Tíminn - 29.09.1979, Side 6
6
Laugardagur 29. september 1979
Wmáww
Ctgefandi Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Ritstjórar: l>ór-
Úr ræðu Benedikts Gröndal á allsherjarþinginu:
arinn Þórarinsson og Jón Sigurösson. Ritstjórnarfulltriii:
Oddur ólafsson. Fréttastjóri: Kjartan Jónasson. Auglýs-
ingastjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur,
framkvæmdastjórn og auglýsingar SIÐumiUa 15 slmi
86300. — Kvöldslmar blaöamanna: 86562, 86495. Eftir kl.
20.00: 86387. Verö i lausasölu kr. 200.00. Askriftargjald kr.
^ 4000 á mánuöi. _________________Blaöaprent. J
Óskadraumur Sjálf-
stæðismanna
Þeir, sem lesa stjórnmálaskrif málgagna Sjálf-
stæðismanna um þessar mundir, eiga auðvelt með að
átta sig á þvi hver er óskadraumur leiðtoga þeirra.
Hann er i stuttu máli sá, að stjórnarflokkamir komi
sér ekki saman um aðgerðir til að stuðla að niður-
færslu verðbólgunnar, upplausn og ringulreið ein-
kenni starf næsta þings, sem ljúki með þvi að fljót-
lega verði efnt til þingkosninga.
Leiðtogar Sjálfstæðisflokksins gera sér vel ljóst, að
þeir geta ekki vænzt aukins fylgis vegna eigin verð-
leika. Til þess hefur forustan verið alltof stefnulaus
og ábyrgðarlaus, síðan flokkurinn lenti i stjórnar-
andstöðu. Vigorð flokksins um lækkun skatta, sam-
drátt ríkisútgjalda og burt með báknið eru ekki tekin
alvarlega, þvi að þau eru I fyllstu mótsögn við vinnu-
brögð flokksins, þegar hann hefur farið með stjórn,
hvort heldur hjá rikinu eða Reykjavikurborg.
Eina von Sjálfstæðisflokksins um fylgisaukningu,
byggist á þvi, að kjósendur verði svo óánægðir að
þeir kjósi Sjálfstæðisflokkinn i mótmælaskyni og
veiti honum þannig óverðskuldað brautargengi,
Fyrir stjómarsinna er vert að gera sér ljóst, að
þessi óskadraumur leiðtoga Sjálfstæðisflokksins er
engan veginn byggður á sandi. Framvinda mála get-
ur orðið á þennan veg, ef sigurvegararnir frá siðustu
kosningum gæta ekki að sér. Sá flokkur, sem sizt
hefði unnið til þess sökum stefnuleysis og ábyrgðar-
leysis, gæti orðið sigurvegari næstu kosninga, svo
óverðskuldað sem það væri. Það ætti hann eingöngu
að þakka giftuleysi annarra.
Haldi vissir Alþýðuflokksmenn og Alþýðubanda-
lagsmenn áfram að ausa hvorir aðra auri, og haldi
þeir þannig á tillöguflutningi sinum, að hinn aðilinn
geti ekki sætt sig við hann, er þeirri upplausn og
sundrungu boðið heim, sem forkólfa Sjálfstæðis-
flokksins dreymir um.
Þvi miður hefur dcki dregið úr þessum vinnu-
brögðum að undanförnu, nema siður sé.
Það er áreiðanlegt, að ekki aðeins margir þeirra,
sem kusu þessa flokka I slðustu kosningum, heldur
fjölmargir aðrir, óska eftir öðrum vinnubrögðum.
Þrátt fyrir allt ósamkomulag, hefur rlkisstjórninni
tekizt að koma ýmsu góðu til vegar, þótt henni hafi
mistekizt að draga úr verðbólgunni á undangengnu
ári, en það hefur flestum ríkisstjómum lika mistek-
izt á þessum tima.
Þau vonbrigði, sem af þessu leiða, mega ekki
verða til þess, að menn gefist upp. Þau eiga þvert á
móti að verða til þess, að reynt verði að gera betur.
Sú er tvimælalaust von meginþorra þjóðarinnar,
að stjórnarflokkarnir sliðri sverðin og setji þjóðar-
hag ofar misskildum flokkshagsmunum. Menn
vænta nýrra átaka I glimunni við verðbólguna og að
reynt verði til fulls á það, hvort hægt sé að sveigja
þrýstihópana og sérhagsmunaöflin til stuðnings við
raunhæfar aðgerðir. Þetta er áreiðanlega vilji þjóð-
arinnar um þessar mundir.
Forustumenn sigurvegaranna frá slðustu kosning-
um verða brátt að svara þýðingarmiklum spurning-
um: Ætla þeir að láta vonir þjóðarinnar rætast eða
óskadraum . ihaldsins? Hvort állta þeir sigurvæn-
legra? Þeir geta ekki dregið lengi að svara þessum
spurningum. Þjóðin blður eftir svörunum.
Þörf er nýrra efnahagsúrræða
Benedikt Gröndal utanrlkis-
ráöherra flutti ræöu á alls-
herjarþingi Sameinuöu þjóö-
anna slöastl. þriöjudag. 1 fyrrl
hluta ræöu sinnar ræddi hann
aöallega um slökunarstefnuna
og hafréttarmálin. Siöari hluti
ræöunnar fjallaöi um mannrétt-
indamál og efnahagsmál og fer
hann hér á eftir:
Herra forseti
Mig langar aö vikja aö mikil-
vægu máli sem mikiö var til
umfjöllunar á allsherjarþinginu
á siöasta ári, þ.e. mannrétt-
indamálum.
Viö fögnuöum I fyrra aö þrjá-
tlu ár voru liöin frá þvi aö
Mannréttindayfirlýsing Sam-
einuöu þjóöanna, ein af horn-
steinum alþjóölegrar samvinnu,
var samþykkt. Fjölmörg rlki
halda hins vegar áfram aö beita
þegna sina ofbeldi og viö
veröum þvi vitni aö mannrétt-
indabrotum viöa um heim.
Noröurlöndin Itrekuöu nýlega
samþykkt sina um áframhald-
andi baráttu á alþjóöavettvangi
fyrir þvi aö mannréttindi séu
virt. Þau hafa á ný sett fram
hugmyndir slnar um tengslin á
milli borgaralegra og stjórn-
málalegra réttinda annars veg-
ar og efnahagslegra, félags-
legra og menningarlegra rétt-
inda hins vegar.
I sameiginlegri yfirlýsingu
utanrikisráöherrafundar
Noröurlanda, sem nýlega var
haldinn I Reykjavlk, lögöu
ráöherrarnir mikla áherslu á
þýbingu þess aö árangur næöist
á þessu alisherjarþingi hvaö
varöar áhrifameiri aögeröir viö
aö tryggja mannréttindi um all-
an heim. Þeir lögöu rika áherslu
á þýöingu þess, aö komiö yröi á
fót svæöabundinni samvinnu til
aö standa vörö um og tryggja ab
þegnar öölist full mannréttindi
og báöu menn aö ihuga á ný til-
lögu sem fram hefur komið um
stööu mannréttindafulltrúa er
ynni undir stjórn framkvæmda-
stjóra.
Noröurlöndin munu halda
áfram baráttu sinni gegn mis-
þyrmingum, dauöarefsingum,
kynþáttaraðskilnaöi, kynþátta-
mismunum og trúarofsóknum.
Viö tökum á nýjan leik undir
meö þeim sem nota þetta tæki-
færi til aö fordæma kynþáttaaö-
skilnaöarstefnu Suöur-Afriku-
stjórnar og öllu þvl er fylgir þvl
ömurlega kerfi kúgunar og
ranglætis. Þrýstingur frá öllum
heimshlutum hlýtur aö lokum
aö brjóta niöur þetta kerfi og viö
veröum vitni aö ööru réttlátara
sem þjónar öllum kynþáttum I
landinu.
Suöur-Afrlka kemur sér
áfram undan þvi aö framfylgja
áætlun Sameinuöu þjóöanna um
frjálsar og réttlátar kosningar I
Namiblu. Frekari tafir eru óviö-
unandi I samningum um ,aö
Namibla öölist sjálfstæöi á
friösamlegan hátt.
Nýjustu atburöir i Zimbabwe
deilunum hafa fært mönnum
nýjar vonir, ef niöurstaöa Sam-
veldisráöstefnunnar I Lusaka og
viöræöurnar i London skapa
grundvöll fyrir almennri meiri-
hlutastjórn I landinu. Gefa
veröur öllum pólitlskum sam-
tökum jöfn tækifæri I kosning-
um tifTiýs þings, ef tryggja á aö
slik lausn hljóti alþjóðlegt sam-
þykki.
Viösjár eru enn miklar I Miö-
austurlöndum og allt veröur aö
reyna til að tryggja friö sem
gerir öllum rikjum á svæöinu
kleift að lifa I friði og öryggi inn-
an viðurkenndra landamæra.
Palestlnumenn veröa aö fá sln
réttmætu þjóöarréttindi.
Benedikt Gröndal
Eg ætla mér ekki aö halda
áfram aö telja upp þau svæöi i
heiminum þar sem rlkir
ófriöarástand. Ég læt mér
nægja aö minna á aö valdbeiting
er alls staöar fordæmanleg og
gagnstæö sáttmála Sameinuöu
þjóöanna.
Herra forseti.
Efnahagsástandiö I heiminum
er i ólestri. Efnahagsleg vanda-
mál hafa margfaldast á flestum
sviöum. Auöi er misskipt, fá-
tækt og næringarskortur eru
yfirþyrmandi. Framleiöendur
ákveöinna nauösynjavara
mynda samtök til að geta
hækkaö verö og rakað til sln
gifurlegum gróöa. Mörg rlki
verða aö þola mikið atvinnu-
leysi eöa veröbólgu. Viöskipti
eru stöönuö og verndartilhneig-
ing fer vaxandi.
Allt eru þetta visbendingar
um efnahagserfiðleika sem
veröur erfitt aö greiöa úr og
valda væntanlega stórum hluta
mannkyns miklum erfiöleikum
um ófyrirsjáanlegan tima. Þaö
er engin einhllt lausn til á
vandanum, en nokkur atriöi má
nefna hér:
1. Nýrra efnahagsúrræöa er
þörf og viö veröum aö komast
utanrlkisráöherra
úr fjötrum staönaös efna-
hagskerfis.
2. Viö veröum aö takast á viö
orkuvandann af miklu kappi.
3. Sérstaklega veröum viö aö
fjalla um þann vanda sem
stórhækkaö olíuverð veldur
þróunarríkjunum.
Nú á tlmum búum viö yfir
meiri tækniþekkingu og betri
samgöngum, en fyrri kynslóöir
hefir órað fyrir. Samt sem áöur
virðist okkur miöa lltiö hvaö
varðar samfélagsvlsindi sem
ættu aö veita okkur nægilega I
leiösögn til aö miðla á réttlátan |
hátt gæöum jaröar.
Þessi mismunur er ekki ný I
staöreynd, en veröur hrikalegri 1
með hverju árinu sem liöur.
Tæknileg þekking er fyrir 1
hendi til aö stjórna og skipta I
gæöum lands og sjávar, en okk- B
ur viröist vanta þá þekkingu eöa S
e.t.v. hugsjónaeld sem þarf til I
að útrýma styrjöldum, ágirnd B
og pyntingum.
Min ósk er sú, aö starf Sam- I
einuöu þjóðanna haidfáfram aö §
færa okkur I rétta átt og forði B
okkur frá hörmungum, sem viö 9
getum sjálfum okkur um kennt. 8
Þakka yöur herra forseti”. I
Herða verður baráttu
fyrir mannréttindum