Fréttablaðið - 13.04.2007, Blaðsíða 64
Auglýsingar sendist á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5000.
„Ég er trúaður og er fæddur
inn í þannig fjölskyldu að ég
hef hlustað á trúarsöngva
allt mitt líf. Móðir mín söng
með kirkjukór í 45 ár. Hún
var ekkert mikið fyrir að
ég væri í þessu rokkstandi,
hafði horn í síðu slíks lífern-
is eins og reyndar sú kyn-
slóð að mestu.“
Heather Mills dæmdar skaðabætur
Árni Kr. Þorsteinsson
Miðfjarðarnesseli, Bakkafirði,
verður jarðsunginn frá Skeggjastaðakirkju laugardag-
inn 14. apríl kl. 14.
Fjölskylda hins látna.
Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
Lárus Beck Wormsson
Dvalarheimilinu Höfða, Akranesi,
lést mánudaginn 9. apríl. Útförin fer fram frá
Akraneskirkju þriðjudaginn 17. apríl kl. 14.
Sigurbjörg Árdís Lárusdóttir
Ísabella Lárusdóttir Lárus S. Ingibergsson
Elínborg Lárusdóttir Birgir S. Björnsson
Rannveig Lárusdóttir Guðmundur E. Björnsson
og afabörn.
Elskulegur sonur minn, bróðir, mágur og
frændi,
Halldór Gunnar Hringsson
Reykjavíkurvegi 72, Hafnarfirði,
er lést laugardaginn 24. mars, verður jarðsunginn frá
Neskirkju 16. apríl kl. 13.00.
Sigrún Halldórsdóttir
Gunnjóna Sigrún Hringsdóttir Jónas Sigurðsson
Guðbjörg Hringsdóttir Páll Guðmundsson
Hjörleifur Hringsson Elín Baldursdóttir
Sigrún Edda Hringsdóttir Hafsteinn Jónsson
Hinrik Hringsson Ingibjörg Þráinsdóttir
frændsystkin.
Við fjölskylda
Lísu Skaftadóttur
sem lést af slysförum 21. mars síðastliðinn viljum
koma á framfæri þakklæti til allra sem hafa veitt okkur
stuðning með bænum, góðmennsku, styrkjum og
hjálpsemi í gegnum þessa erfiðu tíma. Með þökk fyrir
alla þá hlýju í garð okkar. Guð blessi ykkur.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Ragnar Þór Stefánsson.
Keppnin um fyndnasta mann Íslands
var til lykta leidd síðastliðið föstu-
dagskvöld, og fór grínistinn Þórhall-
ur Þórhallsson með sigur af hólmi
eftir harða keppni. „Þetta var jafnt og
skemmtilegt bara, það stóðu sig allir
með prýði,“ sagði Þórhallur, sem var
að vonum ánægður með titilinn. Annað
sætið hreppti Þrándur Jensson, og það
þriðja féll í skaut Jóns Haukdal.
Keppnin um Fyndnasta mann Ís-
lands hófst í byrjun mars. Þá öttu
kappi fjórir af þeim sextán keppend-
um sem forsvarsmenn höfðu valið úr
hópi umsækjenda. Fimm þeirra tók-
ust svo á um titilinn í síðustu viku.
Keppendur höfðu misjafnlega mikla
reynslu af uppistandi en Þórhallur
hlýtur að teljast nokkuð reyndur. „Ég
er búinn að stökkva í þetta svona af og
til síðan árið 2003 og hef verið á fullu
í þessu núna undanfarið ár eða tvö. Ég
hef atvinnu af uppistandi núna og hef
líka verið með útvarpsþætti og svona
samhliða því,“ sagði Þórhallur. Grínið
hefur þó væntanlega alltaf verið hluti
af lífi hans. Faðir Þórhalls er enginn
annar en Þórhallur Sigurðsson, betur
þekktur sem Laddi, einn ástsælasti
grínleikari þjóðarinnar fyrr og
síðar. Þórhallur hinn yngri
segist ekki geta neitað því
að grínið sé honum nánast
í blóð borið. „Það mætti
segja það,“ sagði hann og
hló við.
Þórhallur segir nokkur
tilboð þegar hafa borist sér
og vonast til þess að verða fullbókað-
ur grínisti í sumar. Hann segir Ísland
vera ágætis markað fyrir uppistand.
„Markaðurinn er alltaf að stækka og
þessi uppistandsmenning er öll að
lifna við. Ég er auðvitað mjög ánægð-
ur með það.“ Endurlífgun keppninn-
ar um fyndnasta mann Íslands hlýt-
ur að teljast vera liður í upp-
risu uppistandsins, en Þórhallur
hefur aldrei tekið þátt í slíkum
keppnum áður. „Mig hefur allt-
af langað, en ég þorði aldrei.
Svo fannst mér ég vera tilbúinn
núna – og ég virðist að minnsta
kosti hafa verið nógu tilbúinn,“
sagði hann sposkur.
Elskuleg frænka okkar,
Anna Sigríður
Magnúsdóttir
lést á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund 11. apríl sl.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Hrafn Magnússon
Helga Ívarsdóttir.
Ástkær sonur okkar, bróðir og faðir,
Óskar Ingi Þórsson
Skagaströnd,
lést þann 5. apríl sl. Útförin fer fram frá Fellsborg
Skagaströnd föstudaginn 20. apríl kl. 14.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Rósa Björg Högnadóttir
Þór Ingi Árdal.