Fréttablaðið - 03.05.2007, Page 6

Fréttablaðið - 03.05.2007, Page 6
Fórst þú í kröfugöngu 1. maí? Treystir þú einkafyrirtæki til að sinna vopnaleit og öryggiseftir- liti á flugvöllum? kynntu þér málið á www.vg.is KVENFRELSI ER OKKAR MÁL Formaður Framsókn- arflokksins, Jón Sigurðsson, kemst ekki á þing verði niður- stöður kosninganna svipaðar og í könnun Félagsvísindastofnunar. Kannað var fylgi í Reykjavík- urkjördæmi norður. Sjálfstæðis- menn mældust með 34,5 prósenta fylgi og fjóra þingmenn, Samfylk- ingin tæplega 30 prósent og þrjá þingmenn og 22 prósent sagðist kjósa Vinstri græn sem fengju tvo þingmenn. Framsóknarflokk- urinn fengi tæp 5 prósent, Frjálslyndir um 6 prósent og Íslandshreyfingin 2,8 prósent. Enginn þeirra flokka næði inn kjördæmakjörnum þingmanni. Formaður nær ekki inn á þing Framfærslugrunnur Lánastofnunar íslenskra náms- manna (LÍN) hækkar um 4,9% á milli ára, og verður 94 þúsund krónur á mánuði á skólaárinu 2007-2008. Þetta var samþykkt á stjórnarfundi LÍN í gær, en breyt- ingarnar taka gildi 1. júní. Í tilkynningu frá LÍN kemur fram að fimmta árið í röð sé dreg- ið úr tekjutilliti á námstíma, og á komandi skólaári munu 10 pró- sent tekna koma til skerðingar á láni. Hlutfallið var 12 prósent fyrir breytingarnar og var 40 prósent fyrir fimm árum. Stjórnin samþykkti einnig að námsmenn í sérnámi og grunn- námi í háskólum erlendis ættu framvegis rétt á lánum vegna skólagjalda. Fram að þessu hefur sjóðurinn aðeins lánað vegna skólagjalda í framhaldsháskóla- námi. Hámarkslán vegna skóla- gjalda í grunnháskólanámi og sérnámi verða 670 þúsund krón- ur á ári. Samhliða þessu var ákveðið að samanlögð hámarkslán vegna skólagjalda muni hækka að með- altali um fimm prósent. Sé lán tekið vegna náms á Íslandi hækk- ar hámarkið þannig úr 3,2 millj- ónum króna í 3,35 milljónir króna. Framfærslan fer í 94 þúsund „Þetta eru ekkert annað en rakalausar dylgjur,“ segir Bjarni Benediktsson, þing- maður Sjálfstæðisflokksins og formaður allsherjarnefndar Alþingis, um skrif Sigurjóns Þórðarsonar, þingmanns Frjáls- lyndra. Á heimasíðu sinni hélt Sigurjón því fram að Bjarni, Guð- jón Ólafur Jónsson og Guðrún Ögmundsdóttir hefðu sagt ósatt þegar þau sögðust ekki hafa vitað um tengsl Jónínu Bjartmarz umhverfisráðherra við umsækj- andann Lucia Celeste Molina Sierra, sem þó hafði lögheimili skráð á heimili ráðherra. Sigurjón hélt því einnig fram að Bjarni hefði neitað að afhenda sér gögn í tengslum við umsókn um ríkisborgararétt. Þessum ásökunum vísaði Bjarni alfarið á bug í bréfi sem hann sendi fjöl- miðlum vegna málsins. Sagðist hann ekki hafa heyrt í Sigurjóni svo vikum skipti og þaðan af síður neitað honum um gögn enda hafi hann ekki heimild til að veita aðgang að þeim. Bjarni segir að sér sé þó kunnugt um að Sigurjón hafi leitað til þingsins með beiðni um upplýsingar. Sólveig Pétursdóttir, forseti Alþingis, sendi Sigurjóni og fjöl- miðlum upplýsingar um verklag allsherjarnefndar við afgreiðslu umsókna um ríkisborgararétt. Sigurjóni er svo bent á að hafa samband við forstöðumann nefndasviðs Alþingis til að fá að skoða umrædda umsókn. Bjarni sendi seinna um daginn samantekt á þeim umsóknum sem allsherjarnefnd hefur afgreitt á yfirstandandi kjörtímabili. Meðal þess sem þar kemur fram er að meirihluti þeirra 144 einstaklinga sem allsherjarnefnd Alþingis hefur veitt ríkisborgararétt á kjörtímabilinu hefur átt lögheim- ili hér á landi lengur en í tvö ár. Hlutfall þeirra sem einungis hafa búið hér á landi í hálft ár eða minna hefur aukist. Í fréttum RÚV var greint frá því að tíu dagar liðu frá því að unnusta sonar umhverfisráð- herra sótti um ríkisborgararétt þar til lög þess efnis voru sett á Alþingi. Meðalafgreiðslutími samskonar umsókna er þó venju- lega fimm til tólf mánuðir. Bjarni svaraði því þannig til í Kastljósi að fjölmörg dæmi væru fyrir því að mál væru unnin fremur hratt þegar komið væri undir þinglok. Jafnvel væru dæmi um að mál væru afgreidd á skemmri tíma. Ásakanir ganga á víxl í allsherjarnefnd Bjarni Benediktsson segir Sigurjón Þórðarson fara með dylgjur í máli tengdadótt- ur umhverfisráðherra. Hann segir að umsóknir allsherjarnefndar um ríkisfang hafi verið afgreiddar á skemmri tíma en í tilfelli stúlkunnar frá Gvatemala. Ný gjaldskrá fyrir akstur um Hvalfjarðargöng tekur gildi 7. maí. Samkvæmt nýju gjaldskránni fjölgar gjaldflokk- um um einn og við bætist nýr flokkur fyrir 6-8 metra löng ökutæki. Tekinn verður í notkun sjálfvirkur lengdarmælingabún- aður. Við breytingarnar mun veggjald fyrir pallbíla, sendibíla og önnur ökutæki sem lenda í þessum nýja flokki lækka um nær helming. Gjald fyrir marga húsbíla, sem hingað til hafa farið í gegnum göngin á lægsta gjaldi, hækkar hins vegar á móti. Veggjald í Hvalfjarðargöngum lækkaði þann 1. mars síðastliðinn. Nú lækkar verð í ýmsum áskriftarflokkum enn frekar. Ódýrara í Hval- fjarðargöngin Björgunarskipið Gunnar Friðriksson frá Ísafirði dró tvo vélarvana báta til hafnar á Ísafirði aðfaranótt miðviku- dags. Einn maður var í hvorum bát en þá sakaði ekki. Um var að ræða tvo sjóstang- veiðibáta sem höfðu verið á veiðum í Ísafjarðardjúpi og voru á leið til hafnar á Suðureyri í samfloti við sex aðra báta. Vél bilaði í einum bátnum og ætlaði annar bátur að taka hann í tog og draga hann inn til Ísa- fjarðar. Ekki vildi betur til en svo að á Skutulsfirðinum missti dráttarbáturinn afl svo kalla þurfti eftir aðstoð til þess að koma bátunum tveimur til lands. Vélarvana á Skutulsfirði

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.