Fréttablaðið - 29.04.2007, Page 75

Fréttablaðið - 29.04.2007, Page 75
Menn hafa löngum afgreitt leikrit Halldórs Laxness sem einhvers konar aukagetu. Jón Viðar Jónsson leikhúsfræðingur segir að leikritaskrif hans hafi verið mikilvægur hluti af hans listrænu leit og glímu og eigi skilið verðugri sess. Hann ræðir um oln- bogabarnið Straumrof á Gljúfrasteini í dag. Leikritið Straumrof er „Verk mánaðarins“ á Gljúfra- steini en það er yfirskrift leshrings þar sem verk Nóbelskáldsins eru könnuð frá ýmsum hliðum. Straumrof var fyrsta leikrit Halldórs Laxness, frum- sýnt hjá Leikfélagi Reykjavíkur árið 1934 og fékk þá blendnar viðtökur. Jón Viðar telur verkið vanmetið og hefur bent á að í því búi meira en margur haldi og rekur þær röksemdir sínar til dæmis í nýlegri rit- gerð á vefritinu Kistunni. „Verkið fékk dræma dóma á sínum tíma en þeir hafa ugglaust orðið til þess að Laxness hélt ekki áfram á þeirri braut. Enda liðu tuttugu ár þangað til hann sendi frá sér annað leikrit en þá voru líka breyttar aðstæður í íslensku leikhúslífi, Þjóðleikhús- ið var risið, en einn af fyrstu sigrum þess var leik- gerð á Íslandsklukkunni sem fékk ákaflega góðar viðtökur,“ segir Jón Viðar. Hann lítur á Straumrof sem eðlilegt skref á höf- undarferli skáldsins en verkið samdi Halldór í mikl- um rykk á sama tíma og hann fékkst við ritun Sjálf- stæðs fólks. „Laxness er ekki leikritahöfundur af sama kalíberi og skáldsagnahöfundur en honum var engu að síður full alvara með leikritunum. Það kom gleggst í ljós í kringum 1960 þegar hann sneri sér að leikritagerð og sendi frá sér þrjú merkileg leikrit, Prjónastofuna Sólina, Strompleik og Dúfnaveisluna. Þau eru fyrstu íslensku módernísku leikritin og með þeim ruddi hann braut fyrir leikskáld á borð við Odd Björnsson og Guðmund Steinsson.“ Jón Viðar telur að leikritin séu áhugaverðust í sam- hengi við stærri verk höfundarins en hann rekur í rit- gerð sinni ýmsar hliðstæður í Straumrofi og öðrum verkum Halldórs, til dæmis hvað varðar minni og form. „Ég tel til dæmis að Halldór hafi verið meiri symbólisti en menn hafa almennt viljað viðurkenna. Flestir hafa horft svolítið mikið á raunsæisþáttinn í sögum hans, persónu- og samfélagslýsingar og ádeil- una. Vissulega eru það allt mikilvægir þættir en hann var líka að kafa ofan í manneskjuna og hann notar mikið tákn sem ég held að menn ættu að rannsaka betur.“ Halldór Laxness var alla tíð mikill leikhúsmaður og fylgdist vel með leikhúslífinu bæði hér heima og er- lendis. „Það mætti segja að hann hafi alla tíð verið á leið til leikhússins,“ segir Jón Viðar. „Hann heillaðist ungur af tveimur stórum leikritahöfundum, Jóhanni Sigurjónssyni, sem ég tel að hafi sett meira mark á æskuverk hans en flestir telja, og síðan var hann alla tíð heillaður af Strindberg og þau áhrif fylgdu honum lengi.“ Jón Viðar bætir við að á vissan hátt hafi leik- húsið endurgoldið ást Laxness þegar hann var orðinn fullorðinn og leikgerðirnar komnar til sögunnar. Svið- setningar á Íslandsklukkunni og Kristnihaldi undir jökli nutu fádæma vinsælda þótt Halldór hafi aldrei slegið í gegn með frumsömdu sviðsverkunum sínum. Eftir 1966 skrifar Laxness ekki fleiri frumsam- in leikrit. Jón Viðar telur að viðtökur þeirra hafi átt sinn þátt í því. „Það er líka eins og með margt annað í ævi mikilla listamanna, allt hefur sinn tíma. Ég held að hann hafi verið búinn að ljúka sér af sem leik- ritahöfundur. Hann var kominn í ákveðna kreppu í skáldsagnagerðinni í kringum 1960 og leitaði leiða út úr henni. Það er enginn vafi að leikritin voru hans tæki til þess. Sú leit hans skilar sér í þessum merki- legu verkum sem hann skrifar undir lok ferils síns, ekki síst í Kristnihaldi undir jökli sem er afar leik- ræn bók. Með henni og Innansveitarkroniku og Guðs- gjafaþulu er hann að endurnýja sig sem listamaður. Þannig skilar leikhúsið sér inn í hans mikla höfundar- verk en leikhúsið er ákveðinn undirstraumur í verk- um hans alla tíð.“ Dagskráin á Gljúfrasteini hefst kl. 16 í dag og er öllum opin. Auk Jóns Viðars verður sérstakur gestur safnsins Brynja Benediktsdóttir leikstjóri sem setti Straumrof á svið hjá Leikfélagi Reykjavíkur árið 1977 og segir hún af kynnum sínum af höfundinum. Nýir tímar - á traustum grunni reynslu og þekkingar Þjóðin þarfnast eldri borgara Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að gera fólki yfir sjötugu kleift að afla sér tekna án þess að lífeyrir skerðist.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.