Fréttablaðið - 13.04.2007, Síða 76

Fréttablaðið - 13.04.2007, Síða 76
MAGNAÐUR SPENNUTRYLLIR MEÐ SÚPERSTJÖRNUNUM HALLE BERRY OG BRUCE WILLIS VINKONA HENNAR ER MYRT OG EKKI ER ALLT SEM SÝNIST. HVE LANGT MYNDIR ÞÚ GANGA? HEIMSFRUMSÝNING FRAKKLAND Á EKKI MÖGULEIKA ÞEIR ERU MÆTTIR AFTUR !óíbí.rk045 Gildir á allar sýningar í Regnboganum merktar með rauðu SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500 MIÐASALA Í SMÁRABÍÓ OG REGNBOGANN Á MIÐASALA Í BORGARBÍÓ Á SUNSHINE kl. 5.50, 8 og 10.10 B.I. 16 ÁRA THE SCIENCE OF SLEEP kl. 8 og 10 B.I. 7 ÁRA ÚTI ER ÆVINTÝRI ÍSLENSKT TAL kl. 6 TMNT kl. 6 B.I. 7 ÁRA SCHOOL FOR SCOUNDRELS kl. 5.45 THE ILLUSIONIST kl. 8 og 10.15 PERFECT STRANGER kl. 5.30, 8 og 10. 30 B.I. 16 ÁRA PERFECT STRANGER SÝND Í LÚXUS kl. 5.30, 8 og 10. 30 SUNSHINE kl. 5.50, 8 og 10.10 B.I. 16 ÁRA MR. BEAN´S HOLIDAY kl. 5, 7, 9 og 11 ÚTI ER ÆVINTÝRI ÍSLENSKT TAL kl. 4 TMNT kl. 4, 6, og 8 B.I. 7 ÁRA SCHOOL FOR SCOUNDRELS kl. 10 PERFECT STRANGER kl. 8 og 10.10 B.I. 16 ÁRA HOT FUZZ kl. 10 B.I. 16 ÁRA SCHOOL FOR SCOUNDRELS kl. 8 ÚTI ER ÆVINTÝRI ÍSLENSKT TAL kl. 6 TMNT kl. 6 B.I. 7 ÁRA FRÁ DANNY BOYLE LEIKSTJÓRA 28 DAYS LATER OG TRAINSPOTTING KEMUR SPENNUTRYLLIR ÁRSINS! SÓLIN ER AÐ DEYJA. ER HÆGT AÐ BJARGA HENNI? ,,MAGNÞRUNGINN SPENNUTRYLLIR OG SJÓNARSPIL SEM GEFUR EKKERT EFTIR'' VJV, TOPP5.IS Þegar þekktar rokkhljómsveitir sem leika nýþungt rokk eða metal vita ekki í hvorn fótinn þær eiga að stíga næst ákveða þær yfir- leitt að gera þyngri plötu en síðast. Þetta er auðvitað auðveldasta leið- in og oft vonast sveitir sem hafa hlotið almenningshylli, eftir að hafa skriðið upp úr neðanjarðar- moldinni, til þess að endurheimta traust og virðingu þeirra aðdáenda sem uppgötvuðu þær áður en þær fengu samþykki almúgans. Með síðustu plötu skaust Blood Brothers upp á yfirborðið með ka- ótísku og kröftugu rokki. Ég sá sveitina fyrst á sviði hita upp fyrir Yeah Yeah Yeahs og tónlistin hafði svipuð áhrif á mig eins og að vera sleginn utan undir með hráu kjöt- stykki. Frábær samsöngur söngv- aranna tveggja, eitursvöl riff og óbeisluð dýrsleg tjáningin náði strax heljartökum á mér. Sveitin hefði léttilega getað dregið sig til baka, gert hávaðameiri plötu með ýktari öskrum og þyngri hljómi. Í staðinn ræðst hún á garðinn þar sem hann er hæstur og tileink- ar sér meira grípandi lagasmíð- ar, án þess að lækka hrynhitann eða ofsann. Það tekst alveg stór- kostlega vel. Hér er glás af lögum sem minna mikið á eldra efni, en hér eru líka frábærar popptilraun- ir, eins og lagið Laser Life, sem hefst með frábæru hljómborðs- stefi sem hljómar eins og eitthvað sem Stevie Wonder hefði dottið niður á. Söngvarinn Jordan Blilie er með hreint ótrúlega rödd. Hún er á miðjum landamærunum sem að- skilja kvenmanns- og karlmanns- raddir. Hann syngur ekki í fals- ettu, en er svo skrækur að rödd hans gæti eflaust ferðast jafn auð- veldlega í gegnum allt fast efni og vökvakennt. Hljómar stund- um eins og Cedric Bixler úr At the Drive-in og Mars Volta myndi gera á helíum. Þessi fimmta breiðskífa Blóð- bræðranna er magnað afrek. Sönn- un þess að þessi sveit er ekkert að missa móðinn þrátt fyrir að hafa pungað út fimm plötum á fjórum árum. Margar sveitir hafa sprung- ið á rokkinu eftir styttri tíma, og fæstar þeirra leika jafn ærslafullt rokk og þessi. Án efa besta út- gáfa Blood Brothers, og með þess- ari plötu ætti sveitin að festa sig í hópi athyglisverðustu rokksveita heims. Gott blóð Ofurfyrirsætan Gisele Bündchen hefur verið orðuð við hlutverk Vittoriu Vetra í myndinni Englum og djöflum, byggðri á fyrstu bók Dans Brown um Robert Langdon. Tom Hanks mun leika Lang- don, eins og hann gerði í Da Vinci lykl- inum, en önnur hlutverkaskipan er ekki ljós. Vittoria Vetra aðstoðar Langdon við rannsókn hans á málum Illuminati-leyni- félagsins í bókinni, og leikur álíka stórt hlutverk í bókinni og Sophie Neveau í Da Vinci lyklinum. Bündchen hefur áður leikið í myndun- um Taxi og The Devil Wears Prada. Hlut- verk Vittoriu Vetra yrði það stærsta á ferli hennar hingað til. Leikur á móti Hanks Samkvæmt nýrri breskri rann- sókn er hlustun á þungarokk leið margra afburðanemenda til að slaka á og losna undan álaginu sem fylgir því að vera gáfaður. Staðal- mynd sveitta þungarokkskjánans á því ekki við rök að styðjast. Rannsakendur komust að því að margir þungarokksaðdáendur á unglingsaldri eru langt frá því að vera vitlausir vandræðaunglingar heldur þvert á móti afar gáfaðir og notfæra sér tónlistina til að kljást við álagið sem fylgir því að vera afburðavel gefnir og utangarðs vegna þess. Þátttakendurnir sögðu þá að þeir kynnu að meta þá flóknu uppbyggingu og textagerð sem ein- kenndi þungarokk öfugt við megn- ið af einfaldri dægurtónlist. Þeir sem hlusta á þungarokk eru þó líklegri til að hafa slakara sjálfs- álit en þeir sem hlusta til dæmis á popp eða klassíska tónlist og nota þá gjarnan tónlistina til að fá útrás og losna við reiði og erfiðar tilfinn- ingar. Foreldrar og kennarar hafa gjarnan áhyggjur af þeim slæmu og ókristilegu áhrifum sem þunga- rokk geta haft á unga huga vegna pólitískra eða ógeðfelldra texta. Niðurstöður þessarar rannsókn- ar benda þó til að engin ástæða sé að hafa áhyggjur heldur þvert á móti geti þungarokk haft góð áhrif á unglinga. Það sé aftur á móti ástæða til að kanna hvernig þeim líði. Gáfaðir hlusta á þungarokk
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.