Fréttablaðið - 13.04.2007, Side 86
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
Bandaríski leikstjórinn Quentin
Tarantino hyggst endurnýja kynni
sín við land og þjóð og verður við-
staddur frumsýningu kvikmyndar
sinnar, Death Proof, 8. júní. Mynd-
in er fyrri hluti tvíleiksins The
Grindhouse en Robert Rodriguez,
þekktastur fyrir Sin City-mynd-
ina, leikstýrir seinni myndinni,
Planet Terror.
Samkvæmt öruggum heimildum
Fréttablaðsins barst dreifingar-
fyrirtækinu Senu tölvupóstur frá
Weinstein-fyrirtækinu sem fram-
leiðir The Grindhouse en þar kom
fram að Tarantino heimtaði að fá
að sækja landið heim í kynning-
arstarfi fyrir sinn hluta. Ekki er
vitað hvort frítt föruneyti fylgi
Tarantino til landsins en það er
sjálfur Kurt Russell sem leikur
aðalhlutverkið í Death Proof auk
Rose McGowan. Tarantino og leik-
konan góðkunna úr Charmed létu
vel að hvort öðru í síðustu heim-
sókn leikstjórans hingað.
Þetta verður því í þriðja sinn
sem Tarantino kemur til landsins í
opinberum erindagjörðum en hann
var hér við frumsýningu Hostel-
myndar Eli Roth og hélt síðan litla
kvikmyndahátíð um áramótin þar-
síðustu. Tarantino kolféll fyrir
landi og þjóð, sagðist vilja gera
víkingamyndir og heimsótti for-
seta Íslands á Bessastöðum, sem
bar honum vel söguna.
Hann kláraði meðal annars
handritið að Death Proof á Nord-
ica hóteli og Pizza Hut og segir
sagan að hann hafi leikið hluta
úr því fyrir gesti og gangandi í
Laugum á meðan hann tók á því á
hlaupabretti.
The Grindhouse hefur verið
sýnd sem ein mynd í Bandaríkjun-
um en eins og kom fram í Frétta-
blaðinu í gær hefur hún sem slík
fengið misjafna dóma gagnrýn-
enda og ekki þá aðsókn sem búist
hafði verið við. Talið er að það sé
fyrst og fremst hlutur Roberts
Rodriguez sem dragi hana niður
því gagnrýnendur hafa hrósað
hluta Tarantinos. Þá lýsti Harvey
Weinstein því yfir að hugsanlega
yrði myndinni skipt í tvennt fyrir
Bandaríkjamarkað en ákveðið
hafði hins vegar verið fyrir löngu
að þessi háttur yrði hafður á í Evr-
ópu og öðrum heimsálfum. Og því
verður Death Proof sýnd sem ein
mynd en Planet Terror hins vegar
frumsýnd í ágúst á Íslandi.
„Ég þreyttist mjög á að leika
ýmist sænska nuddara eða
þýska heimilisvini.“
„Ég er vissulega faðir hans en ég
veit ekki hvort rétt sé að kalla
mig Guð,“ segir stórsöngvarinn
Björgvin Halldórsson. Frétta-
blaðið greindi frá því í gær að
Krummi, sonur Björgvins, verð-
ur í hlutverki Jesú í uppsetningu
Vesturports á Jesus Christ Super-
star í sumar. Og ef Krummi er
Jesú hlýtur Björgvin að vera Guð.
Eða hvað?
„Þetta er nú ansi
sniðugt en ég veit
ekki hvort mér
líst á þessa sam-
líkingu,“ segir
Björgvin hógvær
og gefur lítið
fyrir ábending-
ar þess efnis
að ferill hans
réttlæti samlík-
ingu sem þessa.
„Komið til mín
…,“ segir Bó
og hlær
við en
fæst
ekki
til
að
grínast meira með þetta.
„Ég held að þetta eigi eftir
að verða mjög spennandi sýn-
ing. Krummi á eftir að standa
sig vel,“ segir Björgvin þegar
hann er spurður um væntingar
sínar til Jesus Christ Superstar.
„Vesturport mun taka þessa sýn-
ingu öðrum tökum en áður hefur
verið gert og það er spennandi. Ég
veit líka að bæði Krummi og fleiri
myndu varla vera með í þessu
nema af því að þetta verður svolít-
ið öðruvísi. Þessi sýning á eftir að
vekja heilmikla eftirtekt,“ segir
Björgvin.
Bó Halldórs kominn í guða tölu
Þau erlendu kvikmyndatökulið
sem hafa dvalist hér á landi síð-
astliðin fimm ár hafa eytt fimmtíu
milljónum Bandaríkjadala, sem
samsvarar þremur milljörðum ís-
lenskra króna. Þetta kemur fram
í grein á vefsíðu kvikmynda-
tímaritsins Variety sem
birtist í gær undir nafn-
inu „Iceland‘s landscape
brings big names“ eða
Íslenskt landslag laðar
að stóru nöfnin. Auk
hinnar sérstæðu náttúru landsins
er nefnt að hækkun endurgreiðsl-
unnar úr ellefu í fjórtán prósent
hafi jafnframt leikið stórt hlut-
verk í því að fá erlend kvikmynda-
tökulið hingað til lands.
Í greininni er talað við töku-
stjóra kvikmyndaleikstjórans
Clint Eastwood, Kokay Ampah,
sem hrósar íslensku kvik-
myndatökuliði og segir það
hafa verið vel tækjum búið
og hafi talað prýðilega ensku.
Kvikmyndir Eastwoods, Flags
of our Fathers og Letters
from Iwo Jima, voru
báðar að hluta til
teknar upp hér
á landi. Þá er
jafnframt
minnst á myndirnar Batman Beg-
ins, Bond-myndina Die Another
Day og Laura Croft: Tomb Raid-
er en greinarhöfundur segir þær
allar hafa verið stærri heldur en
hið hundruð þúsund ferkílómetra
landsvæði.
Rætt er við Einar Tómasson,
verkefnisstjóra Film in Iceland,
en þar kemur fram að erlent
kvikmyndagerðarfólk sem hing-
að kemur hrífist ekki síður af því
hve allar vegalengdir séu stutt-
ar og hversu auðvelt sé að redda
öllum hlutum. „Ég man sérstak-
lega eftir pókersenunni í Flags of
Our Fathers en það náðist að út-
vega vöruskemmu fyrir tökuna
með klukkutíma fyrirvara,“ segir
Einar.
Ísland græðir þrjá milljarða á Hollywood
FYRSTUR
MEÐ
FRÉTTIRNAR
www.visir.is