Fréttablaðið - 29.04.2007, Síða 86
Spennir aldrei upp regnhlíf innandyra
„Lærdómur vikunnar er án
nokkurs vafa sá að prestarnir
afþökkuðu hjónavígslu samkyn-
hneigðra og þetta kennir manni
það að skrá sig ekki í þjóðkirkj-
una. Svona hugsunarháttur á
sér hvergi hliðstæðu nema í
svona gömlum stofnunum eins
og þjóðkirkjunni.“
Nýkrýndur fyndnasti maður Ís-
lands, Þórhallur Þórhallsson,
býsnast yfir því á heimasíðu sinni
að Þorsteinn Þór, þátttakandi í
raunveruleikaþættinum Leit-
inni, hafi stolið atriði frá sér. Og
grætt á því áframhald í þáttunum.
„Hann tók atriði sem ég hef verið
með í sambandi við dverga og var
að finna á dvd-disknum Uppistand
2006,“ segir Þórhallur í samtali við
Fréttablaðið og fannst það svolítið
skrítið að maður sem væri á þeim
vettvangi að sýna hvað í honum
býr skyldi hafa notað „áðurbirt“
efni. „Grín er reyndar ekki bund-
ið neinum höfundarrétti,“ bætir
Þórhallur við en hann fékk sterk
viðbrögð í athugasemdakerfinu
á heimasíðunni og vildu sumir
væna hann um stjörnustæla. Þór-
hallur, sem er sonur hins kunna
grínara Ladda, segir það af og frá
„Ég vildi bara benda á þetta enda
fannst mér þetta skrítið.“
Auðunn Blöndal er eldri en tvæ-
vetur í gríninu og segir líklegt
að þegar einhver segi brandara
sé það ekki í fyrsta skipti sem sá
brandari heyrist. „Annars er ég
bara dómari og veit því ekkert
um þetta,“ segir Auðunn. „Ég held
að Þorsteinn hafi ekki hugsað að
sonur Ladda væri að gera eitthvað
geðveikt og ákveðið að herma
eftir því,“ bætir hann við og segir
að Þórhallur mætti nú bara vera
stoltur af sjálfum sér. „Það hlýt-
ur að teljast hrós fyrir grínara ef
menn nota brandarann þeirra,“
segir Auðunn og áréttar að Þor-
steinn Þór hafi ekki komist áfram
vegna þess hversu vel hann léki
dverg heldur af því að hann væri
metnaðarfullur og ákveðinn.
Sonur Ladda ósáttur við þjófnað
„Þetta fer mér ágætlega, það er
mesta furða. Þetta eru þægileg
og góð föt,“ segir Jón Jósep Sæ-
björnsson, eða Jónsi í hljómsveit-
inni Í svörtum fötum, sem mun
klæðast fagurbláum flugþjónsföt-
um í háloftunum í sumar.
Í fyrradag útskrifaðist hann
sem flugþjónn hjá Icelandair og
fór athöfnin fram á Hótel Nordica.
Alls útskrifuðust 74 flugfreyjur
og 11 flugþjónar eftir að hafa lagt
hart að sér á sex vikna námskeiði.
„Þetta var mjög skemmtilegt nám-
skeið en samt mjög krefjandi og
stíft,“ segir Jónsi og viðurkenn-
ir að það hafi verið mun erfið-
ara en hann bjóst við. Meðal ann-
ars þurfti hann að læra mikið um
öryggiskröfur flugfarþega, enda
mikilvægt að flugþjónar og flug-
freyjur kunni góð skil á öllu slíku.
Jónsi, sem mun aðallega ferð-
ast um Evrópu í sumar, fer í sitt
jómfrúarflug um loftin blá næst-
komandi miðvikudag. Þá verð-
ur ferðinni heitið til Stokkhólms.
Hann hlakkar mikið til og ótt-
ast ekki að farþegarnir eigi eftir
að trufla hann eitthvað meira en
kollegana í sumar, þrátt fyrir að
vera þekkt andlit á Íslandi. „Ég
er búinn að fara í reynsluflug og
þau hafa gengið ofboðslega vel. Ég
ætla bara að vera flugfélaginu til
sóma og þetta er eitthvað sem ég
hef ekki miklar áhyggjur af. Ég
hlakka virkilega til að vinna með
starfsfólki Icelandair því það er
alveg frábært fólk.“
Þrátt fyrir að vera upptekinn í
allt sumar í háloftunum ætlar Jónsi
að halda áfram að syngja með-
fram fluginu, bæði með Í svörtum
fötum og einn á báti. „Þetta hefst
allt með góðri skipulagningu. Þau
eru líka mjög liðleg hjá Icelandair
og maður getur skipulagt fram í
tímann með þeirra hjálp,“ segir
hann.
Eftir nokkra pásu spilar Í svört-
um fötum næst á háskólaballi á
Broadway 18. maí en að sögn Jónsa
er engin plata væntanleg frá sveit-
inni á þessu ári, enda fjögurra
platna samningi við Senu nýlok-
ið. Næst á dagskrá sé að koma sér
upp bunka af lögum áður en tekn-
ar verða upp fleiri plötur.
KONUKVÖLD Í KRAGANUM
Guðfríður Lilja býður konum í heimsókn í Kragakaffi,
Hamraborg 1-3, Kópavogi kl: 20:00
Mireya Samper sýnir myndlist, Katrín Jakobs um rómantík,
Kolbrún Halldórs og Svandís Svavars sýna á sér nýjar hliðar,
Thelma Ásdísar kemur á óvart, Birgitta Jónsdóttir flytur ljóð
með tónlist, Verðlaunastuttmynd Helenu Stefánsdóttur
sýnd og Guðrún Gunnars syngur
Komið og njótið kvöldsins
með VG konum