Fréttablaðið - 13.04.2007, Side 40

Fréttablaðið - 13.04.2007, Side 40
BLS. 8 | sirkus | 13. APRÍL 2007 karlmanni landsins þetta árið. Það hjálpaði líka til að Sæunn Ósk og stelpurnar á hárgreiðslu- stofunni fundu upp slagorðið „Færeyski folinn“ og hönnuðu boli með þeirri áletrun. Jógvan segist ekki hafa vitað fyrst hvað foli þýddi. „Ég veit það hins vegar núna,“ segir hann og brosir. Spurður um kvenhylli og áhuga hins kynsins á honum vill Jógvan lítið tjá sig um slíkt. „Ég ætla ekki að svara spurningum um aukinn áhuga kvenna á mér. Það skiptir mig engu máli þótt fólk sé að hugsa um það og tala um það. Útlit mitt skiptir engu máli og það hvort konur hafa áhuga á mér er algjört aukaatriði sem ég ætla ekki að ræða. Ég hef enga þörf fyrir að koma fram í fjölmiðlum og segja hvað ég sé sætur eða hversu margar konur hafa áhuga á mér,“ segir Jógvan. Páll Óskar var bara að sýnast Það verður ekki undan því vikist að ræða um samkynhneigð í þessu viðtali. Margir hafa velt því fyrir sér hvort Jógvan sé samkynhneigður og þótt það komi honum ekki á óvart þá segist hann ekki þurfa að ræða það neitt sérstaklega. „Ég er orðinn vanur þessu. Þegar karlmaður í Færeyjum fer að læra hárgreiðslu þá koma margar hugsanir og skoðanir fram. Ég er búinn að fá minn pakka af „hommaslúðri“. Það er alls staðar fólk sem er með „hommafóbíu“, bæði hér í Reykjavík og í Færeyjum. Færeyingar eru auðvitað mjög trúaðir og ég held að eldra fólkið hafi sérstaklega fordóma gegn hommum. Okkar kynslóð er hins vegar ekki með fordóma. Ég er ekki viðkvæmur fyrir hommatalinu. Ég er að syngja fyrir alla, ekki bara gagnkynhneigða,“ segir Jógvan. „Ég lærði á fiðlu, fór í hárgreiðslu og förðun. Ég gat búist við því að þetta yrði tengt við samkynhneigð,“ segir Jógvan og hlær. Hann fékk sinn skerf af grófum athugasemd- um frá Páli Óskari í X-factor en segist bara hafa haft gaman af því. „Þetta var nú bara hluti af sýningunni hjá Palla. Ef hann hefði verið að reyna við mig baksviðs hefði ég aldrei látið það viðgangast en ég veit að hann var að gera þetta til að skemmta fólki. Það stóð auðvitað ekki í samningnum hans að hann ætti að gera þetta en Páll Óskar er Páll Óskar. Hann segir alls konar hluti og mér finnst það bara fyndið ef fólk er að hneykslast á þessu. Palli byrjaði kannski þessa umræðu en hann endaði hana líka þegar hann lýsti því yfir í einum þættinum að ég væri „straight“. Ég bað hann ekki um það. Mér finnst ég ekki þurfa að segja neitt um þetta. Vinir mínir og fjölskylda vita hvernig málin standa og það nægir mér. Aðrir geta velt sér upp úr þessum hlutum. Það er mér að sársaukalausu.“ Ekki íslensk lög í framtíðinni Í úrslitaþættinum þurftu Hara og Jógvan að syngja nýtt íslenskt lag eftir þá Óskar Pál Sveinsson og Stefán Hilmarsson. Það var vitað mál að það yrði ekki auðvelt fyrir Færeyinginn Jógvan en hversu erfitt var það í raun og veru? „Það er ekkert mál að tala íslensku og ég get blaðrað út í eitt við fólk. Það er hins vegar annað mál að fara í sjónvarp og syngja nýtt lag á íslensku. Ég fékk textann á þriðjudagskvöld og það var mjög erfitt að læra hann. Ég var kannski hræddari fyrst en síðan varð ég bara kærulaus og hugsaði að fólk myndi skilja mig þótt ég syngi með smá hreim. Einar var alltaf að reyna að fá mig til að syngja íslenskt lag í keppninni en ég neitaði alltaf. Fólk vissi að ég var útlenskur og tók þessu held ég bara vel og með opnum huga. Ég ætla þó ekki að byggja framtíð mína á íslenskum lögum. Ég held að það væri ekki gott fyrir móðurmálið ykkar,“ segir Jógvan og hlær. Aðspurður hvert hann stefni í framtíðinni segist Jógvan ekki vita það upp á hár. „Ég vona bara að ég og Einar getum gert eitthvað skemmtilegt saman. Það verður gerð plata, bæði með frumsömdum lögum eftir mig og fleiri sem og lögum úr X-factor. Öll lögin verða á ensku, líka lagið í úrslitaþættinum ef ég fæ leyfi til. England heillar og kannski á maður að setja markið nógu hátt. Markmiðið er ekki að verða heimsfrægur í þeim skilningi. Frægðin skiptir ekki máli heldur tónlistin. Hún er fíkn og ef hægt er að lifa af henni þá væri það draumur. Ég er hins vegar langt frá því núna. Það er mikilvægt að halda auðmýktinni og vera á jörðinni. Það er auðvelt að týnast í þessum bransa.“ Já, taka allan pakkann „drug, sex and rock n´ roll“? „Ég held að ég taki bara það síðasta af þessu þrennu, jú og kannski smá sex með,“ segir Jógvan og hlær dátt. oskar@frettabladid.is „ÉG HEF REYNDAR EKKI VERIÐ DUGLEGUR VIÐ AÐ FARA Í KIRKJU EN ÉG TRÚI EKKI AÐ GUÐ SÉ Í KIRKJUNNI HELDUR Í HJARTANU.“ „Hann er rosalega vandvirkur, er ofureinlægur og besti klippari sem ég veit um. Hann er ótrúlega hugmyndaríkur og það er ekki annað hægt en að elska þennan mann út af lífinu. Það er rosalega gott að leita til hans því hann er alltaf tilbúinn til að hlusta. Hann á eftir að rúlla öllu upp sem hann tekur sér fyrir hendur.“ Rakel Magnúsdóttir, vinkona Jóg- vans og meðlimur systradúetts- ins Hara. „Jógvan er náttúrutalent. Hann hefur mikla útgeislun, mikla tónlistarhæfileika og honum líður vel uppi á sviði. Það er nefnilega ekki nóg að langa upp á svið. Það verður að hafa eitthvað þangað að gera. Hann hefur mikið að gefa og það er auðvelt fyrir fólk að hrífast með. Hann tók leiðsögn þeirra Kristjönu og Yesmine mjög vel – eiginlega eins og svampur, hann drakk allt í sig sem þær höfðu að bjóða. Ég hlakka mikið til þess samstarfs sem fram undan er.“ Einar Bárðarson, umboðsmaður Jógvans og þjálfari hans í X- factor. „Hann er einn af betri nemendum sem ég hef fengið. Hann kom mér alltaf á óvart því hann toppaði sig svo mikið. Röddin stækkaði mikið, hækkaði um fjóra heiltóna. Hann er opinn og sýndi okkur mikið traust. Hann virkar voða flottur en er svo eins og sveitadrengur. Hann er svo orginal sem er aðlaðandi eiginleiki. Hann veit nákvæmlega hvað hann vill og er mjög klár.“ Kristjana Stefánsdóttir, raddþjálf- ari Jógvans í X-factor. „Hann er mjög fínn náungi. Hann lagði mikið á sig og átti sigurinn svo sannarlega skilinn. Við urðum góðir vinir, vorum saman í ræktinni og undirbjuggum okkur saman. Við tengdumst strax þegar við hittumst á Flúðum. Hann er rólegur og á það til að vera fyndinn. Hann sýndi hins vegar alvarlegu hliðina á sér þegar líða tók á keppnina.“ Alan Jones, þátttakandi í X- factor. SV O N A ER J Ó GV AN SIGRI FAGNAÐ Jógvan sést hér fagna sigrinum í X-faktor í fanginu á þjálfara sínum Einari Bárðarsyni og sjá má að gleði Færeyingsins er fölskvalaus. SIRKUSMYND/SIGURJÓN RAGNAR Bláu húsin við Faxafen Suðurlandsbraut 50 108 Reykjavík Sími: 568 1800 gleraugad@simnet.is www.gleraugad.is Sjóntækjafræðingur með réttindi til sjónmælinga og linsumælinga Greiðslukjör í allt að 36 mánuði (visa/euro) Engin útborgun

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.