnt Indu-
stria sem eitt af 50 framsæknustu
fyrirtækjum Evrópu.
Dómnefnd segir að Industria
gæti reynst „eitt mikilvægasta fyr-
irtækið í samruna sjónvarps og
stafrænna miðla í Evrópu“. Út-
nefningin er í flokki upplýsinga-
tæknifyrirtækja, en þar er að auki
að finna fyrirtækin Skype, Tiscali,
Aresa og Icera.
Umsjón með matinu hafði al-
þjóða ráðgjafarfyrirtækið PRTM,
en meðal þeirra þátta sem litið var
til í matinu var umsögn 60 fyrir-
tækja víðs vegar um álfuna.
Tímaritið segir meðal annars að
metnaður Industria endurspeglist
meðal annars í staðsetningu skrif-
stofa fyrirtækisins, í Bretlandi, Ír-
landi, Búlgaríu og Kína. „Þessi
tígur frá Íslandi sérhæfir sig í hug-
búnaði til tengingar breiðbands-
neta og þráðlausra neta. Lausnir
þess fyrir stafrænt sjónvarp og
aðra þjónustu, sem ganga undir
nafninu Zignal, hafa vakið mikla
eftirtekt,“ segir í umsögninni.
Guðjón Már Guðjónsson, fram-
kvæmdastjóri Industria, segir til-
nefninguna hafa komið þægilega á
óvart. Í tilkynningu félagsins segir
hann framsækni og nýsköpun Ind-
ustria ekki bara hafa birst í vöru-
þróun heldur einnig í innri ferlum
og þáttum sem geri fyrirtækinu
kleift að svara hraðar kröfum
markaðarins.
Zignal-hugbúnaðurinn hefur
verið á markaði á annað ár. Á IPTV
World Forum-sýningunni í Lund-
únum í byrjun mánaðarins sýndi
Industria nýjustu lausnir sínar
fyrir stafrænt sjónvarp.
Industria meðal 50 framsæknustu
Fyrir aðalfundi Kaupþings liggur
tillaga að laun stjórnarmanna hækki
um þriðjung á milli ára. Laun stjórn-
armanna voru 300 þúsund krónur á
mánuði en munu hækka upp í 400
þúsund gangi tillagan eftir. Laun
stjórnarformanns eru nú tvöföld
laun stjórnarmanns en fara upp í
800 þúsund krónur á mánuði.
Til stjórnar hafa eftirtaldir boðið
sig fram: Sigurður Einarsson,
stjórnarformaður Kaupþings, Hjör-
leifur Jakobsson, forstjóri Kers,
Antonios P. Yerolemou, stjórnarfor-
maður KFF, Ásgeir Thoroddsen hrl.,
Bjarnfreður Ólafsson hdl., Brynja
Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri
Norvik, Gunnar Páll Pálsson, for-
maður VR, Niels de Coninck-Smith,
forstjóri Ferrosan og Tommy Pers-
son, forstjóri Länsförsäkringar.
Sjálfkjörið er til stjórnar. Finnur
Ingólfsson gengur út úr eldri stjórn
en Antonios P. Yerolemou kemur inn
úr varastjórn.
Stjórn fær þriðj-
ungshækkun
Feðgarnir Björgólfur Thor Björ-
gólfsson og Björgólfur Guðmunds-
son eru einu Íslendingarnir sem
verma lista bandaríska viðskipta-
tímaritsins Forbes yfir 1.000 auð-
ugustu menn í
heimi.
Björgólfur Thor
er í 249. sæti á lista
tímaritsins og fer
upp um 101 sæti á
milli ára. Forbes
segir eignir hans
metnar á 3,5 millj-
arða bandaríkja-
dala, jafnvirði um
236 milljarða íslenskra króna. Til
samanburðar situr breski ofurhug-
inn og auðkýfingurinn sir Richard
Branson í 230. sæti á lista Forbes.
Faðir Björgólfs Thors, Björgólf-
ur Guðmundsson, stjórnarformað-
ur Landsbankans, vermir 799.
sætið. Eignir hans nema 1,2 millj-
örðum dala, jafnvirði 106,4 millj-
arða íslenskra króna.
Auðugir feðgar
á lista Forbes
Óbindandi tilboðum í samheita-
lyfjahluta þýska lyfjarisans
Merck á að skila inn fyrir næsta
mánudag samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins. Í framhaldi af því
mun Merck velja fáein félög til
að halda áfram í ferlinu og gera
áreiðanleikakönnun.
Stjórnendur Actavis og ind-
verska lyfjafyrirtækisins Ran-
baxy eru þeir einu sem hafa opin-
berlega lýst yfir áhuga á Merck.
Nöfn ísraelska félagsins Teva, ind-
verska félagsins Dr. Reddy‘s,
bandaríska félagsins Mylan, þýska
félagsins Stada, auk nokkurra öfl-
ugra fjárfestingarsjóða, hefur
einnig borið á góma í fjölmiðlum.
Búist er við því að að minnsta
kosti fjórir milljarðar evra fáist
fyrir félagið. Það nemur um 355
milljörðum króna. Söluferlinu
verður að öllum líkindum lokið í
maí eða júní á þessu ári.
Söluferli Merck
hefst eftir helgi