Fréttablaðið - 13.04.2007, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 13.04.2007, Blaðsíða 34
BLS. 2 | sirkus | 13. APRÍL 2007 Það vita það ekki allir en Halla Vilhjálmsdóttir, kynnir í X-factor- þáttunum, fór hreinlega á kostum í öllum auglýsingahléum meðan á þáttunum stóð. Halla þurfti að halda uppi stemningunni í salnum á meðan ekkert var að gerast og fórst það afar vel úr hendi. Meðal þess sem hún bauð upp á var að hún fór bæði í splitt og spíkat fyrir áhorf- endur eftir mikla hvatningu úr salnum. Hún gerði þetta í fjórum síðustu þáttunum við mikla lukku áhorfenda. Halla segir í samtali við Sirkus að þetta væri ekki mikið mál fyrir hana. „Ég hef verið liðamótalaus frá því að ég var krakki og ég hafði það alltaf á tilfinningunni að mamma hefði átt mig með einhverju sirkusfríki. Hún neitar því þó og ég trúi því. Það er ekkert mál fyrir mig að fara í splitt og spíkat svo framarlega sem kjóllinn er nógu víður og ég er í nærbuxum,“ segir Halla og hlær. Halla fór í splitt og spíkat í X-faktor LIÐUG Eins og sjá má á þessari mynd átti Halla Vilhjálms ekki í neinum vandræðum með að skella sér í spíkat fyrir áhorfendur á úrslitakvöldinu síðastliðinn föstudag. SIRKUSMYND/ANTON Heyrst hefur Heiðrún Lind komin í fang Halla Sjálfstæðiskonan Heiðrún Lind Marteinsdóttir, sem það helst hefur unnið sér til frægðar að vera kosninga- stjóri Gísla Marteins Baldurssonar í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins fyrir borgar- stjórnarkosningarnar 2006, er komin með nýjan mann upp á arminn. Sá er enginn annar en Halli Hansen sem er þekktastur fyrir það í seinni tíð að hafa staðið fyrir innrás írskra offitusjúklinga í Hvammsvík síðasta sumar. Eigandi Eyktar byggir sumarhöll Pétur Guðmundsson, stjórnarformaður og eigandi byggingaverktakafyrirtækis- ins Eyktar, stendur nú í stórræðum við að byggja sér veglega sumarhöll í Grímsnesi. Höllin, sem er rúmir 300 fermetrar að stærð, er á besta stað í Grímsnesinu, steinsnar frá Kiðjabergs- velli, hinum glæsilega 18 holu golfvelli, sem verður vinsælli með hverju árinu. Meðal þeirra sem hafa keypt sér bústað í landi Kiðjabergs undanfarið er lögmaðurinn Steinar Þór Guðgeirsson, sem er framkvæmdastjóri Lögfræðistofu Reykjavíkur. 100.000 atkvæði í X-factor Alls greiddu 100 þúsund manns atkvæði í símakosningunni í úrslitaþætti X-factors síðastliðið föstudagskvöld. Færeyingur- inn Jógvan Hansen fór með sigur af hólmi með rétt rúm 70 þúsund atkvæði en Hara-systurnar úr Hveragerði fengu um 30 þúsund atkvæði. Að sögn Pálma Guðmundssonar, sjónvarpsstjóra Stöðvar 2, er þetta með því mesta sem sést hefur í símakosningu hjá stöðinni sem sýndi þrjár þáttaraðir af Idol áður en X-factor fór í loftið. Til samanburðar gaf RÚV upp að 150 þúsund manns hefðu kosið í símakosningu á lokakvöldi Eurovision fyrir skömmu. LIÐAMÓTALAUS Halla fer í splitt eins og að drekka vatn. SIRKUSMYND/SIGURJÓN RAGNAR „Jú, það er rétt. Ég þarf meira pláss en aðrir,“ segir Guðjón Arnar Kristjáns- son, formaður Frjálslynda flokksins, spurður um þá staðreynd að hann þurfti breiðari stól en aðrir formenn stjórnmálaflokkanna þegar leið- togarnir mættu saman í Kastljósi RÚV á mánudaginn. Tekið var eftir því að Guðjón Arnar sat í öðruvísi stól en Jón Sigurðsson, Geir H. Haarde, Ómar Ragnarsson, Stein- grímur J. Sigfússon og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir meðan á umræð- unum stóð. „Það fer ekkert á milli mála að ég er öðruvísi en hinir formennirnir. Ég geng ekki um í neinum blekkingar- leik með það að ég er alltof þungur,“ segir Guðjón Arnar. Lengi hefur fólk haft áhyggjur af heilsu Guðjóns Arnars sem er, eins og hann sjálfur viðurkennir, hressilega yfir kjörþyngd. Hann segist þó vera hraustur á líkama og sál og hræðist ekki það mikla álag sem fram undan er næstu fjórar vikurnar fyrir kosningar. „Heilsan er góð. Ég hef lengi verið í þyngri kantinum og var til að mynda kominn yfir 100 kíló þegar ég var sautján ára. Ég er hins vegar vanur að vinna mikið þannig að komandi álag hræðir mig ekki neitt,“ segir Guðjón Arnar. Spurður hversu þungur hann sé í dag segist hann ekki vilja gefa það upp. „En ég yrði ekki óhamingju- samur ef ég losnaði við nokkur kíló,“ segir Guðjón Arnar og hlær. Hann segir erfitt að lifa heilbrigðu lífi í því annasama starfi sem hann sinnir sem þingmaður Norðvestur- kjördæmis og formaður Frjálslynda flokksins. „Ég nefni sem dæmi að ég borðaði banana í morgun klukkan átta en hef ekkert borðað í dag og mun væntanlega ekki borða neitt fyrr en seint í kvöld. Það er auðvitað ekki mjög hollt,“ segir Guðjón og dæsir. Formaðurinn hefur líka lengi stundað sund sér til heilsubótar en sér fram á að leggja skýlunni fram að kosningum. „Það er bara ekki tími núna. Ég hef reynt að komast í sund tvisvar í viku og syndi þá svona 500 til 1.000 metra. Ég mun taka upp þráðinn á ný í lauginni þegar kosningarnar eru yfir- staðnar,“ segir fílhraustur en alltof þungur Guðjón Arnar. Þegar Sirkus spurði Þórhall Gunnarsson, ritstjóra Kastljóss, hvort uppi hefði orðið fótur og fit þegar ljóst var að Guðjón Arnar féll ekki eins og flís við rass í nýju stólana, sagðist hann ekki vilja tjá sig um það. „Það sem gerist í stúdíóinu hjá okkur fer ekki þaðan út,“ sagði Þórhallur. oskar@frettabladid.is GUÐJÓN ARNAR KRISTJÁNSSON, FORMAÐUR FRJÁLSLYNDRA, ER EKKI EINS OG HINIR KOMST EKKI Í STÓLINN EN ER VIÐ HESTAHEILSU LEYNDARMÁL Þórhallur Gunnarsson, ritstjóri Kast- ljóss, vill ekkert gefa upp um stólamálið, segir það vera mál sem engum komi við nema þeim sem voru staddir í stúdíóinu. HEILSUHRAUSTUR Eins og sést á þessari mynd er Guðjón Arnar mikill á velli og hefur fólk haft þungar áhyggjur af holdafari hans. Guðjón Arnar þakkar umhyggjuna en segist vera við hestaheilsu. Í LAUGINNI Guðjón þarf að leggja skýlunni á meðan kosningabaráttan stendur sem hæst en hann reynir yfirleitt að komast í sund tvisvar í viku. ÖÐRUVÍSI STÓLL Guðjón fékk annan stól en hinir flokksformennirnir í Kastljósi á mánudag enda eru þeir ekki sniðnir fyrir stóra og breiða menn. Zúúber – morgunþáttur alla virka morgna frá kl. 7.00–10.00.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.