Fréttablaðið - 13.04.2007, Blaðsíða 6
2.683 kr.SPARAÐU 2.683 kr.SPARAÐU 2.683SPARAÐU
2.683 kr.SPARAÐU 2.683 kr.SPARAÐU
1.990
4.673
OPIÐ HÚS
HJÁ SVFR
Föstudaginn 13. apríl
ALLIR VELKOMNIR - HÚSIÐ OPNAR KL. 20.00
Dagskrá:
::: Völva Skemmtinefndarinnar spáir fyrir sumarið
og meðal þess sem hún upplýsir er:
- hvar verður besta veiðin?
- núllar stjórnin í Norðurá AFTUR?
- hvar veiðist stærsti laxinn?
- hvaða fluga kemur á óvart í sumar?
::: Veiðistaðalýsing – Varmá-Þorleifslækur
::: Nýfundin gömul veiðimynd- í myndinni er
Íslandsvininum Art Lee fylgt eftir við veiðar á
Íslandi í Elliðaánum, Laxá í Kjós og Laxá í Aðadal.
::: Myndagetraunin á sínum stað
::: Vísubotnakeppni
::: Glæsilegur happahylurinn í boði Ellingsen
Myndir þú vilja að barnið þitt
ynni í álveri í framtíðinni?
Hefur þú fengið hraðasekt?
Geir H. Haarde, for-
maður Sjálfstæðisflokksins, vill
minnka sem fyrst almennar skerð-
ingar í almannatryggingakerfinu
úr um 40 prósentum í 35 prósent.
Einnig vill hann að þeir sem orðn-
ir eru sjötugir geti unnið launaða
vinnu án þess að launin skerði líf-
eyri frá Tryggingastofnun. Þá telur
hann eðlilegt að ríkið tryggi öllum
lágmarkslífeyri frá lífeyrissjóði,
til dæmis um 25 þúsund krónur á
mánuði, til hliðar við greiðslur úr
almannatryggingakerfinu.
Geir upplýsti um þennan vilja
sinn í setningarræðu landsfundar
Sjálfstæðisflokksins í Laugardals-
höll í gær. Í máli hans kom fram
að margt hefði áunnist í velferð-
armálum en á næsta kjörtímabili
gæfist svigrúm til frekari aðgerða.
Í umfjöllun um menntamál kvaðst
Geir telja svigrúm til að draga úr
skerðingu námslána vegna eigin
tekjuöflunar námsmanna.
Geir tíundaði aðgerðir ríkis-
stjórnarinnar í skatta- og efna-
hagsmálum og gaf lítið fyrir gagn-
rýni stjórnarandstöðunnar í þeim
efnum. Sagði hann meðal annars
Ísland standast með glans próf um
jöfnuð í þjóðfélaginu þó að ein-
hverjir hefðu efnast mjög veru-
lega.
Þeir sem minnst hefðu milli
handanna hafi einnig bætt stöðu
sína svo um muni. Þá sagði hann
tal stjórnarandstöðunnar um hag-
stjórnarmistök innantómt „þó
vissulega hafi þenslan hér af
ýmsum ástæðum orðið meiri en
ætlað var“. Spurði hann hvort
kaupmáttaraukning, niðurgreiðsla
skulda ríkissjóðs, full atvinna og
hagvöxtur væru hagstjórnarmis-
tök.
Í ræðunni varð Geir tíðrætt um
umhverfismál og sagði það trú
sjálfstæðismanna að best færi á að
einstaklingurinn stjórnaði sér sem
mest sjálfur í þeim efnum sem
öðrum. Hvetja ætti fólk til að velja
umhverfisvæna kosti frekar en að
beita aðferðum vinstri manna og
setja boð og bönn á lífsvenjur sem
fólk hefði valið sér.
Geir sendi Birni Bjarnasyni
dómsmálaráðherra kveðjur en
hann gekkst undir aðgerð á sjúkra-
húsi á miðvikudag. Þá þakkaði
hann Kjartani Gunnarssyni, fram-
kvæmdastjóra flokksins til 26 ára,
óeigingjörn störf. Hylltu fundar-
menn Kjartan með því að rísa úr
sætum.
Sjálfur var Geir svo hylltur við
lok ræðu sinnar með dynjandi lófa-
taki.
Sjötugir geti unnið
án skerðingar lífeyris
Efnahagur, umhverfi og velferð voru efst á baugi í ræðu Geirs H. Haarde, for-
manns Sjálfstæðisflokksins, við upphaf landsfundar í gær. Geir vill minnka
skerðingar í almannatryggingakerfinu og draga úr skerðingu námslána.
Sprengjuárásirnar
í Algeirsborg á miðvikudaginn hafa
endurvakið ótta við að nýr Norður-
Afríkuarmur Al Kaída-samtakanna
sé orðinn það öflugur að veruleg
hætta stafi af, ekki bara í Alsír held-
ur víða um norðanverða Afríku.
Lögreglan í Alsír hefur gripið til
harðra aðgerða, sett upp eftirlits-
hlið víða um borgina og lokað götum
nálægt forsetaskrifstofunum.
Að minnsta kosti 33 fórust og
tæplega 300 særðust þegar tvær
sprengjur sprungu í Algeirsborg,
önnur á skrifstofum forsætisráð-
herra Alsír en hin á lögreglustöð. 57
manns voru enn á sjúkrahúsi í gær.
Á síðustu mánuðum hafa ný sam-
tök herskárra múslima, tengd Al
Kaída, verið að sækja í sig veðrið á
ný og lýstu samdægurs yfir ábyrgð
sinni á árásunum. Þessi nýju sam-
tök eru reist á grunni gömlu Sala-
fistasamtakanna, GSPC, sem stóðu
í blóðugri uppreisn gegn stjórn-
völdum á síðasta áratug. Sú upp-
reisn hófst árið 1992 eftir að stjórn
landsins ógilti niðurstöður kosn-
inga þar sem samtök múslima
höfðu unnið yfirburða sigur.
Abdelaziz Bouteflika forseti efndi
til fundar með æðstu embættis-
mönnum landsins þar sem ákveð-
ið var að reyna að finna leiðir til að
gera uppreisnarmennina ófæra um
að valda frekari skaða.
Harðar aðgerðir lögreglu
Tæplega fimmtug-
ur maður í Kaliforníu, Gregory
Daniels, missti gervifót og náð-
ist því fljótlega á flótta undan lög-
reglunni eftir að hafa reynt að
stela 680 kílóa þungum hraðbanka
úr verslun í bænum Pomona.
Daniels kom ásamt félaga
sínum á pallbíl að versluninni,
braut þar rúðu og vafði keðju
utan um hraðbankann. Síðan óku
þeir á hraðbankann til að losa
hann frá gólfinu.
Þegar þeir óku burt með hrað-
bankann var lögreglan komin og
elti þá. Félaganum tókst að flýja
hlaupandi en Daniels var svo
óheppinn að missa gervifótinn.
Missti gervifót
á flóttanum