Fréttablaðið - 13.04.2007, Qupperneq 77
OG ÞÚ SEM HÉLST AÐ
ÞÍN FJÖLSKYLDA VÆRI SKRÍTIN...
/ KRINGLUNNI / KEFLAVÍK/ ÁLFABAKKA / AKUREYRI
DIGITAL-3D
DIGITAL-3D
DIGITAL
DIGITAL
...Á STÆRÐ
VIÐ HNETU !
DIANE KEATON MANDY MOORE
Háskólabíó
WILD HOGS kl. 8:15 - 10:30 b.i 7
300. kl. 5:30-8-10:30 B.i.16
THE GOOD GERMAN kl. 5:30 B.i.16
THE GOOD SHEPERD kl. 6 - 9 - 10:30 B.i.12
BECAUSE I SAID SO kl. 6 - 8:15 - 10:30 Leyfð
MRS POTTER kl. 5:40 - 8 Leyfð
ROBINSON... M/- ÍSL TAL kl. 3:40 - 5:50 Leyfð
WILD HOGS kl. 5:50 - 8 - 10:20 b.i 7
300. kl. 5:30 B.i.16
MUSIC & LYRICS kl. 3:40 Leyfð
THE GOOD SHEPERD kl. 8 - 11 B.i.12
THE GOOD SHEPERD VIP kl. 5 - 8 - 11
THE MESSENGERS kl. 6 - 8 - 10:20 B.i.16
MR. BEAN´S HOLIDAY kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 Leyfð
HOT FUZZ kl. 8 - 10:30 B.i.16
THE MESSENGERS kl. 6 - 8 - 10:30 B.i.16
ROBINSON... M/- ÍSL TAL kl. 4 - 6:10 Leyfð
MEET THE.. M/- ENSKU Tali kl. 8:10 ÓTEXTUÐ Leyfð
BECAUSE I SAID SO kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:20 Leyfð
300. kl. 10 B.i.16
NORBIT kl. 3:50 Leyfð
MR. BEAN´S HOLIDAY kl. 6 - 8 - 10 Leyfð
MEET THE ROBINSONS kl. 6 Leyfð
CHAOS kl. 8 B.i. 16
SMOKING ACES kl. 10:10 B.i. 16
MEET THE... M/- ÍSL TAL kl 6 Leyfð
THE MESSENGERS kl. 8 - 10 B.i. 16
MR. BEAN´S HOLIDAY kl. 6 - 8 Leyfð
WILD HOGS kl. 10 b.i 7
ANNAR ÞESSARA TVEGGJA
HEFUR
HEILA....
Ósögð saga öflugustu leyniþjónustu fyrr og síðar, CIA.
Úrvalslið leikara í magnaðri kvikmynd
undir tryggri leikstjórn Robert DeNiro
Háspenna, lífshætta frá Pang Bræðrum.
Börn sjá meira en
fullorðnir gera sér grein fyrir!
stranglega bÖnnuÐ bÖrnum
SV MBL
Jennifer Lopez er brjáluð út í banda-
ríska fjölmiðla sem héldu því fram
að hjónaband hennar og Marc Anth-
ony stæði á bláþræði. Í grein OK!
tímaritsins segir að þau hafi ákveð-
ið að skilja eftir erfiða sambúð síð-
ustu mánuði. J-Lo hafi fengið nóg af
stjórnsemi eiginmannsins. „Þetta
eru ógeðfelldar lygar og við ætlum
að tala við lögfræðinga okkar,“
sagði talsmaður J-Lo um málið.
Ekki að skilja
Á tæpasta vaði
Samstarf þeirra Simons Pegg og
Edgars Wright hefur verið far-
sælt. Fyrir þremur árum gerðu
þeir hina þrælskemmtilegu Shaun
of the Dead en höfðu þar áður leitt
saman hesta sína í sjónvarpsþátt-
unum Spaced, þar sem tilvísarn-
ir í kvikmyndasöguna drupu af
hverju strái. Þeir hafa sama hátt-
inn á og áður, skrifa handritið
saman, Wright leikstýrir og Pegg
leikur aðalhlutverkið. Rétt eins
og Shaun of the Dead er Hot Fuzz
léttgeggjuð skopstæling á tiltek-
inni kvikmyndahefð. Í þeirri fyrr-
nefndu var spjótunum beint að
splattermyndum en hér er dreg-
ið dár að hasarmyndum að hætti
Michaels Bay og hans nóta.
Hot Fuzz segir frá Nicholas
Angel, sannkallaðri ofurlöggu
sem hreinsar illþýðið af götum
Lundúna með slíkum þjósti að
kollegar hans blikna í saman-
burði. Fyrir vikið uppsker hann
fyrst og fremst öfund annarra
í lögreglunni og í hefndarskyni
fyrir frækilega frammistöðu er
hann hækkaður í tign og sendur
í krummaskuð úti á landi. Lífið
í afdölunum er ólíkt rólegra, en
þegar hver bæjarbúinn á fætur
öðrum fer hins vegar að týna líf-
inu á sviplegan hátt grunar Angel
að ekki sé allt með felldu, enda
kemur í ljós að sumir hinna látnu
höfðu óhreint mjöl í pokahorn-
inu. Ásamt skussanum Danny
reynir Angel að komast til botns
í málinu, en kemst fljótt að því að
heimamenn eru lítið gefnir fyrir
snuðrið í honum.
Skemmst er frá því að segja
að Hot Fuzz er hressileg afþrey-
ing, drekkhlaðin aulabröndurum
og vísunum í ýmis minni aksjón-
mynda sem lengi vel skörtuðu
iðulega íslenskum titlum á borð
við Á ystu nöf, Á elleftu stundu,
Á hálum ís eða Tveir á toppnum.
Persónugalleríð er bráðfyndið og
sjónrænir stælar skemmtilega of-
notaðir. Að vísu hefði klipparinn
mátt vera frekari því myndin er
í lengra lagi, sem skemmir dálítið
fyrir. Á heildina litið er Hot Fuzz
þó prýðileg skemmtun og ómiss-
andi fyrir þá sem kunna að meta
tæran Hollywood-hasar.