Tíminn - 04.12.1979, Qupperneq 13
4 r » » . .____________________________________________J ' • t * I,
Þriðjudagur 4. desember 1979
' ÍÞRÓTTIR
ÍÞRÓTTIR
13
KR-ingar unnu öruggan sigur 26:21
Framarar eins og
höfuðlaus her...
Pétur skoraði
Pétur Pétursson skoraði eitt mark þegar
Feyenoord vann stórsigur 5:1 yfir Willem II I
hollensku 1. deildarkeppninni. Pétur er nú
langmarkhæstur I Hollandi — hefur skorað 16
mörk, en Kist, sem var markhæsti leikmaður
Evrópu 1979, er i ööru sæti — meö 10 mörk.
Arnór Guðjohnsen og félagar hans hjá Lok-
eren unnu sigur 3:1 yfir Lieres en Standard
Liege gerði jafntefli 0:0 gegn Hassel.
þegar Atli Hilmarsson
var tekinn úr umferð
KR-ingar unnu auðveldan sigur
26:21 yfir ráðvilltum leikmönn-
um Fram I l.deildarkeppninni I
handknattleik, þegar þeir mætt-
ust I Laugardalshöllinni á
su nnudagsk völdið. Þegar
Framarar voru yfir 16:15 — var
Haukur Ottesen látinn taka
aðalskyttu Fram, Atla Hilmars-
son, úr umferð og við það hrundi
leikur Framara, sem voru eins
og höfuðlaus her.
Framarar léku eins og
meistarar i byrjun — Gissur
Agústsson varði vel i markinu
hjá þeim og sóknarleikurinn var
liflegur. Framararnáðu þriggja
marka forskoti — 5:2 á 10 min.
leiksins, en þá hrökk allt I bak-
lás hjá þeim og þeir skoruðu
ekki nema 1 mark i næstu
minúturnar. A sama tima voru
KR-ingar grimmir I vörninni —
þeir breyttu stöðunni úr 2:5 i
lÓ:6og voru yfir 11:8 i leikhléi.
Framarar með Atla Hilmars-
son sem aðalmann náðu aö
jafna metin 14:14 og komast yfir
16:15. En þá hrökk allt I baklás
aftur, enda höfðu KR-ingar tek-
ið til þess ráðs að taka Atla úr
umferð.
Þegar staöan var 19:18 fyrir
KR-inga, tóku þeir leikinn i sin-
ar hendur og skoruðu 5 mörk i
röð — 24:18 og sigur þeirra 26:21
var öruggur.
KR-ingar unnu ekki leikinn á
stórleik — þeir þurftu þess ekki,
þar sem Framararnir voru af-
spyrnulélegir. Það voru aðeins
tveir leikmenn Fram sem sýndu
eitthvað — þeir Atli Hilmarsson
og Gissur Kristjánsson, sem
varði 13 skot og kom hann i' veg
fyrir aö Framarar fengu meiri
útreið hjá KR-ingum.
KR-ingar voru jafnir I leikn-
um — baráttan var aðalmerki
þeirra. ólafur Lárusson skoraði
skemmtileg mörk og þá varði
Gisli Felix Bjarnason oft vel i
markinu.
aílMÍS
GISSUR AGÚSTSSON...bjargaði Fram frá stórtapi — hér sést hann vera búinn aö verja frá Kon-
ráði Jónssyni.
(Timamynd Róbert)
Mörkin i leiknum skiptust
þannig:
FRAM: — Atli 8, Andrés 6 (4),
Hannes 2, Erlingur 2, Björn 1,
Egill 1 og Birgir 1.
KR: — Ólafur L. 7, Haukur 6,
BjörnP. 5 (2), Konráð 5 og Frið-
rik 3.
MAÐUR LEIKSINS: Atli
Hilmarsson.
—SOS
Shous
skoraði
100 stig
— þegar Ármann vann
Skallagrim 118:109
Blökkumaðurinn smávaxni hjá
Armanni — Danny Shous, var
heldur betur i essinu sínu, þegar
Armenningar unnu sigur 118:109
yfir Skallagrimi i 1. deildar-
keppniuni i körfuknattleik, þegar
þeir mættust i Borgarnesi. Hann
geröi sér litið fyrir og skoraöi 100
stig i leiknum, sem er alveg frá-
bær árangur. „Spóinn” — Webst-
er hjá Skallagrimi, sem lék áöur
með KR, skoraði 60 stig.
-sos
Fram fór
léttmeð Val
Framstúlkurnar unnu léttan
sigur 19:15 yfir Valsstúlkunum i
1. deildarkeppni kvenna I hand-
knattieik. Fram og KR eru nú
taplaus i deildinni, en KR vann
stórsigur yfir Grindavik — 21:5.
Haukar lögðu Fll að velli 18:15
og Þór frá Akureyri vann sigur
22:18 yfir Vikingi á Akureyri.
Sonja setti Islandsmet
Sonja Hreiðarsdóttir úr Ægi
setti nýtt islandsmet i 400 m
bringusundi i Hafnarfiröi á
laugardaginn, er hún synti vega-
lcngdina á 5:58,3 min. Ægir vann
yfirburðasigur i hikarkcppninni
— Iilaut 235 stig, en HSK hlaut 167
stig, ÍA 126, ÍBK 106 og Armann
fékk aðeins 2 stig.
SONJA HREIÐARSDÓTTIR
Víkingar sprungu
á lokasprettinum
og Heim sigraði 23:19 í Gautaborg
VÍKINGAR sprungu á
lokasprettinurri/ þegar þeir
mættu Heim í Gautaborg í
fyrri leik liöanna í Evrópu-
keppni bikarmeistara.
Þegar 8 mín-voru til leiks-
loka var staöan 19:18 fyrir
Heim, en þá hrökk allt í
baklás hjá Víkingum. —
Þeir misnotuöu tvö hraða-
upphlaup og Svíarnir náðu
aö tryggja sér sigur —
23:19.
Vikingar náðu sér aldrei fylli-
lega á strik i Gautaborg — hafa
oftast leikið betur. Heim byrjaði
leikinn af miklum krafti — komst
yfir 4:1 en staðan var 13:10 fyrir
Heim i leikhléi. Jens Einarsson
byrjaði i markinu hjá Vikingum,
en hann „fann sig ekki”, svo
Kristján Sigmundsson tók stöðu
hans, og varði hann mjög vel.
Vfkingar réttu úr kútnum i
seinni hálfleik. — Þeir náðu að
minnka muninn i eitt mark 18:19,
en þá sprungu þeir og Heim gerði
út um leikinn.
Þróttarar
unnu í Eyjum
Vestmannaeyingar réðu ekkert
við Ólaf H. Jónsson, þegar hann
komst i ham. — Hann skoraði 5
siðustu mörk Þróttara, sem unnu
nauman sigur 22:21 yfir Tý i 2.
deildarkcppninni i handknattleik.
Það var landsliðsmarkvörður
Svia — Klaes Hellgren, sem var
maðurinn á bak við sigur Heim.
Hvað eftir annað varði hann
snilldarlega — alls 20 skot i leikn-
um.
Ef Vikingar ná góðum leik gegn
Heim i Laugardalshöllinni á
sunnudaginn, eiga þeir að geta
hæglega unnið upp fjögurra
marka forskot Heim og tryggt sér
þar með rétt til að leika i 8-liða
úrslitum Evrópukeppninnar. Svi-
arnir, sem leika hraðan og
skemmtilegan handknattleik, eru
miklu sterkari á heimavelli,
heldur en útivelli.
Sigurður Gunnarsson og Ólafur
Jónsson skoruðu flest mörk Vik-
inga — 5 sinnum sendu þeir knött-
inn i netið. Erlendur Hermanns-
son skoraði 3 mörk, Páll 3, Arni 2
og Þorbergur 1.
• Léttur
sigur hjá FH
FH-ingar unnu léttan sigur 26:24
yfir lR-ingum i 1. deildarkeppn-
inni i handknattleik I Hafnarfiröi.
ÍR hafði yfir 11:10 I leikhléi, og
siðan 25:20 þegar 5 min. voru til
leiksloka.
FH: — Sæmundur 7, Kristján
A. 6, Pétur I. 4, Hafsteinn P. 4,
|Guðmundur M. 3, og Geir 2.
ÍR: — Bjarni Bessason 9,
I Sigurður S. 5(4), Bjarni Bjarna-
son 4, Guðjón 2, Guðmundur 1,
Bjarni H. 1, Hörður H. 1, og
I Arsæll 1.
MAÐUR LEIKSINS: Bjarni
Bessason.
SIGURÐUR.
gegn Heim.
.. skoraði 5- mörk
• Haukar
voru sterkari
Haukar voru sterkari á enda-
sprettinum gegn HK aö Varmá —
unnu 21:18, en staöan var 11:7 I
leikhléi fyrir Hauka.
HK: — Ragnar 6(3), Guðjón 4,
I Karl 3, Kristinn 2, Magnús G. 1,
I Hilmar 1 og Kristján 1.
Haukar: — Andrés 6, Höröur H.
14(2), Stefán J. 3(3), Þorgeir 3,
Sigurður A. 2, Arni S. 2 og Ingi-
| mar 1.
MAÐUR LEIKSINS: Andrés
I Kristjánsson.