Fréttablaðið - 13.04.2007, Blaðsíða 81
Fiskislóð 1 • Sími 580 8500
Opið mánud.–föstud. 8–18, laugard. 10–16 og sunnud. 12–16
www.ellingsen.is
Altea 361 LT
Altea 432 PX
Adora 512 UP
Classica 513 UP
Classica 543 PK
Classica 613 PK
Classica 663 KP
Classica 743 UT
Adiva 543 UL
Adiva 553 PH
um helgina!
Líttu inn að Fiskislóð 1, sýnum allt það
nýjasta og flottasta í hjólhýsum um
helgina. Kynntu þér það sem er að
gerast í þessum efnum og mundu að
við tökum gamla vagninn upp í nýjan.
Adria-hjólhýsi
Gæði, þægindi og sniðugar lausnir
einkenna þessi glæsilegu hjólhýsi.
Öll með Alde vatns- og
miðstöðvarhitun. Mest seldu
hjólhýsi á Norðurlöndum.
Iceland Express-deild karla
DHL-deild karla
KR jafnaði í gær metin
í úrslitaviðureigninni gegn Njarð-
vík um Íslandsmeistaratitilinn í
körfubolta. Njarðvík hafði frum-
kvæðið lengst af en sjö stig í röð
frá Jeremiah Sola, sem hafði haft
afar hægt um sig í leiknum, voru
nóg til að tryggja sigurinn. Loka-
tölur 82-76 fyrir KR.
„Við héldum alltaf áfram
og héngum inni í þessum leik.
Það virðist vera að okkur finn-
ist þetta skemmtilegast að grafa
okkur djúpa holu og þurfa síðan
að skríða upp úr henni aftur. Það
virkar greinilega fyrir okkur og
við ætlum greinilega ekki að hætta
því,“ sagði Fannar Ólafsson, fyrir-
liði KR, eftir leik.
„Það var frábært andrúmsloft
og það er ómetanlegt að fá þessa
stráka á miðjuna. Þeir halda leikn-
um gangandi fyrir okkur allan
tímann og þeir héldu stuðningnum
áfram þrátt fyrir að við höfum átt
erfitt. Þeir og allir áhorfendurn-
ir okkar í kvöld eiga mestan heið-
ur skilinn fyrir þessa endurkomu
okkar.“
Fyrri hálfeikur var jafn og
spennandi þó svo að Njarðvík-
ingar hafi verið með frumkvæð-
ið lengst af. Munaði mestu um þau
sjö stig sem Jóhann Árni Ólafsson
skoraði á 45 sekúndum um miðjan
fyrsta leikhluta.
Njarðvíkingum hefur síðustu ár
gengið illa í öðrum leik úrslitaein-
vígja en sýndu að þeir voru ein-
beittir strax frá fyrstu mínútu.
Þessi munur hélst á milli liðanna
þar til seint í síðasta leikhluta. Sola
skoraði aðeins fjögur stig í fyrri
hálfleik en hans fyrsta stig í síð-
ari hálfleik kom þegar fimm mín-
útur voru eftir af fjórða leikhluta
er hann hitti úr öðru vítaskoti sínu
og minnkaði muninn í tvö stig.
Hann vaknaði til lífsins við þetta
víti, setti tvær körfur í röð og jafn-
aði leikinn. Í næstu sókn Njarðvík-
ur fiskaði hann fimmtu villuna á
Igor Beljanski og KR gat komist
yfir í fyrsta sinn í langan tíma.
KR-ingar skoruðu á þessum
kafla níu stig í röð og slógu þar
með Njarðvík út af laginu á hár-
réttum tíma. Svo fór að heima-
menn innbyrtu dýrmætan sigur
og galopnuðu um leið úrslita-
rimmuna.
„Við spiluðum 35-36 góðar mín-
útur en síðan hættum við því sem
við höfum verið að gera vel sókn-
arlega,“ sagði Einar Árni Jóhanns-
son, þjálfari Njarðvíkur.
„Við vorum að flýta okkur í
staðinn fyrir að nýta klukkuna og
láta þá spila vörn. Við vorum að
taka rangar ákvarðanir, fengum á
okkur sóknarvillur og tókum léleg
skot. Við gerðum þetta pínulítið
auðvelt fyrir þá.
Við þurfum að spila 40 góðar
mínútur til þess að vinna sigur á
heimavelli KR. Það vantaði síð-
ustu mínúturnar upp á það og
þar liggur leikurinn,“ bætti Einar
Árni við.
„Það verður svakalegur leikur í
Njarðvík og sá leikur sker úr um
hvort liðið verður Íslandsmeist-
ari,“ sagði Fannar að lokum.
KR lagði í gær Njarðvík eftir að hafa verið undir lengst af í öðrum leik liðanna í úrslitum Iceland Express-
deildar karla. Jeremiah Sola átti slakan leik en sneri leiknum KR í hag með ótrúlegum spretti undir lok leiksins.