Tíminn - 22.01.1980, Síða 1
Síðumúla 15 • Pósthólf 370 • Reykjavík • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla og óskrift 86300 • Kvöldsímar 86387 & 86392
Brennsla kola i stað oliu hjá SR:
Hagkvæmni og tækni-
leg atriði til
athugunar
Niðurstöður
væntanlegar
innan skannns
JSS — „Hugmyndin um brennslu
kola í stað oliu er nú i athugun
með tiUiti til hagkvæmni og
tæknilegra atriöa”, sagöi Bragi
Ingólfsson verkfræðingur hjá
Sementsverksmiðju rikisins á
Akranesi í viðtali við Timann.
Sagði Bragi að ef af þessar
breytingu yrði, þyrfti að flytja inr
um það bil 20.000 tonn af kolum &
ári. Kolin þyrfti að mala hér og
væri þeim siðan blásið inn á ofn
inn eins og oliunni, þannig að ekk
þyrftu að koma til stórfelldai
breytingar á tækjabúnaði. Aí
visu þyrfti að kaupa mölunartæk:
og koma upp geymslu fyrir kolir
og mætti e.t.v. gera ráð fyrir afi
þær framkvæmdir kæmu til mel
að kosta 2-300 milljónir, en kostn
aðurinn hefði ekki verið reiknað
ur út enn.
,,Ef við flyttum inn kol I dag, þá
myndu gjöldin nema um 500 mill
jónum á ári, miðað við núgildandi
verðlag”, sagði Bragi. „Munur
inn á oliu- og kolaverði er svo gif
urlegur. En þess ber aö geta að
þarna kemur ýmis rekstrarkostn-
aður á móti. í fljótu bragöi virðist
þetta vera sjálfsögð ráöstöfun.”
Þá sagði Bragi að verið væri að
athuga möguleika á staösetningu
á tækjunum og kostnað I sam-
bandi við það. Fyrirtæki það er-
lendis sem hefði séð um allan
vélabúnað i verksmiðjuna á sin-
um tima væri nú til ráðgjafar i
þessu máli og væru niðurstööur
væntanlegar innan skamms.
Aðalhluthaf^
Kreditkorta hf.
Stjórnarformaður tveggja gjaldþrota-
fyrirtækja fyrir skiptarétti
HEI — Nýlega var kynnt fyrir
fjölmiðlum stofnun fyrirtækis-
iis Kreditkort h.f„ sem hyggst
bjóða fólki upp á viðskiptahætti
að erlendri fyrirmynd, þar sem
handhafi litils plastkorts, getur
tekið út vörur og þjónustu fyrir
200-800 þús. króna upphæð
mánaðarlega gegn framvisun
kortsins.
Forsvarsmenn fyrirtækisins
hyggjast fara hægt af staö, þ.e.
að korthafar veröi ekki nema 1
til 2 þúsund i upphafi. Miðað við
þessi umsvif og 500 þús. króna
mánaðarlega meðaltalsúttekt
geta umsvifin þó numiö allt að
einum milljarði mánaöarlega.
Greiðsla fyrir hvert kort er 6
þús. kr. i upphafi og þaö gildir i
6 mánuöi. Kortagjaldið eitt get-
ur þvi numið allt aö 24 milljón-
um kr. i ár.
Viö kynningu á þessum nýju
viðskiptaháttum hefur áhersla
verið lögð á, aö allt byggðist
þetta á gagnkvæmu trausti I
viðskiptum. Sennilega er hinu
óvenju mikla hlutafé Kreditkort
Svavar til
forsetans:
0 Var þetta síöasti fundunnn undir forsæti Svavars Gestssonar? Myndin var tekin á viðræöufund-
inum siödegis i gær.
..Alvarlegur halli
og verðhækkanir síðar”
— telur Þjóðhagsstofnun munu fylgja hugmyndum Alþýðubandalagsins
Svavar Gestsson alþingis-
maöur, sem leitt hefur viðræður
um stjórnarmyndun nú siðustu
dagana, gengur fyrir hádegi i
dag á fund forseta íslands og
gerir honum grein fyrir' gangi
mála.
Siðla i gærkveldi var talið að
Svavar myndi annað hvort skila
af sér þvi umboði, sem hann
hafði fengið til stjórnarmynd-
unar, eða skýra forsetanum frá
því að hann myndi reyna ein-
hverja aöra möguleika en
vinstri stjórn.
í viðræðunum undanfarna
daga hafa tillögur Alþýöu-
bandalagsins verið lagðar til
grundvallar. Samkvæmt áliti
Þjóðhagsstofnunará tillögunum
„hlýtur að fylgja þeim alvarleg-
ur halli árikissjóðiogmisvægi á
lánamarkaði sem kæmi fram I
viðskiptahalla og/eða verð-
hækkunum siðar”.
Eftir þvl sem næst verður
komist hafa alþýðuflokksmenn
tekið mjög illa á tillögur Al-
þýðubandalagsins og ekki ljáð
máls á stjórnarmyndun á
grundvelli þeirra. Framsóknar-
menn óskuöu sérstaklega eftir
áliti Þjóðhagsstofnunar og
munu hafa bent á að taka yrði
tillit til hinna alvarlegu athuga-
semda stofnunarinnar við frek-
ari samkomulagsumleitanir.
Eins og fram kemur i
ályktunarorðum Þjóðhagsstofn-
unar, sem vitnað var til hér að
framan, fela tillögur Alþýðu-
bandalagsins i sér fjármunatil-
færslur sem veita viðnám til
mjög skamms tima, en þá má
gera ráð fyrir að stiflan bresti
meö nýrri holskeflu óðaverð-
bólgunnar, nema þá þvi aðeins
aö ytri skilyrði þjóðarbúsins
hafi af einhverjum ástæðum
batnað mjög verulega.
Mikilvæg undirstöðuatriði i
tillögum Alþýöubandalagsins
eruveruleg framleiðniaukning i
undirstöðuatvinnuvegunum
þegar á þessu ári, en kunnáttu-
menn hafa látið i ljós það álit að
þær hugmyndir séu alls ekki
raunhæfar. Þá gerir Alþýðu-
bandalagið ráð fyrir nýjum
veltuskatti einkum á verslunina
en slikt er talið aö hafa myndi
mjög alvarleg áhrif á stööu
dreifbýlisverslunarinnar. Þá er
ráðfyrirþvi gerti tillögunum að
framkvæmd verði almenn
niðurfærsla verðlags, en bent
hefur verið á að illgerlegt sé að
framfylgja slikri niðurfærslu
enda myndi hún þá einkum
bitna á þeim sem best hafa
staðiö i skilum t.d. með opinber
gjöld. Er taliö að slik aðgerð,
auk hins nýja veltuskatts,
myndi geta haft hrapallegar af-
leiðingar einkum fyrir dreif-
býlisverslun og þjónustustörf.
h.f., sem sagt er nema 50
milljónum.ætlað að auka traust
á fyrirtækinu.
Við könnun i firmaskrá vekur
þó athygli að lang stærsti hluta-
hafinn af 25 alls með hlutafé að
upphæð 9,9 milljónir er Magnús
K. Jónsson fyrrverandi
stjórnarformaöur i fyrirtækjun-
um Myndiðjan Astþór h.f. og
Astþór Magnússon h.f., er þeir
feðgar Astþórog Magnús ráku i
sameiningu þar til þau urðu
gjaldþrota á s.l. ári, sem kunn-
ugt er. Gjaldþrotamál þau eru
til rannsóknar fyrir skiptarétti
Reykjavíkur og eru kröfur
sagðar nema tugum milljóna
króna. Sterkur orðrómur komst
þá á kreik um málamyndagern-
inga og undanskot eigna sem
ekki veröur neinn dómur á
lagður hér.
Frá gjaldþroti fyrmefndra
fyrirtækja hefur Magnús K.
Jónsson rekiö fyrirtækin Mynd-
verk og Girómyndir, sem einka-
fyrirtæki á sama staö og gjald-
þrotafyrirtækin voru til húsa
áöur. t ljósi þess aö húseignir
Magnúsar að Hólastekk 6 og
Dugguvogi 7 eru báðar mikið
skuldfestar I veðmálabókum
Reykjavikur, m.a. meö gengis-
tryggðum lánum og hafa auk
þess verið auglýstar á
nauðungaruppboðum verður
ekki annað ráöiö en að greiöslu-
erfiðleikar hafi hrjáö rekstur
Magnúsar.
Ekki er ætlunin með þessum
framhald á bls. 19.
Utanþings-
stjórn í
sjónmáli?
— Jóhannes Nordal
til fundar við
forseta Isiands
HEI — Sterkur orðrómur gekk
orðið um það meðal stjórnmála-
manna og fleiri I gærkvöldi, að
forseti tslands muni nú alvar-
lega vera farinn aö velta fyrir
sér að koma I veg fyrir öllu
lengri stjórnarkreppu með þvl
að fela manni utan þings s tjórn-
armyndunarumboð sem fyrst.
Það hefur styrkt þennan orð-
róm, að samkvæmt heimildum
sem taldar eru áreðanlegar
muni Jóhannes Nordal hafa
sést fara á fund forsetans sem
þykir eindregið benda til þess,
að forseti hafi rætt við hann um
möguleika á myndun utan-
þingsstjórnar. Menn höfðu
hinsvegar ekki ákveönar
skoöanir á þvi, hvort forsetinn
gripi til þessara úrræða strax I
næsta leik, eða hvort hann lok-
aði hringnum með þvi að fela
Benedikt Gröndal umboð fyrst,
sem almennt er talið vonlaust
um að skili árangri, frekar en
fyrri tilraunir stjórnmála-
mannanna.