Tíminn - 04.12.1979, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 4. desember 1979
3
Færð yfirleitt góð kosningadagana
AM — Bærilegt kosningaveður
var sl. sunnudag og gekk fólki
þvi viðast vel að komast á kjör-
stað og eins gekk flutningur
kjörgagna yfirleitt vel. Arnkell
Einarsson sagði okkur I gær að
þá hefðu menn verið að ryöja
snjó af fjallvegum á Snæfells-
nesi og er nú fært um þá, en
þungfært var um Svinadal aust-
an Búöardals og um Revkhóla-
sveit, en ófært þegar kemur I
Gufudalssveit. Var þvi ekki vit-
að hvernig gengi að losna við
kjörgögn frá Reykhólum. (Jr
Vatnsfirði var fært á Patreks-
fjörðog verið var að moka frá
Patreksfirði til Bildudats. Ófært
var um Dynjandis- og Rafns-
eyrarheiði, en fært frá Þing-
eyri til tsafjarðar og inn i Djúp.
Norðan Hólmavikur voru
vegir orðnir ófærir i gær, en
voruað mestu færir á sunnudag,
þannigaðkosning fór fram i Ar-
neshreppi. Þar var þó aðeins
fært innan sveitar og ófært
sunnan Djúpavikur i Bjarnar-
fjörð. í gær lokuðust svo vegir
frá Hólmavik norður i Bjarnar-
fjörð og Ut i Drangsnes. Veður
fer versnandi i Strandasýslu og
hafa verið verulegir erfiðleikar
á leiðinni frá Hrútafirði norður
til Hólmavikur, en Arnkell sagði
að siðdegis i gær hefði bifreiö
verið lögð af stað frá Hólmavik
með kjörgögn til Stykkishólms.
Færð var góð i Húnavatns-
sýslum svo og i Skagafirði, þótt
ryðja hefði oröið snjó af vegin-
um við Vatnsskarð. Versnandi
veður var á Siglufjarðarleið og
biðu snjómoksturstæki átekta,
eftir að kjörfundi lyki þar, svo
flytja mætti kjörgögnin á
Sauðárkrók. 1 Eyjafirði varð að
ryöja bæöi öxnadalsheiði og
yfir Ólafsfjaröarmúla, en greið-
færtvar i gær að öðru leyti um
Eyjafjörö og um Þingeyjarsýsl-
ur. Aðeins var þó fært stórum
bllum úr Mývatnssveit að
Grimsstöðum.
A norðaustur horninu voru
vegir yfirleitt greiðfærir með
ströndum fram, en fjallvegir
ófærir. Ófært var um öxar-
fjarðarheiöi og Vopnafjarðar-
heiði.
1 gær var mokað um Möðru-
dalsöræfi i Möðrudal, en i gær-
morgun tók færð þarna að spill-
ast og orðið nær ófært siðdegis.
Eystra var færð annars franur
góð, nema hvað aö til Borgar-
fjarðar var ekki fært nema stór-
um bilum og jeppum. Verið var
að moka veginn yfir Fjaröar-
heiði I gær. Suður með fjörðum
og meö suðurströndinni var vel
fært, en rétt að geta þess aö i
gær gekk á með dimmum snjó-
éljum á Hellisheiði og umferð
þar þvi erfið. Hálka var mikil á
vegum og viða nokkur jafnfall-
inn snjór og sagði Arnkell að ef
hvessti kynni færð að spillast
nokkuö.
Góður afli
á ísafirði
í desem-
ber
GSV/ísaf. — Góður afli hefur
verið hjá tsfirðingum I þessum
mánuði, ekki sist hjá bátunum.
Orri var með 214 tonn, eða 10674
kgi róðri. Guðný var með 185 tonn
10260 kg í róöri. Vikingur II var
með 197 tonn, eöa 10382 kg I róörí.
Togarinn Guðbjartur hefur
veitt 4033 tonn i mánuöinum, Páll
Pálsson 4840 tonn, Guöbjörg 5321
og þeir gamli og nýi Július með
4026 tonn.
Verslunarráð íslands
Opinberir
aðilar
greiði
fulla
dráttar-
vexti
en njóti ekki óeðli-
legra sérréttinda
i viðskiptakjörum
JSS — ,,A undanförnum árum
hafa opinberir aðilar og stofn-
anir rikis og sveitarfélaga
vfirleitt neitað að hlita aug-
lýstum viðskiptaskiimálum
um gjalddaga skuida og
greiðslu dráttarvaxta, þótt
opinberir aðilar beiti ávallt
fuilum dráttarvöxtum er þeir
innheimta kröfur sinar á
hendur atvinnulifinu”. Svo
segiri yfirlýsingu frá Verslun-
arráði tslands.
Segir enn fremur, að fyrir-
tæki þurfi að greiða opinber
gjöld skilvislega á sama tima
og opinberir aðilar skuldi
fyrirtækjum mun hærri fjár-
hæðir langtimum saman.
Verslunarráð hafi ritað fjár-
málaráöuneyti bréf varðandi
þetta og i svari þess komi
fram, að opinberir aðilar skuli
greiöa dráttarvexti eftir sömu
reglum og sé almennt beitt I
viðskiptum. Þrátt fyrir þetta
hafi litið sem engin breyting
orðið þarna á og vilji Verslun-
arráð þvi hvetja fyrirtæki til
að nýta rétt sinn á þessu sviðir
svo að opinberir aðilar njóti
ekki óeðlilegra sérréttinda I
viðskiptakjörum.
Bókafrétt 1
Islandsleíöangur Stanleys
og sex aðrar nýjar bækur
11. bindi bókaflokksins
ÞRAUTGÓÐIR A RAUNASTUND
eftir Steinar J. Lúðvíksson
Bókin fjallar um árin 1907—10.
Þetta er tími hinna opnu róðra-
skipa, vélbátarnir eru að koma til
sögunnar og skúturnar gegna
stóru hlutverki. Meðal atburða:
er Kong Tryggve fórst, póstskip-
ið Laura strandaði, uppskipun-
arslys í Vík og strand Premiers.
FALIÐ VALD
eftir Jóhannes Björnsson
Hverjir hafa völdin á bak við
tjöldin, hér heima og erlendis?
i hverra spottum spriklar hinn
almenni borgari?
FALIÐ VALD á eflaust eftir að
vekja bæði ugg og reiði því bók-
in afhjúpar það sem ætlað er að
liggja í þagnargildi.
Feróabók þessi er prýdd eitthundrað pennateikningum,
tuttugu og einni vatnslitamynd og tveimur olíumálverkum.
Fæstar þessara mynda hafa birst á prenti áður og er aó
þeim stórmikill menningarsögulegur fengur. Má með
sanni segja aö þær fylli bilið milli Ferðabókar Eggerts og
Bjarna og bóka þeirra Mackenzies og Gaimards.
Stanleyleiðangurinn kom hingað til lands í kjölfar Móðu-
harðindanna. Má af dagbókunum ráða margt um hagi og
ástand þjóðarinnar og fylla þær verulega I eyðu þess
tímabils.
Þetta er einn fegursti prentgripur sem við höfum gefið út,
en að öllum líkindum munum við aðeins geta afgreitt um
1100 eintök fyrir áramót.
FORN FRÆGÐARSETUR
eftir Séra Ágúst Sigurðsson
á Mælifelli.
Bók þessi er sjór af fróöleik úr
þjóðarsögunni, fjölbreytt mjög
og skemmtileg aflestrar. Séra
Ágúst segir frá misjöfnu mannlifi
og dregur fram íslenska örlaga-
þætti. Fjöldi mynda og teikninga
prýða bókina
Geir Hansson
MISJÖFN ER MANNSÆVIN
Átakanleg lífsreynslusaga um
eldskírn drengs á æskuárum,
lýsir atburðum af miskunnar-
lausu raunsæi og hreinskilni.
Ölík öðrum minningabókum.
Þriðja bindi bókaflokksins Her-
námsárin.
Jörn Riel
FYRR EN DAGUR RÍS
Þetta er skáldsaga um einangr-
aða eskimóabyggð á Grænlandi
og fyrstu kynnum hennar af hvíta
manninum og þeim örlögum
sem byggðinni eru búin vegna
þeirra kynna. Þýdd af dr. Friðriki
Einarssyni lækni.
Hannes Pálsson frá Undirfelli
VOPNASKIPTI OG VINAKYNNI
Andrés Kristjánsson skráði
Hannes rekur misvirðasama og
margþætta lífssögu sína af mik-
illi ósérhlífni, opinskáu hrein-
lyndi, glöggskyggni og heiðar-
leik — og án feluleiks eða tæpi-
tungu um menn og málefni —
einnig um sjálfan sig.
Öm og Örlygur
Vesturaötu42 s=25722
eb Klapparstig 27