Tíminn - 29.09.1979, Blaðsíða 1

Tíminn - 29.09.1979, Blaðsíða 1
Síðumúla 15 • Pósthólf 370 • Reykjavík • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsímar 86387 & 86392 Rússar neita að lækka olíuna • áfram leitað að mörkuðum annars staðar HEI — Samninganefndiri/ sem verið hefur í Sovét- ríkjunum undanfarna viku til að semja um kaup á olíuvörum fyrir árið 1980/ hefur fengið loforð Sovétmanna um að þeir selji Islendingum 90 þúsund tonn af bensini, 200 þús. tonn af gasolfu og 136 þús. tonn af svartolíu auk þess að fá loforð um 18 þús. tonn til viðbótar af svartoliu á yfirstandandi ári. Þessar tölur mega síðan rokka um 10% til eða frá. Sovétmenn höfnuöu hins vegar alveg óskum Islendinga um breytingar á veröviömiöun viö dagprisa á Rotterdammark- aöi á þeim forsendum aö þeir selji engar fullunnar oliuvörur til neins rikis á ööru veröi. Þá fóru þeir einnig fram á hækkun flutningskostnaöar, sem til þessa hefur veriö nokkuö hag- kvæmur. Einnig höfnuöu Sovétmenn óskum tslendinga um kaup á hráoliu, sem tslendingar gætu þá fengiö hreinsaöa annars staöar. Töldu þeir sig ekki hafa hráolíu aö selja umfram þaö er þeir selja öörum þjóöum nú þegar og eigi meira aö segja i erfiöleikum meö oliu heima- fyrir. Aö sögn viöskiptaráöherra, Svavars Gestssonar, fól rikis- stjórnin samninganefndinni aö leggja áherslu á aö tryggja Is- lendingum engu aö slöur um- samiöoliumagn þótt breytingar fengjust ekki á verömiöuninni, og fá þá 4-6 vikna frest til aö taka endanlega afstööu til máls- ins. Sagöi Svavar aö þennan frest veröi aö nota til hins ýtrasta. Leggur hann áherslu á aö ollu- viöskiptanefndin, undir forystu Jóhannesar Nordal, starfi af krafti næstu vikur og kanni út I gegn alla hugsanlega möguleika á þvi aö tslendingar fái keypta oliu annars staöar, þannig aö enginn vafi leiki á þvi hvaöa kosti viö höfum um aö velja áöur en endanlega er gengiö til samninga viö Sovétmenn. Svavar minnti á aö ýmsar stórar yfirlýsingar heföu komiö hér fram i fjölmiölum um betri kosti um oliuviöskipti. Þetta yröi aö kanna i botn. Vissulega væri vel þegiö ef einhver gæti útvegaö okkur oliu á hagstæö- ara veröi, en ábendingarnar yröu þá aö standast. A þriöju siöu er getiö um til- lögur og niöurstööur úr skýrslu oliuviöskiptanefndar sem starf- aö hefur 1 sumar aö könnun á hagkvæmari oliuviöskiptum. Þetta fyrirhyggjusama fólk hefur sennilega haft i nógu aö snúast viö sláturgeröina I gær og kannski hef- ur þaö náö þvi aö gæöa sér á rjúkandi heitu sl átri i gærkvöldi. Þeim sem óvanir eru óar kannski viö aö demba sér út I sláturgerö, en viöa safnast lika fjölskyldan saman og notfærir sér þá kunnáttu þeirra eidri og reyndari til aö nema af þeim sláturgeröarlistina. Tlmamynd Róbert „Stöðva verður ofríki menntamálaráðherra” • kennarar í Reykjanesumdæmi álykta um Grindavikurmálið Algjört samkomu- lag um nýtt fiskverð Kás —-Tvenntóvenjulegt átti sér staö viö ákvöröun almenns fiskverös á fundi yfirnefndar Verölagsráös sjávarútvegsins i gær. t fyrsta lagi varö algjör sam- staöa um þaö innan nefndar- innar, og I annan staö varö þaö tilbútö innan tilskilins tlma, en hvort tveggja heyrir til sérstakrar undan- tekningar nú i seinni tíö. Hiö nýja fiskverö felur i sér aö skiptaverð til sjó- manna hækkar um 9.2%. Aftur á móti hefur hiö nýja fiskverö i ekki i för meö sér nema 7% kostnaöarauka fyrir fiskvinnsluna, þar sem forsenda fyrir veröinu er aö oliugjald til ftskiskipa, sem veriö hefur 15% mestan hluta yfirstandandi verö- timabils, veröi lækkaö njöur i 9% frá 1. október nk., þegar hiö nýja verö tekur gildi. Jafnframt veröur þaö 3% oliugjaid sem komið hefur til skipta fellt inn i fisk- verðiö. Verðið gildir til ársloka, og er það miðaö viö þá stæröar- flokkun, sem giit hefur. Verðlagsráöiö getur þó ákveöiö aö taka upp aöra stærðarflokkun, þannig aö fiskur veröi verölagöur eftir þyngd i staö lengdar frá og meö 1. nóvember 1979, enda feli sú flokkunarbreyting ekki i sér veröbreytingu, þegar á heildina er litiö, miöaö viö ársafla. Frá og meö 15. nóvember er heimilt að segja veröinu upp meö viku fyrirvara, ef oliverð til fiskiskipa fer verulega fram úr þvi veröi, sem ætlað er að gildi i októberbyrjun. GP Stjórn 9. kjörsvæðis Sambands grunnskóla- kennara (Reykjanes- umdæmi) fundaði í gær um //Grindavíkurmálið" og þær furðulegu aðferðir sem notaðar voru við veitingu skólast jóra- embættisins við grunn- skólann í Grindavik. 1 ályktun fundarins segir: „Fundur stjórnar 9. kjörsvæöis SGK haldinn 28. september mót- mælir harölega gerræöislegum vinnubrögöum menntamálaráö- herra sem koma fram viö veitingu stööu skólastjóra Grunn- skóla Grindavikur. Viö stööu- veitinu þessa þverbrýtur ráö- herra 8. grein laga um embættis- gengi opinberra starfsmanna frá 1978 meö þvi aö sniöganga réttindamann er sótti um stööuna. Fundurinn beinir þvi til stjórnar SGK aö fast veröi haldiö á máli þessu og I eitt skipti fyrir öll stöövaö ofriki menntamála- ráöherra i málefnum kennara. Mál þetta snertir hagsmuni allra kennara og þvi veröa þeir aö standa saman I þéttri fylkingu um réttindi sln og sins stéttarfélags”. Stjórnarfundinn sátu Ellert Borgar, Albert Már Steingrims- son, Magnús Jón Arnason og Ragnar Gislason úr Hafnarfiröi og Guöni ölversson úr Grindavik. SJ ÖFN ]6IR SI GÚR Fí ÍLAGS- Mi ÁLÁ- R i ÍÐI ástæðan ekki tilgreind Kás — I gær var tekið fyrir bréf frá Sjöfn Sigurbjörnsdóttur á borgarráðsfundi/ þar sem hún tilkynnir að hún segi sig úr Félags- málaráði borgarinnar. Ekki er tilgreint i bréf- inu hvaða ástæður liggja til þess. Það liggur því ijóst fyrir að kjósa verður nýjan fulltrúa fyrir Alþýðu f lokkinn i Félagsmálaráð og einnig varafuiltrúa/ þar sem varafulltrúi Sjafnar mun nú fluttur úr borginni. Auk Sjafnar voru I Félags- málaráöi: Gerður Steinþórs- dóttir, Guörún HeJgadóttir, Þorbjörn Broddason, Markús örn Antonsson, Hulda Valtýsdóttir og Bessi Jóhannsdóttir. Hús ang- istarinnar — sjá bls. 10-11 Amarftug innanlands — sjá bls. 10-11 Reykjavíkur- einokunin — sjá bls. 9

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.