Tíminn - 04.12.1979, Side 1

Tíminn - 04.12.1979, Side 1
Þriðjudagur 4. desember 1979 271. tölublað—63. árgangur „Fólk betur kristið I dag en áður” Sr. Árelius litur til baka Bls. 11 Siðumúla 15 • Pósthólf 370 • Reykjavik • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300.■ Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsímar 86387 & 86392 ,J'ramsóknarflokkurinn er tvímælalaust sigurvegari kosninganna eftir fyrstu töhim að dæma” sagði Steingrímur Hermannsson FRI — „Ég tel að Framsóknar- flokkurinn sé tvimælalaust sigurvegari kosninganna eftir fyrstu tölum að dæma” sagði Steingrimur Hermannsson for- maður Framsóknarfiokksins i samtali við Tímann i nótt. „Ég vil segja það að þetta er mikið meira fylgisaukning en ég hafði nokkurn tima þorað að vona og það sem ég er ónægðastur með er að við höfum endurheimt mann i Reykjaneskjördæmi. Ég hef það ó tilfinningunni að fylgisaukningin sé ekki ein- göngu bundin við Reykjavik og Reykjanes heldur nái um allt land. Einnig vildi ég sérstak- lega benda á að leiftursóknin hefur að þvi er virðist snúist i höndunum á sjálfstæðismönn- um þar sem fylgisaukning hans er mikið minni en spár höfðu gefið vonir um. Ég vil að lokum þakka öllum þeim sem unnu fyrir Fram- sóknarflokkinn i þessum kosn- ingum fyrir ágætt og ósérhlifið starf”. Marktækar tölur úr Reykja- vikur- og Reykjaneskjördæmi lágu tiltölulega snemma fyrir i nótt. Um miðnættið var búið að telja 40.400 atkvæði i Reykjavik og skiptist það þannig milli manna að Framsóknarflokkur- inn hafði fengið 15% og 2 menn kjörna, Alþýðuflokkurinn hafði fengið 18% og 2 menn kjörna, Alþýðubandalagið hafði fengið 21% og 2 menn og Sjálfstæðis- flokkurinn hafði fengið 44% og 6 menn kjörna. A sama tima þá var búið að telja 17.100 atkvæði i Reykja- neskjördæmi. Af þeim hafði Framsóknarflokkurinn fengið 16,6% og 1 mann kjörinn, Al- þýðuflokkurinn 24,8% og 1 mann kjörinn, Alþýðubandalag 17,5% og 1 mann kjörinn og Sjálf- stæðisflokkurinn 40,8% og 2 menn kjörna. Þegar þessar tölur voru siðan mataðar i tölvu sjónvarpsins, bentu þær til að Framsóknar- flokkurinn mundi auka fylgi sitt úr-um 16% og i 25,5% ef litið er á landið i heild og þar með auka þingmannatölu sina úr 12 mönn- um i 18 menn eða um 50%. Kjörsókn var með afbrigðum góð viðast hvar um landið. Til dæmis náði hún um 89% i Reykjavik og yfirleitt þá fór hún hvergi niður úr 80%. ;; ?! ' r-1 J FRI — Mikið var að gera á taln- ingastöðum kjördæmanna viða um land i nótt. Er við litum inn i Austurbæjarskólann þá var þar allt á fullu og menn vongóðir um að talningu yrði lokið um þrjú- leytið. Eini staðurinn þar sem talning mun tefjast er Vestfjarðakjör- dæmi. En þar átti að reyna að fljúga með kjörkassa úr Flatey og fjórum hreppum I Strandasýslu frá Stykkishólmi til isafjarðar. Fulltrúar allra flokka voru mættir i sjónvarpssal þegar fyrstu tölur lágu fyrir. Sýndist þar sitt hverjum um væntanleg úrslit. „Ég er nú fyrirfram Htið fyrir ágiskanir”, sagði Ólafur Jó- hannesson eftir að fyrstu tölur lágu fyrir. „Ég reyni aðeins að gera mitt besta og allir hafa gert það I þessari kosningabaráttu. Við höfum fundið það að við hefð- um meðbyr. Þessar tölur sem komiðhafa hér fram eru óneitan- lega gleðilegar ef þær munu ekki breytast”. Vilmundur Gylfason viöur- kenndi ósigur Alþýðuflokksins i þessum kosningum. Svavar Gestsson kvað happa- disirnar aldrei vera jafn hvik- lyndar og á kosninganóttina. Ellert Schram kvaðst hafa trú á þessum fyrstu tölum þar sem þær væru svo hátt hlutfall af heildar- kjörsókn. Timamynd: Tryggvi. Straumurinn liggur til Framsóknarflokks FRI — Rétt áður en blaðiö fór I prentun i morgun voru fyrstu tölur úr sex kjördæmum komn- ar. Samkvæmt þeim þá stefndi i stórsigur framsóknarmanna. AUt benti til að þeir mundu endurheimta sitt fyrra fylgi frá kosningunum 1974 og rúmlega það. Landsspáin leit þannig út: A- listi Alþýðuflokks 17,5%, tapar 4,5% og fær 10 menn, hafði 14. B- listi Frams.óknarflokks fær 25,7% bætir við sig 8,8%, fær 18 menn, hafði 12. E>-listi Sjálf- stæðisflokks 35,5%, bætir við sig 2,8% fær 20 haföi 20. G-listi Aí- þýðubandalags 18,7%, tapar 4,2% fær 11 hafði 14. Hér vantar einn mann en samkvæmt tölum frá Suðurlandi þá er Eggert Haukdal af L-lista Óháðra inni. Ef við litum á einstök kjör- dæmi þá var staðan þannig er blaðið fór i prentun. Reykjavik: A-listi Alþýðuflokks 18%, tapar 4,2% og fær 2 menn, u-nstr Framsóknarflokks 15%, bætir viö sig 7,2% fær 2 menn, D-Iístí Sjálfstæðisflokks 44%, bætir við sig 5,6% fær 6 menn og G-listi Alþýðubandalags 21% tapar 3,2% og fær 2 menn. Reykjaneskjördæmi: A-listi Alþýðuflokks 24,2%, tapar 5,2% fær 1 mann, B-listi Framsókn- arflokks fær 16,7%, bætir við sig 6,1% fær 1 mann, D-listi Sjálf- stæðisflokks fær 40,6%, bætir við sig 8,3% fær 2 menn og G- listi Alþýðubandalags fær 18,2% tapar 2,3% fær 1 mann. Vesturland: A-listi Alþýðu- flokks fær 17,7%, tapar 5,5% fær 1 mann, B-listi Framsóknar flokks 36,1%, bætir við sig 9,5% fær 2 menn, D-listi Sjálfstæðis flokks 29,8% bætir við sig 3,8% fær 1 mann og G-listi Alþýðu bandalags fær 16,4%, tapai 3,6% fær 1 mann. Norðurland eystra: A-listi Al- þýðuflokks fær 12,7%, tapar 9,4% fær 1 mann, B-listi Fram- sóknarflokks fær 46,4%, bætir við sig 14,5% fær 3 menn, G-listi Alþýðubandalags fær 12,2% tapar 7,7% fær 1 mann og S-listi óháöra 8,7% og engan mann. Norðurland vestra: A-listi Al- þýðuflokks fær 12,2%, tapar 1,4% fær engan mann, B-listi Framsóknarflokks fær 43,9%, bætir við sig 11,5% fær 3 menn, D-listi fær 26,8%, bætir við sig 1,3%, fær 1 mann og G-listi Al- þýðubandalags fær 17,1% tapar 4,3% fær 1 mann. Suðurland: A-listi Al- þýðuflokks fær 14,8%, tapar 2% fær 1 mann kjörinn, B-listi Framsóknarflokks fær 32,1%, bætir viö sig 10,3% fær 2 menn, D-listi Sjálfstæðisflokks fær 22,7%, tapar 8,7% fær 1 mann, G-listi Alþýðubandalags fær 13,6% tapar 5,4% fær 1 mann og L-listi Óháðra fær 14,8% og einn mann. Aðrir flokkar, R-listi Fylkingarinnar, H-listi Hins- flokksins i Reykjavik og Q-listi Sólskinsflokksins i Reykjanesi eru hvergi nálægt þvi aö koma manni á þing. Eins og sést á þessum tölum þá er Framsóknarflokkurinn sigurvegari kosninganna, Sjálf- stæöisflokkurinn fær hvergi nærri þá fylgisaukningu sem honum var spáð, Alþýðuflokkur og Alþýðubandalag tapa tölu- veröu fylgi og Óháðir á Suður- landi virðast ætla að koma manni á þing.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.