Tíminn - 04.12.1979, Síða 11
Þriöjudagur 4. desember 1979
Magnús Ingólfsson kosninga-
stjóri B-listans i Kópavogi
hefur lagt nótt viö dag nii aö
undanförnu, eins og allir þeir
vita, sem komiö hafa á kosn-
ingaskrifstofuna sföustu vik-
urnar. Menn uröu þvi undr-
andi þegar þeir sáu i sunnu-
dagsblaöinu okkar mynd af
Skúla Sigurgrimssyni bæjar-
fulltrúa Framsóknarfiokksins
i Kópavogi meö þeim myndar-
texta, aö hann væri oröinn
Magniis Ingólfsson kosninga-
stjóri! Auðvitað var hér um
þaö aö ræöa aö myndirnar
vixluðust, og eru þeir báöir,
Skúli og Magnús, beðnir vel-
virðingar á mistökunum.
Séra Árelíus Níelsson mun flytja síð-
ustu messu sína í útvarp um áramót
ÁM— Um næstu áramót
hyggst séra Árelíus
Níelsson, sóknarprestur í
Langholtsprestakalli láta
af prestsskap eftir 40 ára
þjónustu. Við áttum
stutt spjall við séra Árelí-
us af þessu tilefni og
spurðum hann um starfs-
feril hans.
„Ég tók guðfræðipróf 1940 og
varð fyrst prestur að Hálsi i
Fnjóskadal, en var þar ekki
nema til haustsins og fór þá
vestur að Stað á Reykjanesi i
-Reykhólasveit. Þar var ég i tæp
þrjú ár. Þvi næst var ég prestur
á Eyrarbakka, Stokkseyri og i
Gaulverjabæ og var þar i nær
tiu ár. Þá fór ég til Reykjavikur
og hef verið hér i 27 ár.
Nú er kominn timi til fyrir
mig að hætta, þetta er orðinn
langur timi og breytingarnar'
frá þvi er ég hóf prestsskap eru
orðnar of margar eða of miklar,
eftir að söfnuðinum var stiað i
sundur. Segja má, að ég sé enn á
sama stað en allt orðið gjör-
breytt.
Mér fannst ég vera að byggja
þetta upp hér, en nú þykir mér
sem þetta sé allt að sléttast út.
Ég gæti nefnt að okkur hefur
gengið erfiðlega að ktrma
kirkjuþákinu á, en kirkjan var
hönnuðog byggð fyrir 20 þúsund
man"a söfnuð, sem nú telur að-
eins 5500 manns. Ætli hitt sé
ekki komið upp i Breiðholt? Ég
held að Reykjavik eigi bráðum
að hætta að vera til og verða
eins konar fjallaborg, — eitt
samfellt Breiðholt i fyllstu
merkingu orðsins.
En maður getur litið yfir
langan veg, — fyrstu þrjú bú-
skapar- og prestsskaparár min
höfðum við aðeins tvö.smá her-
bergi til umráða, höfðum enga
eldavél, aðeins primus á borðs-
horni og kenndum að auki
fimmtán nemendum i þessum
vistarverum og sváfu þrjár
námsmeyjanna i öðru herberg-
inu.
En timarnir hafa breytst i
þessu sem öðru. Flest urðu
fermingarbörn hér 317 árið 1963,
— i fyrra voru þau aðeins 30.
Hópurinn árið 1963 vann vand-
aðar verkefnabækur fyrir ferm-
ingu sina, en nú þykir ekki hægt
að leggja slikt erfiði á börn.
Spurningarnar verða að vera
tómur leikur núna og kannski
ættu börn ekki að fermast hjá
gömlum prestum lengur.
En ég er þó ekki svartsýnni en
það, að ég held að fólk sé betur
kristið i dag en áður var. Dæmi
um það finnst mér vera hvernig
búið er að öryrkjum, þröska-
hömluðum og smælingjum. A
Séra Arellus Nielsson lætur af
prestsskap
okkar timum tiðkast það heldur
ekki lengur aö stia börnunum
sitt i hvora áttina, þegar faöir-
inn fellur frá, eins og fyrr var
gert og bæta þannig á raunir
ekkjunnar.
En vel á minnst, — liklega hef
ég ritað i Timann lengur en
flestir aðrir, eða i 23 ár. I 23 ár
ritaði ég hugvekjur á hverjum
sunnudegi i blaðið og á ekki
nema góðar minningar um það
og blaöið. Ég fékk aldrei nema
þakkir fyrir það starf.
Ég veit ekki hvenær eða hvort
ég kveð söfnuðinn, mér væri
kærara að hverfa, ef svo má
segja. Þess hefur verið farið á
leit við mig, að ég verði með
messu i útvarpi hinn 30. desem-
ber nk., en ég hef sótt um lausn
frá embætti frá og með 1. janúar
1980. Það verður liklega mitt
siðasta prestsverk i þessu em-
bætti”.
Timinn
er
peningar
Verslióísérverslun með
LITASJÓNVÖRPog HUOMTÆKI
29800
BUÐIN Skipholti19
" /
Gömlu
,græjurnar'
upp í
Já, auðvitað tökum við lika notuð
og ónýt hljómtæki
uppí ný frábær hljómtæki frá
Crown, - Bang & Olufsen, - Dual eða
Nordmende.
Við í Radíóbúðinni veitum þarfa
þjónustu, sem fólk kann að meta
- það hefur sýnt sig.