Tíminn - 29.09.1979, Qupperneq 9
Laugardagur 29. september 1979
9
Stefnt að því að hindra flug-
rekstur frá öðrum stöðum en
Reykj avík
— segir Hörður Guðmundsson,
forstjóri flugfélagsins Ernir
AM — ,,Viö sóttum um flug á
milli Súgandaf jaröar og
Reykjavfkur, Flateyrar og
Reykjavikur og loks Bfldudals
og Reykjavfkur, og vildum viö
fijúga milli Reykjavikur og
þessara staöa tvisvar I viku
hverri, auk þriggja til fimm
feröa i tengslum viö annaö
flug,” sagöi Höröur Guömunds-
son, hjá flugfélaginu Grnir á
Isafiröi, en Grnir voru einn
þeirra aöila, sem sóttu um flug-
leiöir Vængja á dögunum.
Hörður kvaðst álita að allt
hefði mælt með þvi að Ernir
hefðu fengið slikt leyfi, þvi aö
auk þess sem hagkvæmt hefði
verið fyrir þessa staði að eiga
kost á flugi suður i beinu flugi
einu sinni eða tvisvar i viku,
þegar nýting væri góð, hefði það
verið mikill hagur fyrir Flug-
leiðir og Erni jafnframt, ef far-
þegar frá þessum stöðum hefðu
verið fluttir i veg fyrir flug
þeirra á t.d. Þingeyri og
Patreksfiröi en sætanýting væri
oft takmörkuð i þvi flugi hjá
Fokkernum.
Við spurðum Hörð um þær
leiðir sem Ernir fengu, en þær
voru Isafjörður — Hólmavik
— Gjögur.Hörður sagði augljóst
að bæta þyrfti samgöngúr milli
staða innan Vestfjarðakjálkans
sem mest, en sá væri hængur á
að fiutningur á þessum leiðum
væri það takmarkaður að von-
litið væri að reka leiðirnar nema
með tapi.
Hann átaldi þær aðferðir sem
notaðar voru i Flugráði og þann
málamyndafund sem haldinn
var um máliö. Af 32 sveitar-
stjfonum á Vestfjörðum hefðu
aðeins fjórar mælt meö leyfi
Arnarflugs og þau meðmæli
veriö fengin með þvi aö taka
menn á eintal. Hefðu flugmenn
Vængja verið þar aö verki,
gerðir út af ákveðnum mönnum,
og lagt áherslu á að þetta hefði
mikið gildi fyrir atvinnu þeirra.
af vélum félagsins.
Höröur Guömundsson viö eina
Aðeins fjórir flugmenn heföu þó
fengið starf, hinir einu af 10-12
manna starfsliði Vængja.
Þá spuröum við Hörð um þau
rök stjórnvalda aö ekki hefði
þótt ráðlegt að Ernir hefðu með
flug frá Reykjavik aö gera,
vegna þess hve tsafjörður væri
oft lokaður. Hörður kvað þetta
hinn mesta fyrirslátt og til þess
ætlaðan að hvergi væri gert út
flugfélag sem starfaði af afli,
nema frá Reykjavik. Minnti
hann á að Reykjavikurflugvöll-
ur sjálfur væri oft lokaður.
Hörður kvaðst og vilja átelja
þá óráðsiu sem i ráði væri, að
kaupa nýjar vélar fyrir stóríé,
þegar vélar væru fyrir hendi I
landinu, sem vel gætu annað
sliku flugi. Þjóðhagslega væri
slikt óverjandi og kvaðst hann
geta stutt forsvarsmenn Iscargo
i þessu, sem látið hafa sömu
skoðun i ljósi.
Að endingu sagði Hörður að
hann teldi ekki grundvöll fyrir
rekstri Twin Otter véla á fyrr-
greindum leiðum og sagði að
„kæmi ekki kraftaverk til” hlyti
Arnarflug að lenda i sömu vand-
ræðum með reksturinn og
Vængir voru komnir i.
| Mælingamaður óskast I
Vanur mælingamaður óskast sem fyrst.
ýi Upplýsingar gefur Gatnamálastjórinn i
'f$ Reykjavik. úf.
vl*
Vv<v
vý.::
GATNAMÁLASTJÓRINN í reykjavík
SKÚLATÚNl 2 — SlM! 18000
s^r».
». ■ V
€
Eigum fyrirliggjandi frá
DUALMATIC
r
í Bandaríkjunum
Driflokur, stýrisdempara, hjólbogahlífar,
varahjóls- og bensínbrúsagrindur.
Blæjuhús
Væntanlegt á næstunni:
4 litir, á Willys
C J 5 árg.
1955-1975
Einnig fyrirliggjandi Keystone sportfelgur
15", hvítar, krómaöar og úr léttmálmi.
Einkaumboð á islandi
Póstsendum.
Vélvangur h/f
Hamraborg 7 — Kópavogi
Simar 42233 og 42257
'BLOM fíÁVKCl 1R
50 ára afmœlissýning að Hótel Loftleiðum,
laugardagirm 29. september, swmudagirm 30. september
Dagsskrá báða dagana
Opin blómavinnustofa
kl. 10 - 12 fh.
Tilsögn í blómaskreytingum
fyrir almenmng.
Blómaskreytingar úr
þurrkuðum blómum
kl. 15:30 og 20:00
Skreytingar frá Erik Bering,
Kaupm.höfn og Hendrik Bemdsen,
Blóm & Avextir
Sérstakur blómaveislumatseðill
kl. 12 - 14 og kl. 18:30
t Blómascd hótelsins.
Guðrún Á. Símonar
kl. 20:3Q
Undirleik armast Ami Elfar
„Blóm í hárið“
kl. 14 og 19 og 21
Hárgreiðslusýmng með blómamafi
Elsa Haraldsdóttir, Salon VEH
Blómahöldur fiá 18. öld
úr safrú Eriks Bering
Pétur Friðrik, listmálari,
sýrúr blómamyndir
„Hausttískan 1979“
kl. 14:25 og 19:20
og 21:30
Marta Bjamadóttir, versl. EVA
Snyrtist.Maja, Ingibjörg Dalbeig
Blómamarkaður
Þurrkuð og lifandi blóm á
sérstöku blómatorgi
Kynning Interflora Hr. J. Stampe
OPIÐ FRÁ 10 f.h. til 23:00 báða dagana
Aðgcmgseyrir: 1500 krónur.