Tíminn - 29.09.1979, Page 5
Laugardagur 29. september 1979
5
Siegfried Kobilza og Simon H. Ivarsson
Spönsk gítarmúsík
um landíð
Gitarleikararnir Simon H. ívars-
son og Siegfried Kobilza frá
Austurriki eru að hefja tónleika-
ferð^um landið, og spila þeir
eingöngu spánska gitarmúsik,
annars vegar spánska klassiska
músik og hins vegar flamingo-
músik. Aheyrendum gefst þar
með einstakt tækifæri að kynnast
nánar þessari vinsælu þjóðar-
músik Spánverja, en hún er kynnt
sérstaklega á prógramminu.
Tónleikaferðin hefst 29. sept. og
stendur yfir til 12. okt. og er
leitast við að fara sem vfðast.
Þeir félagar byrja að spila i
félagsheimilinu i Vestmanna-
eyjum 29. sept. en daginn áður
verða þeir með kynningu á hljóð-
færi sinu I tveimur skólum.
Mánudaginn 1. okt. spila þeir i
Menntaskólanum á Akureyri eftir
setningu skólans.
A þriðjudeginum 2. okt. verður
haldið til Húsavikur og spilað
verður i tveim skólum þar, og
tónleikar síðan um kvöldið.
Miðvikudaginn 3. okt. spila Simon
og Siegfried i Norræna húsinu i
Reykjavik kl. 9. Siðan verður
haldið til Austfjarða og á tima-
bilinu 4. okt.-7. okt. verða tónleik-
ar á Egilsstöðum, Neskaupstað,
Seyðisfiröi og Eskifirði.
Aætlað er að spila síðan i
Njarðvik og þann 10. okt. i
Borgarfirði og að lokum i Háskóla
Islands þann 11. okt.
A efnisskrá þeirra Simonar og
Siegfrieds er spönsk klassisk
músik eftir Albeniz, Gaspar Sanz
Granados og fl., en eftir hlé er
eingöngu flamingomúsik og hefur
Siegfried sett þrjú þeirra verka
saman, og verða þau frumflutt
hér.
Kaupfélag Árnesinga
auglýsir eftir vönu starfsfólki til almennra
bókhalds- og skrifstofustarfa.
Umsóknir sendist til skrifstofustjórans,
sem veitir allar upplýsingar um störfin.
Kaupfélag Árnesinga,
Selfossi
Kaffidagur
Eyfiröinga-
félagsins
um helgina
FI Það er þegar oröin árleg
hefð á hverju hausti, að
Eyfirðingafélagið i Reykja-
vík efnir til kaffidags að
Hótel Sögu, þar sem öllum
Eyfirðingum 67 ára og eldri
er boðið til kaffiveislu, auk
þess sem sitthvað annað er á
dagskrá.
Að þessu sinni er kaffidagur
Eyf irðingafélagsins nk.
sunnudag, 30. sept. á Hótel
Sögu og verður húsið opnað
kl. 14.00.
1 frétt frá Eyfirðinga-
félaginu segir, að mörg
undanfarin ár hafi mikið
fjölmenni komið á Sögu
þennan dag og er það von
félagsins, aö sem allra flestir
fjölmenni, bæði hinir sér-
stöku boðsgestir sem og allra
flestir norðanmenn.
Eins og á fyrri kaffidögum
verður basar með miklu
úrvali muna og eins og fyrr
mun allur ágóði renna til
menningar- og góögerðar-
mála i Eyjafiröi. Eyfiröinga-
félagið verður 40 ára á næsta
ári.
CPVTkTTTrTlllTllTgJ*
1. 2—6
OPIÐ HÚS
Bosch
Hr. VOSER sýnir og
kennir notkun á
BOSCH verkfærum.
Kynnist möguleikum
BOSCH
handverkfæra nna
Husqvarna
Frú Erla Ásgeirs-
dóttir sýnir og kennir
á HUSQVARNA
saumavélar.
Það er hagur heimil-
isins að nota HUS-
QVARNA saumavél.
Wolfkraft
Hr. DUNEBACKE
kennir meðferð á
WOLFKRAFT verk-
færum.
Með WOLFKRAFT
margfaldast mögu-
leikar til heima-
smiða
Husqvarna
Frú Þórhildur Gunn-
arsd. sýnir og kennir
notkun m.a. á
CARDINAL upp-
þvottavél. HUS-
QVARNA er heim-
ilisprýði.
ATHUGIÐ AÐ HUSQVARNA CAMEE MYNDALISTINN GILDIR SEM HAPPDRÆTTISMIÐI
VINNINGAR: 1 Bosch borvél 1122 — 5 sjónvarpsleiktæki — 3 Husqvarna reykskynjarar
Börn fá gefins
Sanyo blöðrur meðan birgðir endast
u/maí S^zehböo-n h.f.
SUÐURLANDSBRAUT 16 - SÍMI 35200 - 105 REYKJAVfK
Verslunarstjórastörf
óskum að ráða verslunarstjóra i vara-
hlutaverslun á Selfossi og í útibú okkar I
Hveragerði.
Upplýsingar i sima 99-1201.
Kaupfélag Árnesinga.
Kýr til sölu
Til sölu eru 10 kýr.
Upplýsingar veitir Bjarni Valtýr Guðjóns-
son hjá Kaupfélagi Borgfirðinga, Borgar-
nesi. Simi: 93-7200.