Fréttablaðið - 03.05.2007, Page 18
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
Handan við hitt horn-
ið kannski?
Jón Sigurðsson hver?
Endurspeglar
fyrirmyndir
Þetta verður rosalegur dagur
Grænn og áhyggjulaus á reiðhjóli
Óvenju margir ætla að
ganga í það heilaga hinn 7.
júlí næstkomandi og virð-
ist dagsetningin 07.07.07
hafa mikið um það að segja.
Dæmi eru um að kirkjur
séu bókaðar samfellt frá
morgni til kvölds. Prestar
og kirkjuhaldarar muna
ekki eftir öðru eins og telja
að það stefni í met.
„Já, það er fjöldi að fara að gifta
sig,“ segir séra Vigfús Þór Árna-
son, sóknarprestur í Grafarvogs-
kirkju. Sjálfur gefur hann nokkur
brúðhjón saman 7. júlí, hist og her
um borgina, en í Grafarvogskirkju
verða sex eða sjö hjónavígslur
þennan dag. „Ég held að við komum
ekki fleiri athöfnum fyrir á sama
degi með góðu. Kirkjan er bókuð
frá hádegis fram á kvöld,“ segir
hann og bætir við að ástandið sé
álíka í helstu brúðkaupskirkjunum
í Reykjavík; sex pör gifta sig í
Háteigskirkju þennan dag, fjórar
til fimm hjónavígslur verða í Hall-
grímskirkju og álíka margar í
Bústaðakirkju. Þá ganga tólf turtil-
dúfur í það heilaga á Akureyri
þennan dag og tvö pör gifta sig að
kaþólskum sið í Landakotskirkju.
„Ég man að það var líka mikið að
gera 5. maí
2005,“ segir séra
Vigfús Þór. „En
7. júlí verður
ábyggilega einn
af metdögun-
um.“
Undir það
tekur Ástbjörn
Egilsson, kirkju-
haldari í Dóm-
kirkjunni í
Reykjavík, en
þar láta átta pör,
jafnvel níu,
pússa sig saman
fyrsta laugar-
daginn í júlí.
„Þetta verður
rosalegur
dagur,“ segir
Ástbjörn. „Við
byrjum klukkan
níu um morgun-
inn og síðasta
giftingin er
klukkan níu um
kvöldið, þannig
að straumurinn
verður nokkuð
stöðugur allan
daginn.“
Nokkrir prest-
ar gefa brúð-
hjónin saman í Dómkirkjunni þenn-
an dag en Ástbjörn segir hvorki
hann né annað starfsfólk Dómkirkj-
unnar muna eftir öðru eins annríki
á einum degi. „Það má segja að
prestarnir verði í hálfgerðu
akkorði,“ segir hann og hlær.
Brullaupsfárið, ef svo má kalla,
hefur heldur ekki farið fram hjá
séra Jónu Hrönn Bolladóttur mið-
borgarpresti. Að minnsta kosti tíu
hjónaleysi hafa sóst eftir kröftum
hennar 7. júlí og ekki færri leitað
til eiginmanns hennar, séra Bjarna
Karlssonar. „Miðað við hversu
margar beiðnir okkur hafa borist
finnst mér ekki ólíklegt að þetta sé
met,“ segir Jóna. Illu heilli geta
hjónin ekki gefið neinn saman á
þessum degi. „Ég ráðstafaði sumar-
fríinu fyrir jól og áttaði mig ekki á
að 7. júlí myndi bera upp á laugar-
degi, þannig að við verðum erlend-
is þennan dag,“ segir Jóna. Hún
býst þó ekki við að fólk lendi í vand-
ræðum með að finna prest til að
gefa sig saman. Hún telur að dag-
setningin 07.07.07 sé fyrst og
fremst aðdráttaraflið í augum verð-
andi brúðhjóna. „Ég held að þetta
helgist af umhyggjusemi kvenna
svo mennirnir þeirra muni eftir
brúðkaupsdeginum. Það má sjálf-
sagt koma í veg fyrir mikla hjóna-
bandserfiðleika með því móti,“
segir hún og hlær.