Fréttablaðið - 03.05.2007, Side 28

Fréttablaðið - 03.05.2007, Side 28
greinar@frettabladid.is Ekkert blað? 550 5600 Fyrst þú ert að lesa þetta þá hefurðu fengið Fréttablaðið. En til vonar og vara skaltu klippa þetta símanúmer út og hringja ef blaðið berst ekki. - mest lesið Sameining stjórnmálaflokka tekst stundum vel, stundum ekki. Renni flokkar saman vegna þess, að breyttar aðstæður bjóða þeim að leggja gamlan ágreining til hliðar, getur hún tekizt vel, nema gamlir andstæðingar búi sér til nýjan ágreining eins og af gömlum vana. En renni ólíkir flokkar saman til þess eins að sameina krafta sína gegn sam- eiginlegum andstæðingum þrátt fyrir djúpstæðan innbyrðis ágreining um mikilvæg mál, þá er yfirleitt ekki góðs að vænta. Stjórnmálasaga Íslands á 20. öld og fram á þessa ber vitni. Um hvaða flokk er ég að tala? Samfylkinguna? Nei. Það er of snemmt að fella dóm um hana. Hún hefur ekki enn átt aðild að ríkisstjórn. Hún er óskrifað blað. Ég á við Sjálfstæðisflokkinn. Sameining Frjálslynda flokksins, sem var að vísu rammur þjóðern- isflokkur og reis ekki undir nafni nema til hálfs, og Íhaldsflokksins með stofnun Sjálfstæðisflokksins 1929 virðist í ljósi sögunnar hafa tekizt verr en vonir stóðu til. Þessi sameining dró dilk á eftir sér, svo að ekki sér enn fyrir end- ann á því ástandi, sem af henni leiddi. Þetta á ekki að þurfa að koma neinum á óvart. Frjálslynd öfl og íhaldsöfl eiga yfirleitt ekki heima í einum flokki. Það er enda al- gengast í nálægum löndum, svo sem Bretlandi, Danmörku, Sví- þjóð og Þýzkalandi, að frjálslynd- ir hafi um sig sérstakan flokk og takist á við íhaldsmenn. Það er eðlileg skipan. Frjálslyndir flokk- ar horfa fram á við og aðhyllast markaðsbúskap og fríverzlun með sem fæstum hömlum, lýð- ræði og lítil ríkisafskipti. Þeir standa vörð um almannahag gegn þröngum sérhagsmunum. Þeir taka hag neytenda jafnan fram yfir hagsmuni framleiðenda. Íhaldsflokkar eru á hinn bóginn yfirleitt hallir undir ríkisafskipti og sérhagsmuni, einkum hags- muni vinnuveitenda. Þeir standa vörð um óbreytt ástand og reyna yfirleitt ekki að leyna því, eins og íhaldsnafngiftin vitnar um. Sameining Frjálslynda flokks- ins og Íhaldsflokksins í Sjálf- stæðisflokknum 1929 varð til þess, að rödd frjálslynda arms- ins í flokknum kafnaði í faðmi íhaldsins. Óvíða í Vestur-Evrópu hafa sígild frjálslynd sjónarmið átt jafnörðugt uppdráttar og á Ís- landi. Það var meðal annars fyrir máttleysi frjálslyndra, að erind- rekum óprúttinna sérhagsmuna tókst að njörva Ísland í fjötra við- skiptahafta, markaðsfirringar og einangrunar frá 1930 til 1960. Það mátti vart á milli sjá, hvor stærstu flokkanna tveggja átti meiri þátt í því fráleita búskapar- lagi, sem lagt var á fólkið í land- inu öll þessi ár með illum af- leiðingum, Sjálfstæðisflokkur- inn eða Framsóknarflokkurinn. Aðrir flokkar voru þá að vísu litlu skárri. Hefði Frjálslyndi flokk- urinn áfram verið sjálfstæður flokkur, hefði hann væntanlega streitzt gegn þessari óáran og eflzt af því. En sem visinn armur Sjálfstæðisflokksins máttu frjáls- lyndir sín lítils gegn haftastefnu helmingaskiptaflokkanna. Að vísu rofaði til í Sjálfstæðisflokknum á viðreisnarárunum 1959-71, þegar það rann upp fyrir Ólafi Thors, Bjarna Bendiktssyni og helztu samherjum þeirra, að nauðsyn- legt væri að snúa frá haftapólitík fyrri ára. Þíðan stóð þó ekki lengi. Í forsætisráðherratíð sjálfstæð- ismannanna Geirs Hallgríms- sonar 1974-78 og Gunnars Thor- oddsen 1979-83 lék efnahagslíf- ið allt á reiðiskjálfi. Verðbólgan lék á bilinu 30 til 60 prósent á ári. Það var ekki fyrr en í síðara ráðu- neyti framsóknarmannsins Stein- gríms Hermannssonar 1988-91, að verðbólgan hjaðnaði niður fyrir 10 prósent á ári. Hún hefur síðan haldizt undir því marki, að vísu með hiksti og herkjum, enda hefur ríkisstjórnin síðustu ár beinlínis kynt undir verðbólgunni með gamla laginu. Ætla má, að betri árangur hefði náðst í glímunni við verðbólguna og í hagstjórn yfirhöfuð, hefðu frjálslyndir menn haft um sig sérstakan flokk frá fyrstu tíð og aflað markaðsbúskapar- og við- skiptafrelsissjónarmiðum sínum fylgis á eigin spýtur frekar en sem vanburðug og vanrækt deild í Sjálfstæðisflokknum. Þá þyrftu Íslendingar varla enn að búa við okur og vinna lengstu vinnuviku í Vestur-Evrópu og safna miklum skuldum að auki til að halda þeim lífskjörum, sem þeir sækjast eftir. Þá ættu íhaldsöflin í Sjálf- stæðisflokknum óhægt um vik að halda Íslandi utan Evrópusam- bandsins í óþökk meiri hluta þjóð- arinnar, því að þá væri Sjálfstæð- isflokkurinn miklu veikari en hann er nú. Frjálslyndi flokkur- inn nýi var stofnaður 1998 til að mynda borgaralegt mótvægi við íhaldsöflin í Sjálfstæðisflokkn- um, þar eð Sjálfstæðisflokkurinn tók sérhagsmuni útvegsmanna fram yfir almannahag í deilunni um fiskveiðistjórnina. Ætlunar- verk Frjálslynda flokksins getur því aðeins tekizt til fulls, að flokk- urinn beri nafn sitt með rentu og styðji inngöngu Íslands í Evrópu- sambandið og önnur helztu óska- mál frjálslynds fólks. Misheppnuð sameining Þorsteinn Pálsson skrifaði á dögunum leið-ara þar sem hann hélt fram að vegna nið- urstöðu íbúakosninganna í Hafnarfirði væri ekki lengur nauðsynlegt að kjósa Vinstri- hreyfinguna - grænt framboð, því úrslit kosninganna í Hafnarfirði hefðu sinnt því ætlunarverki sem afgerandi kosning Vinstri grænna hefði verið – að hægja á í stóriðju- málum. Þorsteinn vill meina að úrslit kosn- inganna í Hafnarfirði hafi orðið til þess að ekki þurfi lengur að huga að því að hægja á. Í þetta skiptið hefur Þorsteinn á röngu að standa. Eins og sást vel í kjördæmaþætti Stöðvar 2 síðasta vetrardag er fjarri því að stóriðjuáformum hafi nokkuð verið slegið á frest. Sjálfstæðisflokkurinn vill áframhald stóriðjustefnunnar eins og kom skýrt fram hjá talsmanni hans Bjarna Benedikts- syni. Hann gerði meira að segja lítið úr niður- stöðu kosninganna í Hafnarfirði og hélt því fram að eingöngu hefði verið kosið um útfærslu á deili- skipulagi. Enda vakti mikla athygli eftir landsfund Sjálfstæðisflokksins hvernig sjálfstæðismönnum þótti nauðsynlegt að leggja áfram áherslu á stóriðjustefnuna – að engin ástæða væri til þess að slá af. Það er því í besta falli einföldun hjá ritstjóra Fréttablaðsins að landsmenn líti svo á að björninn sé unn- inn – nú sé nóg að gert þegar kemur að því að draga úr stóriðjustefnunni. Þessi leiðari var því ekki jafn skarpur og margir leiðar- ar Þorsteins Pálssonar. Nú sem aldrei fyrr er mikilvægt að for- stjórar og allar stjórnir orkufyrirtækj- anna, ekki síst þeirra orkufyrirtækja sem enn eru í opinberri eigu, spyrni við og fresti öllum ákvörðunum sem lúta að uppbyggingu stóriðju í landinu. Stjórnir Orkuveitu Reykjavíkur og Hitaveita Suðurnesja hefðu allt eins átt að fá bréf frá stjórn Vinstri grænna um að fresta frekari ákvörðunum sem snerta stóriðjuuppbygg- ingu. Ekki síst þar sem nauðsynlegt er að axla ábyrgð einmitt núna þegar erlend álfyrirtæki reyna að klára þá samninga nokkrum vikum fyrir kosningar – því þau lesa öðruvísi í spilin en Fréttablaðsritstjórinn; þau óttast að eftir kosningarnar verði það of seint. Þrátt fyrir orð Þorsteins Pálssonar, þá verður kosið um stóriðjustefnu ríkisstjórnarinnar þann 12. maí. Höfundur skipar 3. sæti á lista VG í Suðvesturkjördæmi. Það verður kosið um stóriðju N ú í aðdraganda alþingiskosninga hafa sést og heyrst bollaleggingar um hugsanleg áhrif forseta Íslands, ef til myndunar nýrrar ríkisstjórnar kemur að þeim loknum. Sú umræða hefur vakið upp það álitaefni hvort hætta geti verið á að forsetinn beiti sér fyrir niðurstöðu öndvert við lýðræðislegan vilja kjósenda. Á það er að líta í þessu sambandi að vald forseta Íslands eins og annarra handhafa ríkisvalds er háð þeim takmörkunum sem stjórnarskráin mælir fyrir um. Stjórnarskráin geymir engin bein fyrirmæli um myndun ríkisstjórnar. Þar um hafa hins vegar mót- ast nokkrar hefðir á grundvelli þingræðisreglunnar. Hún er stjórn- lagaregla sem ekki verður vikið frá. Engum vafa er því undirorpið að allt vald varðandi myndun og setu ríkisstjórnar er í höndum Alþingis. Enga ríkisstjórn er unnt að mynda og engin ríkisstjórn getur setið án stuðnings eða hlutleysis meirihluta Alþingis. Forsetinn er hluti af framkvæmdavaldinu og verður að lúta vilja Alþingis í þessu efni. Þá vaknar sú spurning hvort forsetinn geti falið einhverjum myndun ríkisstjórnar gegn vilja meirihluta þingsins. Stjórnarskrá- in segir ekkert um svokallað umboð til stjórnarmyndunar. Um það eru engar lagareglur. Í reynd er það svo formlaus athöfn að hún hefur ekki verið skjalfest með öðrum hætti en fréttatilkynningu. Kjarni málsins er sá að í þeim efnum getur forseti ekki gengið framhjá ábendingum flokksformanna sem hafa meirihluta þings á bak við sig. Alþingi myndi einfaldlega fella slíka stjórn um leið og það kæmi saman. Hér eru engin álitaefni sem ástæða er til að óttast. Sú staða getur komið upp að forystumenn stjórnmálaflokkanna geti ekki gefið forseta vísbendingu um möguleika á myndun stjórn- ar með stuðningi eða hlutleysi meirihluta Alþingis. Í því falli hefur forseti nokkuð frjálsar hendur að biðja hvern sem er innan þings eða utan um að gera tilraun til stjórnarmyndunar eða láta kyrrt liggja. Gerist það hins vegar meðan á slíkri tilraun stendur að meirihluti Alþingis vilji beina henni í annan farveg verður forseti á grund- velli þingræðisreglunnar að taka tillit til þess. Komi engir flokk- ar sér saman um myndun starfhæfrar ríkisstjórnar er við þing- ið sjálft að sakast en ekki forsetann. Best fer á því að forseti feli engum að gera tilraun til stjórnarmyndunar nema hann hafi fyrir fram ríka ástæðu til að ætla að hún takist. Loks kemur til skoðunar hvort forseti geti beitt áhrifum sínum, vegna tengsla við forystumenn í stjórnmálum, í þeim tilgangi að skapa samstöðu um að ríkisstjórn verði mynduð á einn veg frem- ur en annan. Ekkert kemur í veg fyrir það. Slík tengsl geta reynd- ar virkað á báða bóga. Ef forsetinn er á annað borð opinn fyrir því geta stjórnmálaforingjarnir líka notað hann í þessu skyni. Beiting áhrifa felur hins vegar ekki í sér neitt beint stjórnskipu- legt vald. Í hverjum flokki má finna áhrifamenn sem geta beitt sér með svipuðum hætti og í sama tilgangi gagnvart einstökum flokks- formönnum. Vilji forsetinn blanda sér í þann hóp er það í sjálfu sér ekkert ólýðræðislegra af hálfu hans en annarra. Það getur hins vegar haft víðtækari áhrif á álit hans og stöðu. Hver sem hugur forsetans er getur hann aldrei tekið sér vald eða gengið í aðra átt en meirihluti Alþingis er fús að sætta sig við. Þar er ekkert stjórnskipulegt tómarúm. Hlutverk forsetans

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.