Tíminn - 29.09.1979, Side 12
ÍÞRÓTTIR
12
Laugardagur 29. september 1979
Þegar litiðer aftur til 1. deildarkeppninnar í
ár má minnast margra snarpra leikja og
skemmtilegra leikja. Keppnin var geysilega
spennandi allt fram til síðasta leiks — en það
var ekki fyrr en í síðasta leiknum, að úr því
fékkst skorið hver skyldi hljóta Islands-
meistaratitilinn.
Knattspyrnan I sumar hefur
ekki verið eins góð og undanfar-
in ár, en aftur á móti hafa liðin
verið jafnari að styrkleika —
Valsmenn og Skagamenn
hafa ekki skorið sig úr eins og
unanfarin ár, enda hafa bæði
liöin veriö i öldudal. Valsmenn
náðu sér ekki á strik og miklar
breytingar voru á Skagaliðinu.
Viö geröum það okkur til
gamans að taka saman þá leik-
menn, sem að okkar mati hafa
komist best frá keppninni i 1.
deild — og útkoman varð þessi:
ARSÆLL SVEINSSON...er sá
markvörður, sem hefur vakið
mesta athyglina. Arsæll varði
mjög vel i sumar og bjargaði
Vestmannaeyjaliðinu hvað eft
ir annað meö frábærri mark- •
vörslu. BJARNl
SIGURÐSSON.... Akranesi er
tvimælalust sá efnilegasti
markvöröur sem tsland hefur
lengi átt.
ÖRN ÓSKARSSON... kom
skemmtilega á óvart sem mið-
vörður og batt hann vörn Eyja-
liösins vel saman með baráttu
sinni og dugnaði. TRAUSTI
HARALDSSON... úr Fram er
okkar besti bakvörður, fljótur
og harðskeyttur.
SIGURÐUR HALLDÓRS-
SON.... frá Akranesi er sá ungi
leikmaður, sem vakti mesta at-
hyglina i vörninni. Sigurður,
sem átti viö meiösli að striða,
hóf aö leika með Skagamönnum
á miðju keppnistimabili. Atti
hann þá hvern stórleikinn á fæt-
ur öðrum og skoraði 4 mörk.
ATLI EÐVALDSSON... var sá
miðvallarspilari, sem kvað
mest að —■ hann stjórnaði leik
Valsliðsins með leikni sinni og
útsjónarsemi. J ÓN
ALFREÐSSON.... Akranesi,
var aftur á móti duglegasti mið-
vallarspilarinn og sýndi yfirleitt
mjög góða leiki.
) ÖRN ÓSKARSSON... lék stórt
hlutverk hjá Eyjamönnum.
KRISTJAN OLGEIRSSON. ..
frá Akranesi var sá ungi leik-
maður sem lét mest aö sér
kveða á miðjunni. Kristján er
maður framtiðarinnar — fljót-
ur, leikinn og útsjónarsamur.
PÉTUR ORMSLEV... úr
Fram var sá sóknarleikmaður,
sem var mest i sviðsljósinu.
Pétur, sem er mjög leikinn með
knöttinn og fljótur, hrelldi
marga vörnina. TÓMAS PALS-
SON... frá Vestmannaeyjum
átti einnig mjög góða leiki —
hann er mjög baráttuglaður
leikmaður, sem er alltaf á ferð-
inni.
Þeir ungu leikmenn sem létu
mest að sér kveða i sókninni,
voru þeir GUÐMUNDUR
STEINSSON.... hjá Fram og
Keflvikingurinn RAGNAR
MARGEIRSSON.Þeir eru mjög
efnilegir leikmenn — leiknir og
skotfastir.
VESTMANNAEYJA—iiðið
var það lið sem kom mest á
óvart, þvi að enginn bjóst við að
Eyjamenn yrðu með i bar-
áttunni um tslandsmeistara-
titilinn, hvað þá að þeir hlytu
hann. Eyjaliðið varð fyrir
mikilli blóðtöku — missti Karl
Sveinsson til Sviþjóöar og
Sigurlás Þorleifsson gekk i raðir
Vikinga, en þeir voru lykilmenn
sóknarleiks Eyjamanna 1978.
Eyjamenn létu þetta ekki á sig
fá, þeir mættu ákveðnir til leiks
og baráttugleði þeirra var að-
dáunarverð.
KR-ingar komu einnig
skemmtilega á óvart — ný-
liðarnir voru með i baráttunni
um Islandsmeistaratitilinn allt
mótið.
Það er ekki erfitt að gera upp
á milli þjálfara. VIKTOR
HELGASON var þjálfari
sumarsins. Viktor gerði Eyja-
menn aö Islandsmeisturum.
—SOS
Oft var hart barist um knöttinn... Þessi skemmtilega mynd var
tekin I bikarúrslitaleik Vals og Fram. Gunnar Guðmundsson,
Pétur Ormslev, Grimur Sæmundsen og Asgeir Eliasson eru hér I
snörpum dansi. Þorvarður Björnsson, dómari, sér eitthvað at-
hugavert — og flautar....
—Timamynd Tryggvi)
J Vítaspyrnukeppni
í Laugardalnum?
i.
Valur og Akranes leiöa saman
hesta sina i dag
Það má búast við mikilli
baráttu á Laugardalsvellinum i
dag, þegar Valsmenn og Skaga-
menn mætast — og keppa um
rétt til að leika i UEFA-bikar-
keppni Evrópu.
Liðin leiddu saman hesta sína
sl. sunnudag og lauk þeirri
viðureign með jafntefli 0:0 i
mjög skemmtilegum leik, sem
þurfti að framlengja.
Það má einnig búast við
fjörugum og skemmtilegum leik
nú, þvi að mikið er i húfi —
Evrópusæti.
Keppt verður til þrautar — •
þ.e.a.s. að ef liðin skilja jöfn
eftir venjulegan leiktima,
verður leikurinn framlengdur
2x15 min. og ef liðin eru þá enn
jöfn, verður háð vitaspyrnu- (
keppni.
Leikur liðanna hefst kl. 2.
Jóhannes Guðjónsson - fyrirliði Skagamanna
Aö lokinni „knattspyrnuvertíð”
0 JÓHANNES GUÐJóNSSON...sést hér á æfingu á Akranesi — en
hann er búsettur og vinnur iReykjavik. Jóhannes æfir mikið einn
iReykjavik, en fer upp á Skaga l-2sinnum I viku.
Hefur ekki verið
á skotskónum
hann hefur aðeins skorað eitt mark i 11 ár
Jóhannes Guðjónsson/
fyrirliði Skagamanna, er
einn þeirra knattspyrnu-
manna, sem lagt hefur
hvað mest á sig til að geta
leikið knattspyrnu með
félögum sínum frá Akra-
nesi.
Jóhannes hefur verið bú-
settur i Reykjavík frá 1975
og stundað nám við endur-
skoðun og jafnframt unnið
fulla vinnu í því fagi í
Reykjavík.
Jóhannes hefur þvi þurft að
fara upp á Akranes til að sækja
æfingar með félögum sinum —
þetta 1-2 sinnum i viku, og þá
hefur hann æft einn i Reykjavik,
til að halda sér i fullri þjálfun.
Það þarf mikla sjálfsögun og
dugnað til að æfa, eins og
Jóhannes gerir.
Jóhannes, sem er 28 ára, hóf að
leika með Akranesi 1968, eða fyrir
11 árum — og hefur hann leikið
175 leiki með Skagamönnum,
Jóhannes, sem leikur stöðu
varnarmanns, hefur ekki verið á
skotskónum i þessi 11 ár — hann
hefur aðeins skoraö eitt mark —
gegn Þrótti 1978 og var það þjög
þýðingarmikið mark, eða sigur-
mark Skagamanna 3:2.
Jóhannes sagöi þannig frá
þessu marki — i leikskrá Skaga-
manna i sambandi við Evrópu-
leikinn gegn Barcelona:
,,Þetta gerðist i leik á Akranesi
gegn Þrótti I islandsmótinu.
Staðan var 2:2 og aðeins tvær
minútur eftir af ieiknum þegar
við fengum hornspyrnu. Okkur
hafði gengið illa að nýta mark-
tækifærin og Kirby kallaði til min
að freista gæfunnar. Ég lét ekki
segja mér það tvisvar, heldur
hljóp yfir völiinn og I vitateig
Þróttar. Boltinn kom fyrir og fór
yfir markvörðinn og beint i
höfuðið á mér og mér tókst að
skalla hann i markið framhjá
þremur Þrótturum á linunni. Það
sem er kannski merkilegast við
þetta mark er að ég hef hvorki
fyrr né siðar farið upp I vftateig
andstæðingsins þegar horn- og
aukaspyrnur hafa verið teknar,
heidur alltaf beðið á miðlinunni
tiibúinn til varnar”.
Þess má geta að lokum, að
Jóhannes hyggst leggja knatt-
spyrnuskóna á hilluna — eftir
siðari leik Skagamanna gegn
Barcelona á Spáni.
Þeir létu mest
að sér kveða