Tíminn - 04.12.1979, Qupperneq 7
Þriðjudagur 4. desember 1979
7
Sannleíkanum veröur
hver sárreiðastur
Sannleikanum verður hver
sárreiöastur segir gamalt is-
lenskt máltæki. 1 frétt þeirri,
sem Timinn birtir I greinar-
formi eftir mig 24. okt. s.l. hefur
sýnilega verið stórisannleikur,
svo mikil reiði er Alberts Jd-
hannssonar formanns L.H.
vegna fréttar þessarar.
íþróttin að stinga á ból-
unni
Það er mikil iþrótt sumra
stjórnarmanna L.H. — núver-
andi og fyrrverandi — sem heit-
iraðstingaá bólunni. Tilgangur
leiksins er að telja almennum
hestamönnum trú um aö allt sé
i sómanum hjá stjórninni og
gagnrýnendur séu illgjarnir og
slæmir og einnig að stinga uppi
þá örmu þræla i eitt skipti fyrir
öll. Leikaðferðin er að útskýra
sem nákvæmast léleg persónu-
einkenni gagnrýnandans, ætla
honum hinar lægstu hvatir og
um fram allt að forðast aö nefna
málefni það sem gagnrýnt var.
Hvortmet verði staöfest i þess-
ari iþrótt, fer eflaust eftir þvi
hver á völlinn sem leikið er á.
Listrænn rógur
1 þessu sambandi skiptir það
heldur ekki máli, A.J. nálgast
ekkert met, þvi hann leikur svo
illa af sér þegar hann reynir að
nálgast málefnið. Það skal
viðurkennt að þar fyrir utan
leikur hann af list, kemur vel
frá sér lýsingum á illgirni minni
og afleitu innræti með viöeig-
andi samlíkingum við púka og
fleira gott.
Það er ansi margt, sem A.J.
heföi mátt hugsa betur áður en
hann lét ritsmið sina frá sér
fara. Þaö er annars leitt hvað
honum gengur erfiðlega að tjá
sig i rituðu máli, þegar honum
er svona mikið niðri fyrir, enda
þótt vitað sé að honum tekst oft
sæmilega upp i ræðustóli. Þaö
er vinsamleg ábending min aö
hann fari á stúfana aö leita sér
að leigupenna, næst þegar knif-
ir, jafnvel til Hafnarfjarðar teiji
hann best föng þar.
Miklir menn erum við
Hrólfur minn
Fyrst er að leiðrétta þá mis-
túlkun A.J. að greinin frá 24.
okt. sé einkahugleiðingar mín-
ar, hún er frásögn sjónar- og
heyrnarvottar aö reiði Aust-
lendinga í garð stjórnar L.H.
fyrir slælega frammistöðu I
ákveðnu m áli. Ummæli eru höfð
eftir nafngreindum mönnum, en
persónuieg skoöun min kemur
Albert Jóhannsson
ekki fram. Mér yfirsást að til-
greina heimildarmann að fyrstu
málsgrein greinarinnar, þar
sem segir frá samþykki B.l. á
erindi B.A. um að Austlending-
ar fái f jórðungsmót 1980, og siö-
búinni umsókn stjórnar L.H.
Heimildarmaður minn þar er
Halldór Pálsson búnaðarmála-
stjóri. Umsókn L.H. kom ekki
um svipaö leyti og umsókn B.A.
heldur eftir aö stjórn B.I., hafði
samþykkt umsókn B.A. Það var
þvi ekki stjórn L.H. sem kom
máli þessu i höfn, heldur
Búnaðarsamband Austurlands.
Hefur formaðurinn
ekki lesið lög L.H.?
A.J. segir i grein sinni: Það
Hestamaður á hrossi.
skal tekiö fram að ekki eru i
gildi neinar fastar reglur um
það hversækir um þetta leyfi til
Bf. Isl. og hafa þær ýmist verið
sendar gegnum stjórn L.H. eða
heimamenn hafa sent þær beint
til stjórnar Búnaðarfélagsins.
(Tilvitnun lýkur) önnur grein
laga L.H. er svohljóðandi: Fé-
lagið er samband hestamanna-
félaga i landinu. Það er mál-
svari þeirra, gætir sameigin-
legra hagsmuna gagnvart öör-
um aðilum og kemur fram fyrir
þeirra hönd gagnvart BUnaöar-
félagi tslands og rikisvaldinu.
(Tilv. lýkur) Vill A.J. útskýra
þessa grein fyrir lesendum? Að
heimamenn hafa stundum sent
umsóknir sinar beint, sýnir
traust þeirra á framkvæmda-
semi stjórnar L.H.
Það er von að Albert
reiddist
Fyrir þrem árum var stjórn
L.H. falið af ársþingi að koma á
i samráði við B.l. fastri niður-
rööun lands- og fjórðungsmóta
fram að árinu 1998, skv. ákveð-
inni reglu. 1 fréttinni 24. okt. er
látið að þvi liggja að stjórnin
hefði svikist um að koma erindi
þessuá framfæri þar til nú fyrir
fáum dögum. Nú hefur hins veg-
ar sannast að þarna var ekki
rétt með fariö. Stjórnin trassaöi
erindið ekki l þrjú ár, heldur
„aöeins” i tvö og hálft. HUn tók
erindið upp við sýningarnefnd
B.l. á siðastliönu vori. Sýn-
ingarnefndin færðist undan en
neitaöi þó ekki. Stjórn L.H.
sleppti þá erindi sinu og fór að
reka erindi B.l. við hestamenn,
hvort þeir gætu ekki látið sér
nægja héraössýningar I staðinn.
Nöldur og óánægja
Og nU nálgumst viö aöalatriði
málsins og ég skal ekki lengur
liggja á minni skoðun. Hver er
tilgangurinn með að „blása Ut
(mál) og reyna aö gera að mis-
klíðarefni” og ,,sá fræi sundur-
lyndis” o.fl.?
Um langt skeiö hafa almennir
hestamenn nöldrað sin á milli
um deyfð og aögerðaleysi
stjórnar L.H. Stjórnin hefur
safnaö á sig löngum hala óunn-
inna verkefna, sem henni hafa
verið falin, ýmist af ársþingum
eðabeinlinis i lögum L.H. Þetta
vita almennir hestamennogeru
óánægðir,, Tilgangur minn meö
aösegja fréttir af óánægjunni er
aö opna augu stjórnarinnar,
sem þvi m iður viröast lokuð fyr-
irumhverfinu, fyrirstööu mála,
Sigurjón
Valdímarsson
i þá veru að opna umræðu og
eyða misklið og sundrung.
Snjallir iþróttamenn
1 fyrra skiptið, sem stjórnar-
menn L.H. hófu iþróttina ,,að
stinga á bólunni”, og A.J. minn-
ist svo hreykinn á, tókst þeim
snilidarlega að foröast að nefna
málefnið nokkru sinni. Það
sannaðist hins vegar að gagn-
rýni mfn vakti aðra hestamenn
til umhugsunar og það er
margra þeirra mál aö hún eigi
stóran þátt I að nú fara ársþing
fram með öðrum og betri hætti.
Þarf ekki guð, ég gat
Nú bið ég stjórnarmenn að
hlífa mér og öðrum viö gömlu
plötunnium mikiö fórnfúst starf
unnið I sjálfboðavinnu. Vissu-
lega er stjórninni falið mikið
starf, EN fyrir þrem árum bauð
ársþing henni starfsmann, hún
afþakkaöi. Ari siöar — fyrir
tveim árum — samþykkti árs-
þing að starfsmaður skuli ráð-
inn thálftstarf. Stjórnin hunds-
aði þá samþykkt. 1 fyrra er svo
þessi samþykkt Itrekuð en
stjórnin gerir ekkert meö hana
fyrr en fyrir fáum dögum, að
framkvæmdastjóri er ráöinn i
1/3 starf.
Faðir vor, þú sem
ert....
Kannski lýsir A.J. afstöðu
stjórnarinnar með setningu i
grein sinni, svohljóðandi: Ekki
fæ ég séð hvaö S.V. koma þessi
mál við. (Tilvitnun lýkur) Þessi
orð formannsins lýsa svo tak-
markalausri fyrirlitningu hans
á óbreyttum félögum i L.H. og
upphafningu stjórnarinnar yfir
almenna og litilfjörlega aö ég
kýs heldur að lita á þau sem
pennaglöp formannsins en skoð-
un stjórnarinnar.
Sigur jón V aldimarsson
óbreyttur félagi I L.H.
EFLVM TÍMANN
Sjálfboðaliðar hringi i sima
86300 eða 86538, Siðumúla 15
Reykjavik, á venjulegum skrif-
" tofutima. ^
Þeim sem senda viija framlög
til blaðsins er bent á að giró-
seðlar fást i öllum pósthúsum,
bönkum og sparisjóðum. Söfn-
unarreikningurinn er hlaupa-
reikningur nr. 1295 i Samvinnu-
bankanum.
Styrkið Tímann
Fyllið út þennan seðil og sendið til Tímans
í pósthólf 370, Reykjavík
Ég undirritaður vil styrkja Timann með
þvi að greiða i aukaáskrift
q heiia Q háifa á mánuði
Nafn__________________________________________
Heimilisf.-----------------------—------------
Sími