Fréttablaðið - 10.03.2007, Qupperneq 50
heimaerbest
Óhætt er að segja að allt sé í röð
og reglu í vinnuherbergi Rúnars
Helga Vignissonar. „Mér finnst
best að hafa allt á sínum stað, þótt
hlutirnir eigi stundum til að hverfa
með dularfullum hætti,“ viður-
kennir höfundurinn sem hefur
vinnuaðstöðu á heimili sínu. „Ætli
það sé ekki frekar einhverjum
ærsladraugum um að kenna, held-
ur en hirðuleysinu í mér,“ bætir
hann við og hlær.
Skrifstofa Rúnars hefur yfir
sér forvitnilegan blæ og er frjó-
semisstytta af karli, vel vöxnum í
alla staði, á meðal þess sem vekur
eftirtekt. „Þessi stytta er frá Nýju-
Gíneu,“ útskýrir Rúnar. „Ég hef
mjög gaman af henni og sömuleið-
is skel, sem ég fékk gefins á hjól-
reiðaferðalagi um Jakobsstíginn á
Spáni. Þessir hlutir eru þó hér
fyrst og fremst vegna skemmt-
anagildis, en ekki til innblásturs.
Hvað þá að ég geymi þá hjá mér
vegna hjátrúar. Ætli macintosh-
tölvan mín, öðru nafni guðdómur-
inn, sé ekki eina undantekningin
þar á en hún er mér lífsnauðsyn-
leg við ritstörfin.“
Að sögn Rúnars hafa heilu
verkin fæðst í vinnuherberginu,
en hugmyndirnar kvikna yfirleitt
annars staðar. „Ein þeirra kvikn-
aði til að mynda þegar ég var á
skíðum með fjölskyldunni. Sumum
lýstur niður í kollinn á mér þegar
ég læt fara vel um mig í sérstök-
um stól hérna í húsinu. Allt saman
endar þetta í tölvunni. Minn vinnu-
dagur er í raun eins og hvers ann-
ars skrifstofumanns. Ég byrja að
skrifa um níu og hætti yfirleitt
fimm. Svo heldur þetta áfram að
gerjast innra með mér, enda sagt
að rithöfundar séu alltaf að störf-
um.“
roald@frettabladid.is
Með frjósemis-
styttu í stúdíóinu
Rúnar Helgi Vignisson, rithöfundur og þýðandi, seg-
ist ekki vera hjátrúarfullur og lætur því ekki á sig fá þótt
draugar leiki lausum hala í stúdíóinu hans.
Rúnar komst yfir þessa skel á hjólreiðar-
ferðalagi um Jakobsstíg á Spáni.
Rúnari áskotnaðist þessi vel vaxna
frjósemisstytta í Nýju-Gíneu.
Rúnar að störfum í vinnuherberginu sem er búið góðu bókasafni, bókum frá öllum heimshornum. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
10. MARS 2007 LAUGARDAGUR10