Fréttablaðið - 13.04.2007, Blaðsíða 74

Fréttablaðið - 13.04.2007, Blaðsíða 74
Ástarlíf stjarnanna getur orðið nokkuð flókið. Í gær mátti hér lesa um flókinn „ástarferhyrning“ Justins Timberlake en hann er ekki sá eini sem skiptir oft um bólfélaga. Stjörnurnar eru nefnilega fæstar við eina fjölina felldar í ástarmál- unum. Fjölmiðlar skemmta sér yfirleitt konunglega yfir óförum fræga fólksins í ástarmálum enda geta eftirmálin orðið ansi skrautleg. Þeim þykir ekki síður forvitnilegt að fjalla um nýjustu pörin í Holly- wood og skipta þeim gjarnan upp í hópa og flokka. Breska blaðið The Sun gerði nýverið úttekt á nýjustu samböndunum meðal stjarnanna sem hafa sprottið upp eins og gor- kúlur. Meðal þeirra sem eru taldar líklegastar til að endast lengur en nokkrar vikur í sambandi sínu eru Simpson-systurnar Jessica og As- hlee. Ashlee hefur verið orðuð við Peter Wentz, bassaleikar- ann úr Fall Out Boy, en þau sáust gera sér dælt við hvort annað í afmæli á veitinga- staðnum Parc í Hollywood. Jessica er hins vegar búin að jafna sig á Nick Lachey sem hefur sést í örmum sjónvarpskonunnar Va- nessa Minillo. Banda- ríska pressan hefur um nokkra hríð spáð því að söngkonan barmgóða og tónlistarmaðurinn John Mayer myndu koma úr felum með ástarsamband sitt og nú virðist stóra stundin runnin upp. Og ástarörvar Amors virðast hafa hæft aðra barm- góða konu því samkvæmt nýj- ustu fréttum þar vestra er óláta- belgurinn Tommy Lee búinn að krækja aftur í Pamelu Anderson. Þau skildu tvisvar á sínum tíma og var Tommy meðal annars sakað- ur um að hafa lamið Pamelu. Þau urðu ekki síður fræg þegar kynlífs- myndband þeirra lak út á netið og varð eitt söluhæsta kynlífsmynd- band allra tíma. Hvorki Tommy né Pamela hafa þó viljað staðfesta sambandið en trommarinn býr nú heima hjá Pamelu á meðan verið er að gera húsið hans upp í Malibu. Og til þeirra hefur sést á Hawaii í róm- antísku fríi. Og mjónan Nicole Richie og Joel Madden virðast einnig líkleg til af- reka á grýttum vegi ástarinnar í Hollywood. Parið hefur verið að stinga saman nefjum í ár og virðist hamingjusamara með degi hverj- um. Gömul vinkona Nicole, Paris Hilton, er hins vegar ekki alveg jafn líkleg til góðra verka en hún hefur að undanförnu sést með Josh Henderson, sjarmatröllinu úr Aðþrengd- um eigin- konum. Paris er þekkt fyrir að haldast ekkert sér- staklega vel á karlmönnum og spá sérfræðingar því að það verði ekki langt að bíða þar til annar maður haldi í höndina á hótelerfingjanum. Ástarmál Britney Spears hafa verið undir smásjá fjölmiðla undan- farið ár en fjölmiðlar eru sólgnir í fréttir af nýjum mönnum í lífi popp- prinsessunnar. Sá nýjasti er sagð- ur vera Luke Walton, hárprúður leikmaður Los Angeles Lakers, og hefur Spears sést æ oftar á heima- velli liðsins, Staples Center. Leik- konan Drew Barrymore hefur ekki síður komist í fréttirnar að undanförnu því nýverið upplýsti ritstýra ein að hún hefði verið ást- kona leikkonunnar í dágóðan tíma. Til Barrymore hefur hins vegar sést með leikstjóranum Spike Jonze, þeim hinum sama og hefur gert myndbönd með Björk. Köldustu kveðjurnar fær hins vegar samband sem flestir eru sammála að endist varla fram yfir fyrsta sumardag. Og það eru þau Lindsay Lohan og Kevin Federline en blaðamaður The Sun skrifar af þessu tilefni: „Þótt Lindsay skipti um elskhuga eins og nærbuxur mun hún varla leggjast svo lágt að tína upp ruslið eftir Britney Spears.“ Og svo mörg voru þau orð. Leonardo DiCaprio mun spreyta sig á föðurhlutverkinu innan tíðar, samkvæmt heimasíðu breska blaðsins Mirror. Þar segir að kærasta Di- Caprio, ísra- elska fyrir- sætan Bar Refaeli, eigi von á barni hans í haust. Þetta þykir mörgum út- skýra hvers vegna parið áformar að ganga í það heilaga í sumar, eftir að hafa verið saman í rétt rúmlega fimmtán mánuði. Samkvæmt heimildum blaðsins er leikarinn afskaplega ánægð- ur með að verða pabbi. Parið leit- ar nú að stað til að halda brúðkaup og tilheyrandi veislu, en fréttir herma að Tel Aviv komi sterklega til greina. DiCaprio verður pabbi Fyrsti þátturinn af fjórum, þar sem norrænir spekingar spá í lögin í Söngvakeppni sjónvarps- stöðvanna árið 2007, er á dag- skrá Sjónvarpsins í kvöld. Þætt- irnir hafa notið mikilla vinsælda á Norðurlöndunum öllum, en þetta er í fjórða skiptið sem þessi háttur er hafð- ur á. Sænski poppar- inn Christer Björk- man leiðir spek- ingana áfram eins og áður, en þó nokkrar breyt- ingar hafa orðið á hópn- um. Eirík- ur Hauks- son er fulltrúi Ís- lands eins og áður, en það hefur vakið nokkra athygli að hann sé með í hópnum þrátt fyrir að hann keppi sjálfur í Helsinki í maí. Thomas Lundin fer fyrir Finnum eins og önnur ár, en Charlotte Perelli verður fulltrúi Svíþjóðar. Söngkonan hefur áður setið í norræna spekingaráðinu, en hún fór með sigur af hólmi í söngvakeppninni sjálfri árið 1999, þegar Selma laut í lægra haldi. Fyrir hönd Danmerkur mætir Adam Duvå Hall, sem kynnti for- keppni Dana frænda okkar fyrr á árinu. Per Sundnes kemur í stað Eurovision-ofvitans Jostein Pedersen frá Noregi, sem margir eiga eflaust eftir að sakna. Þátturinn hefst klukk- an tíu mínútur yfir átta. Upphitun fyrir Eurovision hafin
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.