Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.04.2007, Qupperneq 81

Fréttablaðið - 13.04.2007, Qupperneq 81
Fiskislóð 1 • Sími 580 8500 Opið mánud.–föstud. 8–18, laugard. 10–16 og sunnud. 12–16 www.ellingsen.is Altea 361 LT Altea 432 PX Adora 512 UP Classica 513 UP Classica 543 PK Classica 613 PK Classica 663 KP Classica 743 UT Adiva 543 UL Adiva 553 PH um helgina! Líttu inn að Fiskislóð 1, sýnum allt það nýjasta og flottasta í hjólhýsum um helgina. Kynntu þér það sem er að gerast í þessum efnum og mundu að við tökum gamla vagninn upp í nýjan. Adria-hjólhýsi Gæði, þægindi og sniðugar lausnir einkenna þessi glæsilegu hjólhýsi. Öll með Alde vatns- og miðstöðvarhitun. Mest seldu hjólhýsi á Norðurlöndum. Iceland Express-deild karla DHL-deild karla KR jafnaði í gær metin í úrslitaviðureigninni gegn Njarð- vík um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta. Njarðvík hafði frum- kvæðið lengst af en sjö stig í röð frá Jeremiah Sola, sem hafði haft afar hægt um sig í leiknum, voru nóg til að tryggja sigurinn. Loka- tölur 82-76 fyrir KR. „Við héldum alltaf áfram og héngum inni í þessum leik. Það virðist vera að okkur finn- ist þetta skemmtilegast að grafa okkur djúpa holu og þurfa síðan að skríða upp úr henni aftur. Það virkar greinilega fyrir okkur og við ætlum greinilega ekki að hætta því,“ sagði Fannar Ólafsson, fyrir- liði KR, eftir leik. „Það var frábært andrúmsloft og það er ómetanlegt að fá þessa stráka á miðjuna. Þeir halda leikn- um gangandi fyrir okkur allan tímann og þeir héldu stuðningnum áfram þrátt fyrir að við höfum átt erfitt. Þeir og allir áhorfendurn- ir okkar í kvöld eiga mestan heið- ur skilinn fyrir þessa endurkomu okkar.“ Fyrri hálfeikur var jafn og spennandi þó svo að Njarðvík- ingar hafi verið með frumkvæð- ið lengst af. Munaði mestu um þau sjö stig sem Jóhann Árni Ólafsson skoraði á 45 sekúndum um miðjan fyrsta leikhluta. Njarðvíkingum hefur síðustu ár gengið illa í öðrum leik úrslitaein- vígja en sýndu að þeir voru ein- beittir strax frá fyrstu mínútu. Þessi munur hélst á milli liðanna þar til seint í síðasta leikhluta. Sola skoraði aðeins fjögur stig í fyrri hálfleik en hans fyrsta stig í síð- ari hálfleik kom þegar fimm mín- útur voru eftir af fjórða leikhluta er hann hitti úr öðru vítaskoti sínu og minnkaði muninn í tvö stig. Hann vaknaði til lífsins við þetta víti, setti tvær körfur í röð og jafn- aði leikinn. Í næstu sókn Njarðvík- ur fiskaði hann fimmtu villuna á Igor Beljanski og KR gat komist yfir í fyrsta sinn í langan tíma. KR-ingar skoruðu á þessum kafla níu stig í röð og slógu þar með Njarðvík út af laginu á hár- réttum tíma. Svo fór að heima- menn innbyrtu dýrmætan sigur og galopnuðu um leið úrslita- rimmuna. „Við spiluðum 35-36 góðar mín- útur en síðan hættum við því sem við höfum verið að gera vel sókn- arlega,“ sagði Einar Árni Jóhanns- son, þjálfari Njarðvíkur. „Við vorum að flýta okkur í staðinn fyrir að nýta klukkuna og láta þá spila vörn. Við vorum að taka rangar ákvarðanir, fengum á okkur sóknarvillur og tókum léleg skot. Við gerðum þetta pínulítið auðvelt fyrir þá. Við þurfum að spila 40 góðar mínútur til þess að vinna sigur á heimavelli KR. Það vantaði síð- ustu mínúturnar upp á það og þar liggur leikurinn,“ bætti Einar Árni við. „Það verður svakalegur leikur í Njarðvík og sá leikur sker úr um hvort liðið verður Íslandsmeist- ari,“ sagði Fannar að lokum. KR lagði í gær Njarðvík eftir að hafa verið undir lengst af í öðrum leik liðanna í úrslitum Iceland Express- deildar karla. Jeremiah Sola átti slakan leik en sneri leiknum KR í hag með ótrúlegum spretti undir lok leiksins.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.