Fréttablaðið - 13.04.2007, Page 71

Fréttablaðið - 13.04.2007, Page 71
FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR www.visir.is 10 11 12 13 14 15 16 Félagar í Bandalagi þýðenda og túlka hafa tilnefnt fimm bækur til Íslensku þýðingaverðlaunanna fyrir framúrskarandi þýðingar fagurbók- mennta á árinu 2006. Eru verðlaun- in sett á stofn af félaginu til að auka hróður þýðenda sem hafa löngum auðgað íslenska menningu á ýmsan hátt. Þær bækur sem að þessu sinni eru tilnefndar eru eftirfarandi: Brekkan eftir Carl Frode Tiller í þýðingu Kristians Guttesens, útgef- andi Salka. Dætur hússins eftir Michéle Ro- berts í þýðingu Fríðu Bjarkar Ingv- arsdóttur, útgefandi Salka. Nostromo eftir Joseph Conrad í þýðingu Atla Magnússonar, útgef- andi Mál og menning. Umskiptin eftir Franz Kafka í þýðingu Ástráðs Eysteinssonar og Eysteins Þorvaldssonar, útgefandi Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur/ Háskólaútgáfan. Wuthering Heights eftir Emily Brontë í þýðingu Silju Aðalsteins- dóttur, útgefandi Bjartur. 3ja manna dómnefnd, skipuð verðlaunahafa síðasta árs Rúnari Helga Vignissyni, og þeim Gunn- þórunni Guðmundsdóttur og Jór- unni Sigurðardóttur, tekur nú við og kveður upp lokadóm um hvaða bók hlýtur verðlaunin. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, afhendir Íslensku þýð- ingaverðlaunin að venju á degi bók- arinnar 23. apríl nk. á Gljúfrasteini þar sem verðlaunin hafa verið af- hent frá upphafi, enda var Halldór Laxness afkastamikill þýðandi á sinni tíð. Þýðendur tilnefndir Draumalandið eftir Andra Snæ Magnason Strandgata 50, Hafnarfirði. Miðasala í síma 555 2222 og á www.midi.is Frumsýning 16.mars föstudagur kl. 20:00 22.mars fimmtud. 2.sýn kl. 20:00 23.mars föstud. 3.sýn kl. 20:00 24.mars laugard. 4.sýn kl. 20:00 Sýningar eru opnar virka daga kl. 11 - 17 og um helgar kl. 13 - 16 • sími 575 7700 GERÐUBERG www.gerduberg.is RÚRÍ Tími - Afstæði - Gildi Sýning frá glæstum listferli Sjá www.ruri.is Óður til íslenskrar náttúru Guðlaug I. Sveinsdóttir sýnir málverk og vefnað Vissir þú af... góðri aðstöðu fyrir veislur, námskeið, fundi o.fl. Nánar á www.gerduberg.is Leggðu góðu málefni lið Leggðu góðu málefni lið er heiti á þjónustu í Einkabanka og Fyrirtækjabanka Landsbankans sem auðveldar þér að hefja mánaðarlegan stuðning við góð málefni. Það þekkja það flestir að greiða mánaðarlega af húsinu og bílnum og fyrir rafmagn og hita. Nú er auðvelt að bæta góðum málefnum við þann lista og gerast áskrifandi að þeim. Þú getur styrkt eitthvert af 75 góðgerðarmálefnum; velur einfaldlega styrkupphæðina og hversu lengi þú vilt styrkja. Hver króna skilar sér til góðgerðar- félaganna og notendur bera engan kostnað við stuðning sinn. Með einfaldri aðgerð er svo hægt að hætta stuðningi. Landsbankinn hefur boðið þessa þjónustu síðan 1. júlí sl. og síðan þá hafa hundruð Íslendinga gerst áskrifendur að góðu málefni. Það er auðvelt að skipta máli gottmalefni.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.