Fréttablaðið - 03.05.2007, Page 12
„Við erum ekki alveg
sáttir við það að Brú sé sögð svo
stór jörð að það hafi áhrif á hvern-
ig meta eigi þessa þrjú þúsund
hektara,“ segir Jón Jónsson, lög-
maður bræðra sem eiga jörðina
Brú í Fljótsdalshéraði.
Matsnefnd eignarnámsbóta
komst að þeirri niðurstöðu að
Landsvirkjun ætti að greiða Sig-
urði og Sigvarði Halldórssonum
63,7 milljónir króna fyrir 3.025
hektara úr landi Brúar sem fara
undir Hálslón og fyrir 400 þúsund
rúmmetra af malarefni. Mats-
nefndin segir að Brú, sem er 160
þúsund hektarar, sé afar landmikil
og því hefði eignarnámið minni
áhrif á heildarverðmæti jarðar-
innar allrar en ef um stærri hlut-
deild í jörðinni væri að ræða.
Jón segir að deilt hafi verið um
aðferðafræði. „Okkar ítrustu kröf-
ur byggðu á því að verðmæti
landsins yrði metið út frá miðlun-
arnýtingu þessa stærsta miðlun-
arlóns á Íslandi. Því var hafnað og
landið metið sem almennt heiðar-
land,“ segir Jón.
Ítrasta krafa Brúarmanna var
1.300 milljónir króna en Lands-
virkjun taldi að áður greiddar 5,3
milljónir króna væru nægileg
heildarborgun.
Ríkið hefur reyndar gert kröfu
um að landið undir Hálslóni sé í
raun þjóðlenda og þar með ríkis-
eign. Burtséð frá því eru það Val-
þjófsstaðir og Laugavellir, auk
Brúar, sem eiga land undir Háls-
lóni.
Prestssetrasjóður, sem fer með
eignir Valþjófsstaða, samdi við
Landsvirkjun fyrir nokkrum miss-
erum fyrir mun lægri upphæð en
matsnefndin telur nú vera sann-
gjarnt verð.
Landsvirkjun hefur fengið
heimild hjá ríkinu til að taka eign-
arnámi þann hluta lands Lauga-
valla sem fer undir Hálslón. Veitt
var heimild til svokallaðs fullnað-
areignarnáms sem felur í sér að
Landsvirkjun fái landið til fullrar
eignar gagnstætt því sem er með
land Brúar sem á að skilast í sama
ástandi þegar Kárahnjúkavirkjun
hefur runnið sitt skeið á enda. „Í
þessu er mismunun,“ segir Bjarni
Björgvinsson, lögmaður eigenda
Laugavalla, sem skotið hafa eign-
arnámsheimildinni til Héraðs-
dóms Reykjavíkur.
Jón segir ekki ákveðið hvort
niðurstaða matsnefndarinnar
varðandi Brú verði send til dóm-
stóla: „Það hefur aldrei reynt á
það fyrir íslenskum dómstólum
hvort horfa eigi til miðlunarnýt-
ingar. Í orði að minnsta kosti er
samkeppni á raforkumarkaði og
kannski hefði einhver annar viljað
kaupa þessa miðlunarmöguleika á
eðlilegu verði.“
Eignarnám fer
fyrir dómstóla
Eigendur jarðarinnar Laugavalla sætta sig ekki við
heimild sem ríkið veitti Landsvirkjun til eignar-
náms á hluta Laugavalla. Lögmaður eigenda Brúar
er ósáttur við matsnefnd eignarnámsbóta.
Virkjum kraft
eldri borgara
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
„Ég hef tilkynnt lög-
reglunni um hótanirnar,“ segir
Ingi Þór Sigurjónsson, öryrki við
Nönnugötu í Reykjavík, sem seg-
ist ítrekað hafa verið áreittur af
félögum nágranna síns með rúðu-
brotum og sms-hótunum. Ofsókn-
irnar segir hann tengjast deilum
við nágranna sinn sem hann kærði
fyrir líkamsárás.
Fréttablaðið greindi frá málinu
fyrst 15. apríl. Ingi segist hafa
fengið fjölda hótana í sms-formi í
síma sinn þar sem hann er sakað-
ur um að vera kjaftaskjóða vegna
þess hann hafði samband við lög-
reglu og fjölmiðla. Skilaboðin séu
þó send úr tölvu og því ekki hægt
að fullyrða hvaðan þau koma.
Ingi segir að lögreglan hafi enn
ekki aðhafst í málinu og hefur
hann ákveðið að flytja. Vonast
hann til þess að eigandi hússins fái
að hafa rúðurnar í húsinu í friði
eftir það.