Fréttablaðið - 29.04.2007, Page 82
„Þetta er ekki búið því
það er enn stærðfræðilegur mögu-
leiki á að vinna titilinn,“ sagði
Jose Mourinho, heldur svekktur
knattspyrnustjóri Chelsea, eftir
leiki gærdagsins í toppslag ensku
úrvalsdeildarinnar. Hans menn
höfðu yfirhöndina gegn Bolton í
dag á sama tíma og Manchester
United var 2-0 undir á móti Evert-
on. Þau úrslit hefðu þýtt að Chel-
sea hefði jafnmörg stig og United.
En þá settu leikmenn Manchest-
er United í fluggírinn og unnu sinn
leik 4-2. Á sama tíma misstu leik-
menn Chelsea sinn leik í jafntefli
og þar með var munurinn á liðun-
um kominn í fimm stig.
Mourinho viðurkenndi þó að
United væri í vænlegri stöðu. „Á
meðan möguleikinn er enn fyrir
hendi verð ég að halda í trúna. En
þetta er næstum því glatað – næst-
um því. Þeir verða að tapa tveim-
ur leikjum og við verðum að vinna
alla okkar þrjá,“ sagði Mourinho.
Kollegi hans hjá United var þó
vitanlega hæstánægður með sína
menn, þrátt fyrir að liðið lenti 2-0
undir í leiknum gegn Everton.
„Þetta var merkilegur dagur
þar sem við jukum forskot okkar,“
sagði Alex Ferguson. „Leikmenn-
irnir voru frábærir og gáfust
aldrei upp. Þetta var stórbrot-
inn sigur hjá okkur, sérstaklega á
þessu stigi tímabilsins. Við höfum
spilað á réttan máta og ef við vinn-
um deildina verður það verðskuld-
að,“ bætti hann við.
Everton komst yfir er Michael
Carrick breytti stefnu boltans
eftir aukaspyrnu Alans Stubbs.
Manuel Fernandes skoraði glæsi-
legt mark á 50. mínútu og jók þá
foyrstu Everton.
En tvö mistök leikmanna
Everton reyndust kostnaðarsöm.
Fyrst missti Ian Turner, mark-
vörður Everton, boltann úr hönd-
um sér eftir hornspyrnu og John
O‘Shea skoraði auðveldlega. Þá
skoraði Phil Neville sjálfsmark
skömmu síðar en hann var áður
leikmaður Manchester United.
Wayne Rooney og varamaður-
inn Chris Eagles tryggðu svo Un-
ited sigurinn með tveimur glæsi-
legum mörkum.
Kevin Davies var hetja Bolton
og um leið Manchester United er
hann jafnaði metin gegn Chelsea
með skalla af stuttu færi í síðari
hálfleik liðanna.
Lubomir Machalik kom Bolton
reyndar yfir en Salomon Kalou
jafnaði metin með skalla skömmu
síðar. Kalou var svo aftur að verki
í síðara markinu er hann skallaði
boltann í stöngina en boltinn fór af
Jussi Jaaskelainen og inn.
Þrátt fyrir skelfilega byrjun á leikjum gærdagsins í toppbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar stóð Manchester
United eftir með fimm stiga forystu á Chelsea í leikslok. Mourinho neitar þó að gefast upp.
Eggert Magnússon,
stjórnarformaður West Ham, gat
leyft sér að fagna vel og innilega
eftir afar dýrmætan og mikilvæg-
an sigur á Wigan í botnbaráttunni
í ensku úrvalsdeildinni. West Ham
er reyndar enn í fallsæti en liðið
á nú þokkalega möguleika á að
bjarga sér frá falli.
„Við erum enn á lífi,“ sagði Alan
Curbishley, stjóri West Ham, eftir
leikinn. „Það var frábært að koma
hingað og sigra 3-0. Við lékum afar
vel og verðum við að halda því
áfram í næsta leik. Við eigum nú
tvo leiki eftir og þurfum á öllum
þeim stigum sem við getum náð í
að halda,“ sagði Curbishley.
West Ham mætir Bolton í næsta
leik og Manchester United á úti-
velli í lokaumferðinni. Stuðnings-
menn West Ham binda því aðal-
lega vonir sínar við fyrri leikinn
því ljóst er að róðurinn verður
þungur á Old Trafford.
Hermann Hreiðarsson og félag-
ar hans í Charlton upplifðu hrein-
ræktaða martröð þegar liðið tap-
aði 4-1 fyrir Blackburn á útivelli.
Hermann var reyndar svo óhepp-
inn að skora sjálfsmark í leiknum.
Fyrir vikið færðist Charlton í
næstneðsta sæti deildarinnar og
er nú tveimur stigum á eftir West
Ham og Wigan. Fulham er reynd-
ar ekki enn sloppið við fall en
liðið hefur einu stigi meira en tvö
síðastnefndu liðin.
„Þróun mála í dag var okkur
ekki í hag,“ sagði Alan Pardew,
stjóri Charlton, eftir leik. „Black-
burn var betra liðið í fyrri hálfleik
án þess þó að hafa farið of illa með
okkur. Það var líka mikil synd að
Scott Carson (markvörður) skyldi
mistakast er þeir skoruðu fyrsta
markið því hann hefur líklega
verið okkar besti maður á tímabil-
inu.“
Ben Thatcher fékk að líta rauða
spjaldið á 64. mínútu leiksins
þegar staðan var enn jöfn. „Eftir
að við misstum mann út af héldum
við áfram að berjast og ég hélt að
við myndum vinna leikinn. En það
fór á annan veg,“ sagði Pardew.
Sheffield United fór reyndar
rangt með að bjarga sér frá falli
með 1-0 sigri á Watford sem er
þegar fallið úr úrvalsdeildinni.
Ekki öll nótt úti enn
fyrir West Ham
Enska úrvalsdeildin