Fréttablaðið - 13.04.2007, Side 6

Fréttablaðið - 13.04.2007, Side 6
2.683 kr.SPARAÐU 2.683 kr.SPARAÐU 2.683SPARAÐU 2.683 kr.SPARAÐU 2.683 kr.SPARAÐU 1.990 4.673 OPIÐ HÚS HJÁ SVFR Föstudaginn 13. apríl ALLIR VELKOMNIR - HÚSIÐ OPNAR KL. 20.00 Dagskrá: ::: Völva Skemmtinefndarinnar spáir fyrir sumarið og meðal þess sem hún upplýsir er: - hvar verður besta veiðin? - núllar stjórnin í Norðurá AFTUR? - hvar veiðist stærsti laxinn? - hvaða fluga kemur á óvart í sumar? ::: Veiðistaðalýsing – Varmá-Þorleifslækur ::: Nýfundin gömul veiðimynd- í myndinni er Íslandsvininum Art Lee fylgt eftir við veiðar á Íslandi í Elliðaánum, Laxá í Kjós og Laxá í Aðadal. ::: Myndagetraunin á sínum stað ::: Vísubotnakeppni ::: Glæsilegur happahylurinn í boði Ellingsen Myndir þú vilja að barnið þitt ynni í álveri í framtíðinni? Hefur þú fengið hraðasekt? Geir H. Haarde, for- maður Sjálfstæðisflokksins, vill minnka sem fyrst almennar skerð- ingar í almannatryggingakerfinu úr um 40 prósentum í 35 prósent. Einnig vill hann að þeir sem orðn- ir eru sjötugir geti unnið launaða vinnu án þess að launin skerði líf- eyri frá Tryggingastofnun. Þá telur hann eðlilegt að ríkið tryggi öllum lágmarkslífeyri frá lífeyrissjóði, til dæmis um 25 þúsund krónur á mánuði, til hliðar við greiðslur úr almannatryggingakerfinu. Geir upplýsti um þennan vilja sinn í setningarræðu landsfundar Sjálfstæðisflokksins í Laugardals- höll í gær. Í máli hans kom fram að margt hefði áunnist í velferð- armálum en á næsta kjörtímabili gæfist svigrúm til frekari aðgerða. Í umfjöllun um menntamál kvaðst Geir telja svigrúm til að draga úr skerðingu námslána vegna eigin tekjuöflunar námsmanna. Geir tíundaði aðgerðir ríkis- stjórnarinnar í skatta- og efna- hagsmálum og gaf lítið fyrir gagn- rýni stjórnarandstöðunnar í þeim efnum. Sagði hann meðal annars Ísland standast með glans próf um jöfnuð í þjóðfélaginu þó að ein- hverjir hefðu efnast mjög veru- lega. Þeir sem minnst hefðu milli handanna hafi einnig bætt stöðu sína svo um muni. Þá sagði hann tal stjórnarandstöðunnar um hag- stjórnarmistök innantómt „þó vissulega hafi þenslan hér af ýmsum ástæðum orðið meiri en ætlað var“. Spurði hann hvort kaupmáttaraukning, niðurgreiðsla skulda ríkissjóðs, full atvinna og hagvöxtur væru hagstjórnarmis- tök. Í ræðunni varð Geir tíðrætt um umhverfismál og sagði það trú sjálfstæðismanna að best færi á að einstaklingurinn stjórnaði sér sem mest sjálfur í þeim efnum sem öðrum. Hvetja ætti fólk til að velja umhverfisvæna kosti frekar en að beita aðferðum vinstri manna og setja boð og bönn á lífsvenjur sem fólk hefði valið sér. Geir sendi Birni Bjarnasyni dómsmálaráðherra kveðjur en hann gekkst undir aðgerð á sjúkra- húsi á miðvikudag. Þá þakkaði hann Kjartani Gunnarssyni, fram- kvæmdastjóra flokksins til 26 ára, óeigingjörn störf. Hylltu fundar- menn Kjartan með því að rísa úr sætum. Sjálfur var Geir svo hylltur við lok ræðu sinnar með dynjandi lófa- taki. Sjötugir geti unnið án skerðingar lífeyris Efnahagur, umhverfi og velferð voru efst á baugi í ræðu Geirs H. Haarde, for- manns Sjálfstæðisflokksins, við upphaf landsfundar í gær. Geir vill minnka skerðingar í almannatryggingakerfinu og draga úr skerðingu námslána. Sprengjuárásirnar í Algeirsborg á miðvikudaginn hafa endurvakið ótta við að nýr Norður- Afríkuarmur Al Kaída-samtakanna sé orðinn það öflugur að veruleg hætta stafi af, ekki bara í Alsír held- ur víða um norðanverða Afríku. Lögreglan í Alsír hefur gripið til harðra aðgerða, sett upp eftirlits- hlið víða um borgina og lokað götum nálægt forsetaskrifstofunum. Að minnsta kosti 33 fórust og tæplega 300 særðust þegar tvær sprengjur sprungu í Algeirsborg, önnur á skrifstofum forsætisráð- herra Alsír en hin á lögreglustöð. 57 manns voru enn á sjúkrahúsi í gær. Á síðustu mánuðum hafa ný sam- tök herskárra múslima, tengd Al Kaída, verið að sækja í sig veðrið á ný og lýstu samdægurs yfir ábyrgð sinni á árásunum. Þessi nýju sam- tök eru reist á grunni gömlu Sala- fistasamtakanna, GSPC, sem stóðu í blóðugri uppreisn gegn stjórn- völdum á síðasta áratug. Sú upp- reisn hófst árið 1992 eftir að stjórn landsins ógilti niðurstöður kosn- inga þar sem samtök múslima höfðu unnið yfirburða sigur. Abdelaziz Bouteflika forseti efndi til fundar með æðstu embættis- mönnum landsins þar sem ákveð- ið var að reyna að finna leiðir til að gera uppreisnarmennina ófæra um að valda frekari skaða. Harðar aðgerðir lögreglu Tæplega fimmtug- ur maður í Kaliforníu, Gregory Daniels, missti gervifót og náð- ist því fljótlega á flótta undan lög- reglunni eftir að hafa reynt að stela 680 kílóa þungum hraðbanka úr verslun í bænum Pomona. Daniels kom ásamt félaga sínum á pallbíl að versluninni, braut þar rúðu og vafði keðju utan um hraðbankann. Síðan óku þeir á hraðbankann til að losa hann frá gólfinu. Þegar þeir óku burt með hrað- bankann var lögreglan komin og elti þá. Félaganum tókst að flýja hlaupandi en Daniels var svo óheppinn að missa gervifótinn. Missti gervifót á flóttanum

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.