Tíminn - 29.09.1979, Blaðsíða 13

Tíminn - 29.09.1979, Blaðsíða 13
ÍÞROTTIR ÍÞRÓTTIR i Laugardagur 29. september 1979 13 Deckarm liggur enn í dái — en kemst þó til meðvitundar annaö slagið, en þá I stutta stund Handknattleikskappinn Joachim Deckarm, sem slasaöist illa á höföi I Evrópu- leik meö Gummersbach i Ungverjalandi sl. vetur, á mjög langt I land meö aö ná sér eftir meiöslin. Deckarm er á spitala i Köln — og yfirleitt meövitundar- laus. Deckarm raknar þó úr dáinu annaö veifiö og þá er hægt aö ræöa viö hann — hann viröist skilja allt þaö, sem viö hann er sagt og svarar spurningum. En hann er mjög máttfarinn og fellur yfirleitt fljótlega aftur idá yfir sig þreyttur. Læknar i V-Þýska- landi eru bjartsýnir á aö Deckarm nái sér — en hann á eftir að yfirstíga mikla erfið- leika á braut sinni til aö ná heilsunni fullkomlega aö nýju. - segir Jóhann Ingi Gunn- arsson, landsliðsþjálfari — //Þetta verður tvímælalaust erfið- asta keppni, sem íslenskir handknatt- leiksmenn hafa tekið þátt í — það verða leiknir 8 landsleikir á aðeins 10 dögum", sagði Jóhann Ingi Gunnarsson, lands- liðsþjálfari í handknattleik, en landslið- ið skipað leikmönnum undir 21 árs er á förum til Danmerkur og Svíþjóðar, þar sem heimsmeistarakeppni i þessum aldursflokki fer fram 23. október til 2. nóvember. 24 Iönd taka þátt f keppninni og keppa íslendingar I riöli ásamt Rússlandi, V-Þýskalandi, Portú- gal, Hollandi og Saudi-Arabiu. Jóhann Ingi hefur valiö 16 leik- menn til fararinnar. Hafa þeir æft mjög vel frá þvl I sumar og er áhuginn mikill hjá strákunum. Landsliðs- hópurinn Unglingalandsliöiö, sem tekur þátt i HM-keppninni i Danmörku og Sviþjóö, veröur skipaö þessum leikmönnum: Markveröir: Brynjar Kvaran, Val SigmarÞ. Óskarsson, Þór Ólafur Guðjónsson, Haukum Aörirleikmenn: Alfreö Gislason, K.A., Andrés Kristjánsson, Haukum, Arsæll Hafsteinsson, I.R., Atli Hilmars- son, Fram, Birgir Jóhannsson, Fram,Friörik Þorbjörnsson K.R. Guömundur Magnússon F.H., Guömundur Þóröarson I.R, Kristján Arason F.H. Siguröur Gunnarsson Vlkingi, Siguröur Sveinsson Þrótti Stefán Halldórsson Val, Theodór Guö- finnsson Fram. — LokaundirbúningL . fyrir keppnina hefst 9. ok.ober og verða 18 æfingar fram aö keppn- inni. Viö æfum stift fyrstu 5 dag- ana og þá eins og atvinnumenn, sagöi Jóhann Ingi. — Hverjir eru möguleikar Is- lands f keppninni? — Viö gerum okkur ánægöa meö aö keppa um 9.-12. sætiö — þaö er aö segja, ef viö náum aö vinna sigur yfir Hollandi, Portú- gal og Saudi-Arabiu i riðlakeppn- inni. Viö eigum enga möguleika gegn Rússum, sem eru núverandi heimsmeistarar — en viö munum reyna aö tapa fyrir þeim meö sem minnstum mun. Aftur á móti eigum viö ágæta möguleika á aö leggja V-Þjóö- verja aö velli. Ef viö náum aö sýna mjög góöan leik gegn þeim, ætti sigur aö geta náöst. Þaö væri óneitanlega gaman aö klekkja á Vlado Stenzel, landsliösþjálfara V-Þjóöverja, sagöi Jóhann Ingi. Islenska liöiö mun leika leiki sina á ýmsum stööum á Sjálandi — og veröur mikiö um feröalög I sambandi viö hvern leik. Lengsta feröin mun vera um 100 km hvora leið. —SOS • JÓHANN INGI GUNNARSSON.... landsliösþjálfari f hand- knattleik. Gunn- laugur og Karl dæma í HM Handknattleiksdómararnir Gunnlaugur Hjálmarsson og Karl Jóhannsson — báöir fyrrverandi landsliösmenn I handknattleik, dæma leiki i heimsmeistara- keppninni — 21 árs og yngri, sem fer fram i Danmörku og Svfþjóö. Þetta er i fyrsta skipti sem islenskir dómarar dæma á stór- mótum erlendis. Tékkar, Frakkar og Pólveriar... — leika hér landsleiki í handknattleik í vetur Tékkar eru væntanlegir til Reykjavíkur um miðjan október og leika hér þrjá landsleiki í handknattleik — þar af einn gegn lands- liði skipuðu leikmönnum 21 árs og yngri, sem tekur þátt i HM-keppninni í Dan- mörku og Svíþjóð. Þaö verður ekki mikiö um landsleiki f handknattleik I vetur. Pólverjar koma hingaö í byrjun janúarog leika hér tvo landsleiki. Héöan fara siöan islenska og pólska landsliöið saman til V- Þýskalands, þar sem liöin taka þátt f Baltic Cup, ásamt V-Þýska- Enn tapar Fram 1 gærkvöldi voru leiknir þrir leikir i Reykjavikurmót- inu I handknattieik. IR-ingar geröu jafntefli viö Armann 15:15 I jöfnum og skemmtilegum leik. Þá sigraöi hiö unga og efnilega liö KR liö Fram 19-17. Einn leikur var leikinn f meistaraflokki kvenna og þar tókst Val aö merja sigur á KR, úrslitin 12:11 Val f vil. Næstu leikir veröa leiknir á morgun I Laugardalshöll- inni. landi, Rússlandi, A-Þýskalandi, Noregi og Danmörku um miöjan janúar. Þá koma Frakkar hingaö i lok janúarog leika hér tvo landsleiki. Stefnt er siöan aö þvi aö fá lands- leiki I lok keppnistimabilsins, en enn er ekki ljóst hverjir mót- herjarnir veröa. Fer Thomas til Wolves? John Barnweil, framkvæmda- stjóri Úlfanna, rær nd aö þvi öllum árum, aö fá Everton-leik- manninn Dave Thomas til Clfanna. Barnwell segir aö þeir John Richards og Andy Gray þurfi á góöum útherja aö haida — og aö Thomas sé maðurinn, sem þeir þurfi á aö halda. Everton er til- búiö aö selja Thomas á 400 þús. pund, en þá peninga myndi félagiö nota til aö kaupa David MQIs frá W.B.A. á 500 þús. pund. Úlfarnir eru tiibúnir til aö borga 400 þús. pund fyrir Thomas, en nú er spurningin— vill hann fara til Úlfanna? — við leikum 8 landsleiki á 10 dögum” Heimsmeistarakeppni Danmörku og Svíþjóð 21 árs og yngri í Erfiðasta keppni, sem ísland hefur tekið þátt í...

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.