Tíminn - 04.12.1979, Qupperneq 2
2
Þriðjudagur 4. desember 1979
DIMMUR LAUGARDAGSMORGUN
HEI — Elding sem sló niður i
Búrfeilslinu á laugardags-
morgun, nálægt Árnesi að haldið
var, varð þess valdandi aö
straumiaust varö á svo að segja
öllu svæði Landsvirkjunar. Þetta
gilti um allt Suöurlandsundir-
lendið og Vesturland og truflaði
verulega á Norðurlandi. Misjafn-
lega iangan tfma tók þar til raf-
magn komst á aftur, allt frá hálf-
tima og upp f marga klukkutima.
Tvær aðallinur eru frá BUrfelli,
þannig að svona óhapp á ekki að
valda rafmagnsleysi, en I þessu
tilfelli vann öryggisbúnaðurinn
ekki alveg rétt, samkvæmt upp-
lýsingum frá Landsvirkjun, sem
gerði það að verkum, að raf-
magniö fór af báðum linunum.
Engar alvarlega skemmdir urðu
á rafbúnaði af þessum orsökum.
Talsmaður Landsvirkjunar sagði
að gengið yrði að þvi með oddi og
MJOLKURFELAG REYKJAVÍKUR
Slmi: 11125
FOÐUR fóóriö sem bœndur treysta
REIÐHESTABLANDA
mjöl og kögglar —
Inniheldur nauðsynleg
steinefni og vitamin
HESTAHAFRAR
MJÓLKURFÉLAG
REYKJAVÍKUR
LAUGARVEGI 184, REYKJAVÍK
SÍMI 11125
FYRIR BELTAVÉLAR
Heil belti og tilheyrandi, rúllur allar
gerðir, framhjól, drifhjól, keðjur,
beltaplötur, spyrnur o. fl.
SÍMI 91-19460
Virtustu og bestu
pick-up ná/ar
í heimi
iBúZni 29800
—■— ' Skipholti19
— rafmagnslaust á öllu svæði
Landsvirkjunar
egg að endurbæta þann galla,
sem virðist hafa valdið þvi' að
straumurinn fór af báðum lin-
unum.
Reykvikingar máttu biða mis-
lengi eftir að fá rafmagn á aftur,
og varð Breiðholtið t.d. raf-
magnslaust í nokkra klukkutima.
Starfsmenn Rafmagnsveitu
Reykjavlkur kunnu ekki fyllilega
skil á fyrirbærinu og hölluðu sér
þá að draugakenningunni. Eitt-
hvað var það a.m.k. dularfulit, að
þegar straum var hleypt á Breið-
holtið, sló jafnóðum Ut aftur.
Farið var aö leita bilunarinnar á
milli hinna ýmsu spennistööva i
Breiðholti, með tilheyrandi mæli-
tækjum, en allt án árangurs. Upp
Ur hádeginu hefur draugsi svo
verið búinn að fá nóg af leikara-
skapnum, þvi þá varð allt i einu
allt i lagi, án þess að nein bilun
hefði fundist, eða gert væri við
nokkuð.
Sögðu starfsmenn Rafveit-
unnar þetta ekki óalgengt, þegar
kerfið stæði spennulaust nokkurn
tima, að svona lagað henti.
Hótel Loftleiðir:
Mikið um að
vera í Blómasal
FI — Vönduð dagskrá verður á
Hótel Loftleiðum I Blómasal
jólamánuðinn og snýst mest um
fjögur kvöld. Dagskráin er I
stórum dráttum auk tiskusýn-
inga: A Aðventukvöldi söng Ólöf
K. Harðardóttir við undirleik
Jóns Stefánssonar og Jens Guö-
jónsson sýndi nýjungar i gull-
smiöi. A Sælkerakvöldi mun
Agnar Kofoed-Hansen flug-
málastjóri ráða matseðli og
leiðbeina með val vina og fl. A
Lúsiukvöldi syngja sænskar
stúlkur og islenskar og vlkinga-
skipið verður skreytt frá Kosta
Boda. A jólapakkakvöldi syngur
Garðar Corters jólalög og jóla-
sálma við undirleik Jóns
Stefánssonar. Ennfremur
verður gjafakynning á vegum
Rammagerðarinnar og islensks
Heimilisiðnaðar.
Sigurður Guðmundsson sá
hinn þekkti hljómlistarmaður
mun leika á orgel I Blómasal frá
fimmtudags* til sunnudags-
kvölda og að sjálfsögðu öll þau
kvöld, sem getið er að ofan.
Tískusýning verður og i hádeg-
inu 7. des. Módelsamtökin sjá
um allar tiskusýningarnar. Þá
má geta þess, að jólaglögg
verður á boðstólum frá 1. des.
Að sögn Emils Guðmunds-
sonar hótelstjóra varð i fyrra að
hafa góöan fyrirvara til þess aö
komast á þessi kvöld.
ALTERNATORAR
í FORD BRONCO
MAVERICK
CHEVROLET NOVA
BLAZER
DODGE DART
PLYMOUTH
WAGONEER
CHEROKEE
LAND ROVER
FORD CORTINA
SUNBEAM
FIAT — DATSUN
TOYOTA — LADA
VOLGA — MOSKVITCH
VOLVO — VW
SKODA — BENZ — SCANIA o.fi
Verð frá
26.800/-
Einnig:
Startarar, Cut-out,
anker, bendixar,
segulrofar o.fl. í
margar tegundir
bifreiða.
Bílaraf h.f.
Borgartúni 19.
Sími: 24700