Fréttablaðið - 29.04.2007, Side 23

Fréttablaðið - 29.04.2007, Side 23
Ráðgjafa- og þjónustuver Landsbankans á Akureyri Vegna aukinna umsvifa í einstaklingsviðskiptum leitum við að metnaðarfullu og árangursdrifnu starfsfólki í ráðgjafa- og þjónustuver bankans. Í boði er tækifæri til að taka þátt í spennandi uppbyggingarstarfi deildarinnar sem staðsett er í höfuðstöðvum bankans og á Akureyri. Helstu verkefni deildarinnar lúta að þjónustu við viðskiptavini sem eiga viðskipti sín í gegnum síma. Leitað er að einstaklingum í fullt starf með möguleika á sveigjanlegum vinnutíma. Ráðgjafa- og þjónustuverið er opið kl. 8:00 – 21:00 virka daga og kl. 11:00 – 16:00 laugardaga. Starfssvið: • Ráðgjöf á sviði einstaklingsþjónustu • Öll almenn þjónusta við viðskiptavini • Upplýsingagjöf um verðbréfa- og lífeyrisvörur • Frumkvæði að því að bjóða viðskiptavinum vörur og þjónustu • Ýmis önnur verkefni sem tilheyra þjónustu við einstaklinga Hæfniskröfur og eiginleikar: • Framúrskarandi samskiptahæfileikar og metnaður til að ná árangri • Þjónustulund og vilji til að uppfylla þarfir viðskiptavina • Nákvæmni og geta til að starfa undir álagi • Háskólamenntun og/eða reynsla af bankastörfum er kostur Landsbankinn er eitt stærsta fjármálafyrirtæki landsins og veitir alhliða fjármálaþjónustu til einstaklinga, fyrirtækja og stofnana. Í anda sóknar og útrásar hefur Landsbankinn byggt upp 23 starfsstöðvar erlendis, í 14 löndum víðsvegar um heiminn. Til að stuðla að vexti og arðsemi bankans er áhersla lögð á skemmtilegan vinnustað, starfs- ánægju og gott starfsumhverfi, sem og markvissa starfsþróun og þekkingu starfsfólks. Landsbankinn leitast við að ráða til sín og hafa í sínum röðum framúrskarandi starfsfólk og efla það í störfum sínum. Það er viðhorf stjórnenda Landsbankans að starfsfólkið, metnaður þess, kraftur og hollusta, séu lykillinn að farsælum rekstri bankans. ÍS L E N S K A /S IA .I S /I C E 3 73 86 0 4/ 07 Umsóknir og ferilskrá sendist á netfangið ingibjorg.jonsdottir@landsbanki.is merkt: „Ráðgjafa- og þjónustuver“ og einnig er hægt að sækja um starfið á www.landsbanki.is. Umsóknarfrestur er til og með 10. maí nk. Nánari upplýsingar veita Lilja Birgisdóttir deildarstjóri í ráðgjafa- og þjónustuveri í síma 410 7187 og Ingibjörg Jónsdóttir á starfsmannasviði í síma 410 7902.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.