Fréttablaðið - 13.04.2007, Blaðsíða 36
BLS. 4 | sirkus | 13. APRÍL 2007
Heyrst hefur
Það er ekki alltaf tekið út með sældinni að njóta velgengni í
lífinu. Knattspyrnukappinn Eiður
Smári Guðjohnsen, sem leikur með
spænska stórliðinu Barcelona, komst
að því á dögunum þegar óprúttnir
náungar gerðu tilraun til að brjótast
inn í glæsilegt heimili fjölskyldu hans
sem er rétt fyrir utan Barcelona.
Þjófarnir komust þó ekki lengra en að
hliðinu fyrir framan húsið því öflugt
öryggiskerfi sá til þess að iðja þeirra
komst upp.
Eiður Smári var ekki heima þegar
glæpamennirnir lögðu til atlögu en
sambýliskona hans, Ragnhildur
Sveinsdóttir, var ein heima með syni
þeirra þrjá, Svein Aron, átta ára,
Andra Lúkas, fimm ára og Daníel
Tristan, eins árs. Var henni eðlilega
verulega brugðið þegar hún heyrði að
baukað var við garðshliðið seint að
kvöldi.
Þegar lögreglan kom á staðinn eftir
töluvert langan tíma voru þjófarnir á
bak og burt en auk lögreglunnar mætti
eins konar öryggissveit frá Barcelona-
liðinu sem sér um að gæta öryggis
leikmanna liðsins sem eru margir
hverjir metnir á milljarða. Þessi sveit
þykir ekki árennileg enda er það
hennar hlutverk að sjá til þess að
ekkert hendi rándýra leikmenn liðsins.
Eiður Smári vildi ekki tjá sig um
málið þegar Sirkus leitaði eftir því.
oskar@frettabladid.is
FJÖLSKYLDA EIÐS SMÁRA GUÐJOHNSEN Í KRÖPPUM DANSI Í BARCELONA
KONAN OG SYNIRNIR ÞRÍR
EIN HEIMA ÞEGAR REYNT
VAR AÐ BRJÓTAST INN
SKOTIÐ SKELK Í BRINGU Ragnhildur Sveinsdóttir, sambýliskona Eiðs Smára, sést hér gefa Daníel Tristan pela þegar Eiður Smári
hélt blaðamannafund og tilkynnti að hann væri genginn til liðs við Barcelona. Ragnhildur varð fyrir þeirri óskemmtilegu reynslu að
reynt var að brjótast inn á heimili þeirra í Barcelona á meðan hún var ein heima með synina þrjá.
Regína Ósk:
Sá Björk í
fyrsta sinn
MJÖG GAMAN Regína Ósk hafði mjög
gaman af tónleikum Bjarkar í Laugar-
dalshöllinni á mánudag..
SKEMMTU SÉR VEL Söngkonan Regína
Ósk ásamt kærastanum, Sigursveini Þór
Árnasyni.
Dívur slógu í gegn á Domo
„Við erum alsælar,“ segir Hera Björk
Þórhallsdóttir en hún, Margrét Eir,
Heiða Ólafs og Regína Ósk héldu vel
heppnaða tónleika á veitingastaðnum
Domo í vikunni. Stelpurnar tóku
uppáhaldslögin sín og sungu ýmist allar
saman, sóló og dúetta. „Þetta gekk
rosalega vel og við skemmtun okkur
vel,“ segir Hera Björk en húsfyllir var á
tónleikunum. Aðspurð segir Hera aldrei
að vita nema þær stöllur komi saman
aftur og hún segir allt hafa orðið vitlaust
þegar þær tóku lag eftir Spice Girls. „Við
förum bara í samkeppni við Spice Girls
og fáum vonandi plötusamning við
erlendan risa,“ segir Hera hlæjandi.
„Mér fannst mjög gaman en ég hafði
aldrei séð hana á tónleikum áður,“
segir söngkonan Regína Ósk
Óskarsdóttir sem skellti sér á
tónleika Bjarkar Guðmundsdóttur.
Regína viðurkennir að hún sé ekki
mesti aðdáandi Bjarkar og að það
hefði líklega verið enn skemmtilegra
ef hún hefði hlustað á tónlistina áður
en hún skellti sér á tónleikana. „Ég er
ekki mesti aðdáandi hennar en
langaði að sjá hana en hefði viljað
sitja í stúku. Þá hefði ég örugglega
skemmt mér enn betur. Ég skemmti
mér samt mjög vel þótt það sé alltaf
erfitt að melta nýtt efni sem maður er
að heyra í fyrsta skiptið,“ segir
Regína. Uppselt var á tónleikana sem
haldnir voru í Laugardalshöll og
þóttust takast mjög vel.